Ættartölur frá Adam til Nóa.

1Þetta er Adams ættartölusaga. Þegar Guð skapaði manninn, svo gjörði hann manninn eftir Guðs líkingu.2Hann skóp þau mann og konu og blessaði þau, og þá hann skapaði þau, nefndi hann þau: menn.3Og Adam lifði hundrað og þrjátíu ár, þá gat hann son eftir sinni líking og mynd, og nefndi nafn hans: Set.4Og dagar Adams voru, eftir getnað Sets, átta hundruð ár, og hann gat syni og dætur.5Og allir dagar Adams sem hann lifði, voru níu hundruð og þrjátíu ár. Þá dó hann.6Og Set var hundrað og fimm ára gamall þá hann gat Enos;7eftir það lifði hann átta hundruð og sjö ár, og átti sonu og dætur.8Og allir dagar Sets voru: níu hundruð og tólf ár; og hann andaðist.9Og Enos var níutíu ára, þá hann gat Kenan,10og lifði eftir það átta hundruð og fimmtán ár, og átti sonu og dætur;11svo að allur hans aldur varð: níu hundruð og fimm ár, og hann andaðist.12Kenan var sjötíu ára, þá hann gat Mahalalel;13og Kenan lifði eftir getnað Mahalalels átta hundruð og fjörutíu ár, og átti sonu og dætur.14Og allir dagar Kenans urðu, níu hundruð og tíu ár; og hann andaðist.15Mahalalel var fimm og sjötíu ára, þá hann gat Jareð.16Og Mahalalel lifði eftir getnað Jareðs, átta hundruð og þrjátíu ár, og gat sonu og dætur.17Og allur aldur Mahalalels varð átta hundruð og níutíu og fimm ár, og hann andaðist.18Og Jareð var hundrað sextíu og tveggja ára, þá hann gat Enok,19og Jareð lifði eftir það hann gat Enok, átta hundruð ár, og átti sonu og dætur.20Og allir dagar Jareðs voru: níu hundruð sextíu og tvö ár; og hann andaðist.21Og Enok lifði sextíu og fimm ár, og þá gat hann Metusala,22og eftir að Enok gat Metusala, gekk hann með Guði, og átti sonu og dætur.23Og allur hans aldur varð þrjú hundruð sextíu og fimm ár.24Og Enok gekk með Guði, og var ekki framar (hér) því Guð tók hann.25Metusala var hundrað áttatíu og sjö ára, þá hann gat Lamek.26Og Metusala lifði eftir að hann gat Lamek, sjö hundruð áttatíu og tvö ár; og átti sonu og dætur,27svo að allur hans aldur varð níu hundruð sextíu og níu ár; og hann andaðist.28Og Lamek var hundrað áttatíu og tveggja ára, þá hann gat son, og þennan son kallaði hann Nóa og mælti:29þessi mun hugga oss í vorri armæðu og erfiði vorra handa, á þeirri jörðu, sem Drottinn bölvaði.30Og Lamek lifði eftir að hann gat Nóa fimm hundruð níutíu og fimm ár, og átti sonu og dætur.31Og allur hans aldur varð sjö hundruð sjötíu og sjö ár; og hann andaðist.32Og Nói var fimm hundruð ára og gat: Sem, Kam og Jafet.

V. 21. gekk með Guði: lifði guðrækilega. Hebr. 11,5. V. 27. árið sem flóðið kom, eftir lærðra útreikningi.