Sá, sem trúir að Jesús sé Guðs Son og elskar Guð, er af Guði fæddur. Honum er ekki örðugt að halda Guðs boð. Vatnið, blóðið og andinn sannar að Jesús sé Guðs Sonur. Sá sem þessum vitnum trúir, hefir eilíft líf í sér búandi, treystir Guði og forðast syndir.

1Hvör, sem trúir að Jesús sé Kristur, er af Guði fæddur, og hvör, sem elskar Föðurinn, elskar einnig þann, sem er fæddur af honum a).2Þar af þekkjum vér að vér elskum Guðs börn, þegar vér elskum Guð og höldum hans boðorð;3því þar í sýnir sig elskan til Guðs, að vér höldum hans boðorð og boðorðin hans verða þá ekki þung;4því allt, sem af Guði er fætt, yfirvinnur heiminn og vor trú er sigurinn, sem hefir yfirunnið heiminn.5En hvör getur yfirunnið heiminn nema sá, sem trúir, að Jesús sé Guðs Sonur?
6Þessi er sá, sem kom með vatni og blóði Jesús Kristur, ekki með vatni einungis, heldur með vatni og blóði og andinn er sá, sem vitnar, því að andinn er sannleikurinn.7Því þeir eru þrír, sem vitna {í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur Andi og þessir þrír eru eitt.8Og þeir eru þrír, sem vitna á jörðunni b)}: andinn, vatnið og blóðið og þessir þrír vitna eitt og hið sama c).9Ef vér tökum manna vitnisburð gildan, þá er Guðs vitnisburður meiri, því þetta er vitnisburður Guðs, hvörn hann hefir vitnað um sinn Son.10Hvör, sem trúir á Guðs Son, hefir þenna vitnisburð í sjálfum sér, hvör, sem ekki trúir Guði, hefir gjört hann að lygara, af því hann hefir ekki trúað þeim vitnisburði, hvörn Guð hefir vitnað um sinn Son.11Og þetta er vitnisburðurinn: að Guð hefir gefið oss eilíft líf og þetta líf er í hans Syni.12Sá, sem hefir Soninn, hefir lífið, sá, sem ekki hefir Guðs Son, hefir ekki lífið.
13Þetta hefir eg skrifað yður, sem trúið á nafn Guðs Sonar, svo þér vitið, að þér hafið eilíft líf og þér trúið á nafn Guðs Sonar.14Og þetta er sú djörfung, sem vér höfum til hans, að ef vér biðjum nokkurs eftir hans vilja, þá heyrir hann oss.15Og ef vér vitum að hann bænheyrir oss, um það sem vér biðjum, þá vitum vér að vér fáum þær bænir, hvörra vér höfum hann beðið.16Ef nokkur sér sinn bróður synd drýgja, en ekki til dauða, sá biðji og mun hann gefa honum líf, þeim, sem ekki syndgar til dauða; sé syndin til dauða, fyrir þeirri synd segi eg ekki að hann skuli biðja.17Allt ranglæti er synd, en það er til synd, sem ekki er til dauða.18Vér vitum, að hvör af Guði er fæddur, syndgar ekki, heldur sá, sem af Guði er fæddur, gætir sín, og hinn vondi snertir hann ekki.19Vér vitum að vér erum af Guði, að allur heimurinn liggur í því vonda.20Líka vitum vér, að Guðs Sonur er kominn, og hefir gefið oss þann skilning, að vér þekkjum þann sanna Guð, og erum í hinum sanna fyrir hans Son Jesúm Krist. Þessi er sá sanni Guð og það eilífa lífið.21Börn mín! varið yður við afguðum.

V. 1. a. Kap. 2,22.23. 4,2.15. Jóh. 1,12.13. fl. V. 3. Jóh. 14,15.21.23. 15,10. Matt. 11,30. V. 4. Jóh. 16,33. V. 5. 1 Kor. 15,57. 1 Jóh. 4,4. v. 15. V. 6. Jóh. 3,5.22. 4,1. sbr. Jóh. 4,14. Tít. 3,5. 1 Pét. 3,21. Kap. 1,7. Jóh. 15,26.27. 16,13.14. Post. g. b. 10,47. V. 7. Matt. 28,19. 1 Kor. 12,4–6. Jóh. 1,1. V. 8. þau orð, sem eru innsirkluð í 7da og 8da versi finnast hvörki í neinum gömlum handritum, elstu útleggingum, né hjá kirkjufeðrunum. b. c. nl. að Jesús sé Guðs sonur. V. 9. Jóh. 8,17. sbr. 5 Mós. b. 17,6. 19,15. Jóh. 8,18. V. 10. Jóh. 3,18.33. V. 11. Jóh. 1,4. 2 Tím. 1,10. V. 12. Jóh. 3,16.36. 5,24. V. 14. Kap. 3,21. Sálm. 145,18. Lúk. 11,9. Jóh. 16,23. 1 Jóh. 3,22. V. 16. sbr. Jak. 5,15. ff. 4 Mósb. 15,30. Matt. 12,31. 2 Pét 2,20. Hebr. 6,4. 10,26. V. 17. Kap. 3,4. V. 18. Kap. 3,9. V. 19. Gal. 1,4. V. 20. Lúk. 24,45. Jóh. 17,3. sbr. Róm. 9,5. 1 Tím. 3,16. Hebr. 1,8. Jóh. 11,25.26. V. 21. 2 Mós. b. 20,3.