Um fæðing Móses, uppfóstur, flótta og kvonfang.

1Maður nokkur af Levíætt gekk að eiga eina af dætrum Leví.2Þessi kona varð barnshafandi, og fæddi son; og er hún sá, að sveinninn var fagur, þá leyndi hún honum í 3 mánuði.3En er hún mátti ei leyna honum lengur, bjó hún honum til örk af reyr, bræddi hana með jarðlími og biki, lagði sveininn þar í, og lét örkina út í sefið hjá árbakkanum;4en systir sveinsins stóð þar langt frá, til að vita hvað um hann yrði.5Dóttir faraós gekk ofan að ánni til að lauga sig, og gengu þjónustumeyjar hennar eftir árbakkanum; hún leit örkina í sefinu, og sendi eina af þernum sínum eftir henni.6En er hún lauk upp örkinni, sá hún barnið; og sjá! það var sveinbarn, og var að gráta! Hún kenndi í brjósti um hann, og sagði: þetta er eitt af sveinbörnum ebreskra.7Þá sagði systir hans við dóttur faraós: á eg að fara og sækja fyrir þig einhverja fóstru af þeim ebresku konum, að hún hafi sveininn á brjósti fyrir þig?8Dóttir faraós svaraði henni: far þú; en stúlkan fór, og sótti móður sveinsins.9Dóttir faraós sagði til hennar: tak þenna svein með þér, og haf hann á brjósti fyrir mig, og skal eg launa þér fyrir; tók konan þá sveininn, og hafði hann á brjósti.10En er sveinninn var vaxinn, fór hún með hann til dóttur faraós; tók hún hann í sonarstað, og kallaði hann Móses, því hún sagði: eg hefi tekið hann upp úr vatninu.
11Þá er Móses var orðinn fulltíða maður, fór hann eitt sinn á fund ættbræðra sinna, og sá á þrældóm þeirra; hann sá, hvar egypskur maður laust ebreskan mann, einn af kynsmönnum hans.12Hann litaðist þá um, og er hann sá öngvan mann, vó hann hinn egypska, og huldi hann í sandi.13Daginn eftir gekk hann út, og sá tvo ebreska menn ryskjast, þá mælti hann við þann, sem á röngu máli átti að standa: hví slær þú náunga þinn?14Hinn svaraði: hvör hefir gjört þig að yfirmanni og dómara yfir okkur? er þér í hug að drepa mig, eins og þann egypska, sem þú drapst? Þá varð Móses hræddur, og hugsaði með sér: það er þá orðið uppvíst!15En sem faraó frétti þenna atburð, leitaði hann eftir að drepa Móses; en Móses flýði fyrir faraó, og tók sér bústað í Midíanslandi, og bjó þar hjá vatnsbólinu.16Kennimaðurinn í Midíanslandi átti sjö dætur; þær komu þangað, jusu vatn, og fylltu þrórnar til að brynna fénaði föður síns.17Þá komu að hjarðmenn, og bægðu þeim frá; en Móses reis upp, og hjálpaði þeim, og brynnti fénaði þeirra.18Þá þær komu heim til Reguels, föður síns, mælti hann: hví komið þér svo skjótt heim í dag?19Þær svöruðu: egypskur maður hjálpaði oss frá hjarðmönnunum, jós líka vatnið upp fyrir oss, og vatnaði fénu.20Hann sagði þá til dætra sinna: hvar er hann þá? hvers vegna látið þér þenna mann standa úti? kallið á hann, að hann eti með oss!21Móses lét sér vel líka að vera hjá þessum manni, og hann gifti Mósi Sippóru (sonar)dóttur sína.22Hún ól son, þann lét hún heita Gersom; því hann sagði: eg hefi verið gestur í ókunnu landi.
23Löngum tíma þar eftir dó Egyptalandskonungur. En Ísraels menn andvörpuðu undir ánauðinni, og kveinuðu, og þeirra ánauðarkvein sté upp til Guðs;24og Guð heyrði þeirra andvarpanir, og minntist síns sáttmála við Abraham, Ísaak og Jakob;25Guð leit til Ísraelsmanna, og vissi hverninn þeim leið.