Jakob fer til Egyptalands með allt sitt.

1Og Ísrael tók sig upp, og fór með allt sem hans var, og kom til Berseba, og offraði þar Guði föður síns Ísaks slátrunarfórn.2Og Guð talaði við Ísrael í sýn um nóttina og sagði: Jakob! Jakob! og hann svaraði: hér em eg!3Og hann sagði: eg em Guð, þinna feðra Guð. Óttast þú ekki að fara niður til Egyptalands, því þar mun eg gjöra þig að mikilli þjóð.4Eg skal fara með þér til Egyptalands, og eg mun flytja þig þaðan aftur og Jósep skal veita þér þar nábjargirnar.5Þá tók Jakob sig upp frá Berseba, og Ísraels synir fluttu Jakob föður sinn, og börn sín og konur sínar á þeim vögnum sem faraó sendi, til að flytja hann á.6Og þeir tóku fénað sinn og fjárhluti sem þeim höfðu aflast í Kanaanslandi, og komu í Egyptaland, Jakob og allir hans niðjar með honum;7hans synir og sonasynir með honum, hans dætur og hans sonadætur; og alla sína niðja, flutti hann með sér til Egyptalands.
8Þessi eru nöfn Ísraelssona sem komu til Egyptalands, Jakob og hans synir. Rúben Jakobs frumgetni son.9Og synir Rúbens, Hanok og Pallu og Hesron og Karmi.10Og synir Simeons: Jemuel og Jamin og Ohad og Jakin og Soar og Sál, sonur þeirrar kanversku.11Og synir Levi: Gerson Kahat og Merari,12og synir Júda: Ger og Onan og sela og Peres og Sera (en Ger og Onan dóu í Kanaanslandi) og Peres synir voru: Hesron og Hamul.13Og synir Íssaskars: Tóla og Púva og Job og Simrom.14Og synir Sebulons: Sered og Elon og Jalel.15Þetta eru synir Leu, sem hún fæddi Jakob í Mesopotamíu, með Dínu dóttur hans, allir hennar synir og dætur voru 33 sálir.16Og synir Gaðs: Sifion og Haggi, Suni og Esbon, Eri og Arodi og Areli.17Og synir Assers: Imna og Isva og Isvi og Bría og Sera, þeirra systir; og synir Bría: Heber og Malkiel.18Þetta eru synir Silpu, sem Laban gaf Leu dóttur sinni, hún ól þessa Jakob—16 sálir.19synir Rakelar, konu Jakobs: Jósep og Benjamín.20Og Jósep fæddust synir í Egyptalandi; Asnat, dóttir prestsins í On ól honum þá: Manasse og Efraim.21Og synir Benjamíns: Bela og Beker og Asbel, Gera og Naaman, Ehi og Ros, Muppim og Huppim og Ard.22Þetta eru synir Rakelar sem fæddust Jakob, alls 14 sálir.23Dans synir Husim.24Naftalis synir: Jafeel og Guni, Jefer og Sillem.25Þetta eru Bilu synir, sem Laban gaf Rakel dóttur sinni, og hún ól Jakob; þeir eru 7 sálir.26Og allar þær sálir sem komu með Jakob til Egyptalands er af honum voru komnar, fyrir utan Jakobs sonakonur, eru 66 sálir.27Og synir Jóseps, sem honum voru fæddir í Egyptalandi voru tvær sálir. Allar sálir af Jakobs húsi, sem komu til Egyptalands voru 70 sálir.28Og hann sendi Júda á undan sér til Jóseps, að hann vísaði sér til Gosen.29Þá lét Jósep spenna fyrir sinn vagn, og fór á móti föður sínum Ísrael, til Gosen, og sem hann kom fyrir hann, féll hann honum um háls, og grét lengi.30Og Ísrael sagði við Jósep: nú vil eg deyja, fyrst eg er búinn að sjá þig, og fyrst þú ert enn á lífi.31Og Jósep sagði við bræður sína, og við síns föðurs hús: nú vil eg fara og láta faraó vita, og segja við hann: bræður mínir og míns föðurs hús sem voru í Kanaanslandi, eru til mín komnir;32og mennirnir eru fjárhirðarar, því þeir hafa lagt fyrir sig fjárrækt og sauði sína og nautpening sinn eru þeir komnir með, og allt hvað þeir eiga.33Þegar nú faraó lætur yður kalla og spyr: hver er yðar atvinna?34þá svarið: fjárrækt hafa þínir þjónar stundað frá barnæsku til þessa dags, bæði vér og feður vorir; til þess þér fáið að búa í landinu Gosen.