Sáttmálsfórnin. Móses á fjallinu.

1Og hann sagði til Mósis: gakk upp til Drottins, þú og Aron, Nadab og Abíhú, og 70 formenn Ísraelslýðs. Þér skuluð falla fram álengdar;2Móses einn skal nálægja sig Drottni, en hinir skulu ekki koma nær, og fólkið skal ekki heldur fara upp hingað með honum.3Móses kom, og sagði fólkinu öll orð Drottins og allar hans skipanir; þá svaraði fólkið einum munni, og sagði: vér viljum breyta eftir öllum þeim orðum, sem Drottinn hefir talað.4Þá skrifaði Móses öll orð Drottins, og árla morguns stóð hann upp, hlóð altari fyrir neðan fjallið, og reisti 12 steina fyrir þær 12 kynkvíslir Ísraelsmanna;5sendi síðan unga menn af Ísraelslýð, að þeir skyldu fórnfæra uxum í brennifórn og slátursfórn, til þakkarfórnar við Drottin.6Móses tók helming blóðsins, og lét það í fórnarbolla, en öðrum helming blóðsins stökkti hann á altarið.7Hann tók sáttmálsbókina, og las hana að áheyranda fólkinu, og þeir sögðu: vér viljum gjöra allt það sem Drottinn hefir boðið, og vera honum hlýðugir.8Þá tók Móses blóðið, stökkti því á fólkið, og sagði: þetta er blóð þess sáttmála, sem Drottinn hefir samið við yður um varðveislu allra þessara boðorða.
9Þá gengu þeir upp Móses og Aron, Nadab og Abíhú, og þeir 70 af formönnum Ísraelslýðs.10Þeir sáu Guð Ísraels; og var undir fótum hans, sem pallur væri gjörður af gagnsærum saffírsteini, fagur sem heiður himinninn;11en hann lagði ekki hönd á höfðingja Ísraelslýðs, svo þeir skoðuðu Guð, og átu og drukku.
12Drottinn sagði við Móses: kom upp á fjallið til mín, og vert þar, og skal eg fá þér steinspjöldin, og lögmálið og boðorð þau, er eg hefi skrifað, til þess þú kennir þeim þau.13Þá stóð Móses upp og Jósúa, þjón hans, og gekk Móses upp á Guðs fjall,14en sagði til höfðingjanna: verið hér kyrrir, þar til vér komum aftur til yðar; sjáið! Aron og Húr eru hjá yður, og getur hvör, sem mál hefir að kæra haldið sér til þeirra.15Móses gekk þá upp á fjallið, en skýið huldi fjallið, og dýrðin Drottins staðnæmdist yfir Sínaífjalli, og skýið huldi það í 6 daga; en á sjöunda degi kallaði hann á Móses mitt út af skýinu;16og dýrðarsjón Drottins á fjallstindinum var sem brennandi eldur í augsýn Ísraelsmanna.17En Móses gekk mitt inn í skýið, og sté upp á fjallið; og var Móses á fjallinu í 40 daga og 40 nætur.