Uppruni og holdgan Jesú Krists; vitnisburður Jóhannesar skírara; Andrés, Philippus, Pétur, Nathanael og enn ónefndur lærisveinn finna Jesúm.

1Í upphafi var Orðið a) og Orðið var hjá Guði, og Orðið var Guð.2Það var í upphafi hjá Guði.3Allir hlutir eru fyrir það gjörðir og án þess er ekkert til orðið, sem til er.4Í því var líf og lífið var ljós mannanna;5og ljósið skein í myrkrinu og myrkrið meðtók það ekki.—6Maður nokkur var sendur af Guði, hann hét Jóhannes.7Þessi kom til vitnisburðar, að hann vitnaði um ljósið, svo allir tryðu fyrir hans vitnisburð.8Ekki var hann ljósið heldur átti hann að vitna um ljósið.9Það var hið sanna ljós, sem upplýsir hvörn mann, er kom í heiminn.10Það var í heiminum og heimurinn var fyrir það gjörður og þekkti hann þó ekki.11Hann kom til sinna og hans eigin meðtóku hann ekki.12En svo mörgum, sem hann meðtóku og á hann trúðu, gjörði hann kost á að verða Guðs börn, b)13ekki þeim, sem fæddir vóru af blóðinu, né holdsins vild, né mannsins vilja, heldur af Guði.14Og Orðið varð maður, sem bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum hans dýrð, dýrð sem þess eingetna Föðursins.15Um þennan vitnaði Jóhannes berlega og sagði: þessi er sá um hvern eg sagði: eftir mig mun koma sá, sem var fyrri en eg, því hann var á undan mér.16Af hans nægtum höfum vér allir meðtekið náð á náð ofan.17Lögmálið var oss gefið fyrir hönd Mósis, en náðin og sannleikurinn veittist fyrir Jesúm Krist.18Enginn hefir nokkurn tíma séð Guð, sá eingetni Sonurinn, sem er í Föðursins skauti, hann hefir sagt oss af honum.
19Og þessi er Jóhannesar vitnisburður, þegar Gyðingar sendu frá Jerúsalem presta og Levíta til að spyrja hann að, hver hann væri?20Hann játti og neitaði ekki og sagði: ekki em eg Kristur.21Þeir spurðu þá: hvað ertú þá? ertú þá Elías? hann svaraði: ekki em eg. Ertú þá spámaðurinn? og hann svaraði: nei!22Þá sögðu þeir við hann: hver ertú? seg oss það, svo vér getum gefið svar þeim, er oss sendu; hvað segir þú af sjálfum þér?23Hann svaraði: eg er rödd þess, sem hrópar í eyðimörku: gjörið beinan veg Drottins, eins og Esajas spámaður hefir sagt.24En þeir, sem sendir höfðu verið, voru farísear.25Þeir spurðu hann þá og sögðu: hví skírir þú, ef þú ert hverki Kristur, né Elías, né spámaðurinn?26Jóhannes svaraði þeim og sagði: eg skíri í vatni, en sá er nú kominn meðal yðar, sem þér þekkið ekki, sem koma mun eftir mig,27hvers skóþvengi eg em ekki verðugur að leysa.28Þetta skeði í Bethaníu hinumegin við ána Jórdan, þar sem Jóhannes skírði.
29Daginn eftir sér hann Jesúm koma til sín og segir: sjá það Guðs lamb, sem burt ber heimsins synd.30Hann er sá, um hvörn eg sagði: eftir mig mun koma maður, sem var á undan mér; því hann var fyrri en eg.31En eg þekkti hann ekki, en til þess kom eg að skíra með vatni að Gyðingar fengju hann að þekkja..32Jóhannes vitnaði og þetta: eg sá andann niðurfara af himni sem dúfu og nema staðar yfir honum.33Eg þekkti hann ekki, en sá, sem sendi mig til að skíra með vatni, hann sagði mér: sá, sem þú sér andann koma yfir og staðnæmast yfir, hann er sá, sem skírir með heilögum Anda.34Þetta sá eg og eg vitna, að þessi sé Sonur Guðs.
35Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir af hans lærisveinum,36og er hann horfði á Jesúm hvar hann gekk, sagði hann: sjá það Guðs lamb!37Þessir tveir lærisveinar hans heyrðu hann tala þetta og fóru eftir Jesú.38En Jesús leit við, og þá hann sá þá fara eftir sér, sagði hann: hvörs leitið þér?39Þeir sögðu: Rabbí! (það þýðir lærimeistari) hvar áttú heima? hann sagði: komið og sjáið!40þeir komu og sáu og voru hjá honum daginn þann, en þetta gjörðist að liðnu nóni.41Annar af þessum tveimur, sem heyrðu þetta af Jóhannesi og gengu eftir Jesú, var Andrés bróðir Símonar Péturs.42Hann finnur fyrst bróður sinn Símon og segir við hann: við höfum fundið Messías, það útleggst: sá smurði, og hann fylgdi honum til Jesú.43En er Jesús leit hann sagði hann: þú ert Símon sonur Jónasar, þú skalt heita Kefas, það er: bjarg (Pétur).44Daginn eftir ætlaði Jesús að fara til Galíleu, hann hitti þá Filippus og sagði til hans: fylg þú mér!45en Filippus var frá Betsaída, borg þeirra Andresar og Péturs.46Filippus fann Nathanael og sagði til hans: vér höfum fundið þann, sem Móses skrifar um í lögmálsbókinni og spámennirnir, Jesúm son Jóseps af Nasaret.47Nathanael svaraði: getur nokkuð gott komið frá Nasaret? Filippus svaraði: kom þú og sjá.48Jesús sá Nathanael koma til sín og sagði um hann: sjá! þessi er sannur Gyðingur, í hvörjum engin svik eru.49Nathanael sagði: hvörnig þekkir þú mig? Jesús svaraði og sagði til hans: áður en Filippus kallaði þig, sá eg þig þar, sem þú varst undir fíkjutrénu.50Nathanael svaraði og sagði til hans: Rabbí! þú ert Sonur Guðs, þú ert Ísraelskonungurinn.51Jesús svaraði og sagði til hans: þú trúir því, af því eg sagði þér: eg sá þig undir fíkju trénu; annað þessu meira muntú fá að sjá.52Og hann sagði til hans: sannlega, sannlega segi eg yður: hér eftir munuð þér sjá himininn opinn og engla Guðs uppfara og niðurstíga til Mannsins Sonar.

V. 1. a. Sá er heitir Orð, etc. 1 Jóh. 1,1.2. 5,20. V. 2. Orðskv. b. 8,22. V. 4. 5,26. V. 5. 8,12. V. 9. Kap. 3,19. V. 13. b. Þeir áttu ekki öðrum framar kost á Guðs barnarétti, sem komnir voru af Gyðingaættum, eður af Gyðingum ættleiddir, heldur þeir, sem Guð kannaðist við, sem sín börn, kap. 3,5. Jak. 3,18. V. 15. Kap. 3,31. V. 23. Es. 40,3. V. 26. Hér bæta sumar útgáfur við: sem er mér fremri. V. 29. 3 Mós. 16,21.22. V. 40. Hér um bil um 10tu stund. V. 46. 5 Mós. 18,18. Esaj. 7,14. 9,6. Dan. 9,25.26. V. 52. 1 Mós. 28,12.