1.) sonur á ný heitinn Abraham. 2.) englar boða honum Sódómu eyðilegging.

11.) Og Drottinn birtist honum í Mamreslundi, þá hann sat í sínum tjalddyrum, um hádegisbilið.2Og hann hóf upp sín augu, og litaðist um, og sjá! þrír menn stóðu frammi fyrir honum; og er hann sá þá, hljóp hann móti þeim úr sínum tjalddyrum og laut þeim til jarðar,3og mælti: Herra! hafi eg fundið náð í þínum augum, svo gakk þú ekki framhjá þínum þræli.4Leyfið að sótt sé vatn, og þvoið yðar fætur, og hvílið yður undir trénu.5Og eg vil færa yður lítið eitt af mat, og styrkið yðar hjörtu, síðan megið þér halda áfram ferðinni; því þess vegna hafið þér gengið hér um hjá yðar þræli. Og þeir svöruðu: gjörðu eins og þú hefur sagt.6Þá flýtti Abraham sér í tjald Söru og mælti: sæktu nú sem skjótast þrjá mælira hveitis, hnoðaðu og bakaðu kökur!7Og Abraham hljóp til nautanna, og tók kálf ungan og góðan og fékk þénaranum sem flýtti sér að matreiða hann.8Og hann tók rjóma og mjólk og þann kálf sem var matbúinn, og setti fyrir þá, en hann stóð frammi fyrir þeim undir trénu, og þeir átu.9Og þeir sögðu til hans: hvar er kona þín Sara? hann svaraði: þarna í tjaldinu.10Og einn þeirra sagði: aftur mun eg koma til þín á öðru ári, þá skal Sara kona þín vera búin að eignast son; og Sara heyrði þetta í dyrum tjaldsins sem voru að baki hans.11En Abraham og Sara voru gömul og komin til ára sinna; og kvenlegir eðlishættir voru horfnir frá Söru.12Og Sara hló í sínu hjarta, og mælti: eftir að eg er gömul orðin, skal eg þá munað hafa? og minn maður er gamall!13Og Drottinn sagði til Abrahams: hvar fyrir hlær Sara, og segir: mun eg þá eiga barn, eg sem er svo gömul?14Er Drottni nokkuð ómögulegt? í þetta mund mun eg aftur til þín koma að ári, og Sara hefur þá eignast son.152.) Og Sara neitaði og sagði: eg hló ekki, því hún var hrædd. Og hann sagði: nei! víst hlóstu.16Þá stóðu mennirnir upp, og stefndu þaðan til Sódóma; en Abraham gekk með þeim á veg að fylgja þeim.17Og Drottinn mælti: því skyldi eg leyna Abraham því sem eg ætla að gjöra?18Þar eð Abraham skal verða að miklu og voldugu fólki. Og allar þjóðir skulu af honum blessun hljóta;19því eg hefi útvalið hann, að hann bjóði sonum sínum, og sínu húsi eftir sig, að þeir varðveiti vegu Drottins, og gjöri það sem rétt er og ráðvandlegt, til þess Drottinn láti koma fram við Abraham, það sem hann hefur honum heitið.
202.) Og Drottinn mælti: mikill hávaði er í Sódóma og Gomorra, og þeirra synd er mjög þung.21Því ætla eg að fara þangað og sjá, hvert þeir fullkomlega hafa aðhafst eftir því hrópi sem til mín er komið, eða ef ekki, vil eg líka vita það.22Og mennirnir snerust á veg og héldu til Sódóma, og Abraham stóð enn nú frammi fyrir Drottni.23Og Abraham gekk nær honum og mælti: hvert munt þú afmá hinn réttláta með þeim guðlausa?24Máske 50 réttlátir séu í staðnum: vilt þú og burtrykkja þeim, og þyrma ekki staðnum vegna þeirra 50 réttlátu sem þar eru?25fjærri sé það þér að gjöra slíkt, að deyða hinn réttláta með þeim guðlausa, svo að sá réttláti sé eins og sá óguðlegi; fjærri sé það þér! mun dómari alls heimsins ekki dæma rétt?26Og Drottinn mælti: finni eg í staðnum Sódóma 50 réttláta, svo þyrmi eg öllum staðnum þeirra vegna.27Abraham svaraði og sagði: Æ! eg hefi dirfst að tala við Drottin, enn þótt eg sé mold og aska.28Kannske fimm skorti á fimmtíu réttláta: munt þú eyðileggja allan staðinn vegna þessara fim? og hann (Drottinn) mælti: eg skal ekki eyðileggja hann, finni eg þar 45.29Og hann hélt áfram við hann að tala og mælti: þar kynnu máske að finnast 40. En hann svaraði: eg skal ekki gjöra það (eyðileggja staðinn) vegna þeirra 40.30Og hann sagði: æ að þó Herrann ekki reiðist að eg tala! máske þar finnist 30. Og hann svaraði: eg skal ekki gjöra það, finni eg þar 30.31Og hann sagði: æ, sjá! eg dirfist að tala við Herrann! máske þar finnist 20. Og hann mælti: eg skal ekki eyðileggja hann vegna þeirra 20.32Og hann mælti: æ að Herrann þó ekki reiðst að eg enn aðeins í þetta sinn tala! máske þar finnist 10. Og hann sagði: eg vil ekki eyðileggja hann vegna þeirra 10.33Og Drottinn fór leiðar sinnar þegar hann hafði endað tal sitt við Abraham; en Abraham fór aftur heimleiðis.