Jesú upprisa boðuð; hann birtist sjálfur Maríu og síðan lærisveinunum.

1En snemma á fyrsta degi vikunnar, áður en bjart var orðið, kemur María frá Magdölum til grafarinnar og sér að steinninn er tekinn frá gröfinni.2Hún hleypur þá til Símonar Péturs og þess annars lærisveins, sem Jesús elskaði og segir við þá: það er búið að taka burt Drottin úr gröfinni, og vér vitum ekki hvar hann hefir verið lagður.3Þá fór Pétur út og hinn annar lærisveinn og þeir komu til grafarinnar.4En þeir tveir hlupu ásamt og sá annar lærisveinn hljóp hraðara en Pétur og kom fyrri að gröfinni;5og þá hann gægðist inn í gröfina, sá hann líndúkana liggja þar, en þó gekk hann ekki inn.6Þá kom Símon Pétur, sem seinni varð, og hann gekk inn í gröfina og hann sá líka líndúkana liggja þar7og sveitadúkinn, sem hafði verið um hans höfuð, ekki hjá líndúkunum, heldur út af fyrir sig samanbrotinn á öðrum stað.8Þá gekk og inn sá annar lærisveinn, sem fyrr hafði komið til grafarinnar og sá og trúði a);9því enn þá skildu þeir ekki Ritninguna, að hann ætti að rísa frá dauðum.
10Svo fóru lærisveinarnir heim til sín aftur.11En María stóð hjá gröfinni og grét; en sem hún grét,12gægðist hún inn í gröfina og sér tvo engla hvítklædda hvar þeir sitja, annan til höfða, hinn til fóta þar, sem Jesús hafði legið.13Og þeir sögðu til hennar: kona! hví grætur þú? hún svaraði þeim: af því að búið er að taka burt minn Drottin og eg veit ekki hvar hann hefir verið lagður.14Í því hún sagði þetta, varð henni litið aftur fyrir sig og þá sá hún Jesúm standa þar, en hún vissi ekki að það var Jesús.15Jesús segir til hennar: kona! hvað grætur þú? að hvörjum leitar þú? hún, sem hugsaði að þetta væri grasgarðsvörðurinn, sagði til hans: Herra! hafir þú borið hann í burtu, þá segðu mér hvar þú hefir lagt hann og mun eg sækja hann.16Jesús sagði til hennar: María! hún sneri sér við og segir á hebresku: Rabbúní! það er: Lærimeistari.17Jesús sagði til hennar: snertú mig ekki, því enn þá er eg ekki uppstiginn til Föður míns; en farðú til bræðra minna og segðu þeim: eg muni uppstíga til míns Föðurs og yðar Föðurs, til míns Guðs og yðar Guðs.18María frá Magdölum kemur og segir lærisveinunum, að hún hafi séð Drottin og að hann hafi talað þetta við sig.
19En að kvöldi hins sama dags, sem var sá fyrsti í vikunni, og eftir að búið var að læsa dyrum á því húsi, hvar lærisveinarnir voru samansafnaðir af ótta fyrir Gyðingum, kom Jesús og stóð mitt á meðal þeirra og sagði: friður sé með yður!20og í því hann talaði þetta, sýndi hann þeim sínar hendur og síðu. Þá urðu lærisveinarnir glaðir að þeir sáu Drottin.21Jesús sagði þá aftur til þeirra: friður sé með yður! eins og Faðirinn hefir sent mig, svo sendi eg yður;22og í því hann sagði þetta, blés hann á þá og sagði: meðtakið þér heilagan Anda!23hvörjum, sem þér fyrirgefið syndirnar, þeim eru þær fyrirgefnar og hvörjum sem þér synjið fyrirgefningar, þeim verður synjað um fyrirgefningu.24En Tómas, það þýðir: Tvíburi, einn af þeim tólf, var ekki með þeim, þegar Jesús kom.25Þar fyrir sögðu hinir lærisveinarnir honum frá, að þeir hefðu séð Drottin. En hann svaraði þeim: sjái eg ekki naglaförin í hans höndum og láti fingur mína í þau og mína hönd í hans síðu, þá trúi eg ekki.26Og eftir átta daga voru hans lærisveinar aftur inni og Tómas með þeim. Þá kom Jesús þegar búið var að læsa dyrum og stóð mitt á meðal þeirra og sagði: friður sé með yður!27síðan sagði hann við Tómas: kom þú hingað með þinn fingur og skoða mína hendur; kom þú með þína hönd og legg í mína síðu og vertú ekki vantrúaður heldur trúaður.28Tómas svaraði og sagði til hans: Drottinn minn og Guð minn!29Jesús svaraði: af því þú sást mig, Tómas! trúðir þú; en sælir eru þeir, sem trúa, þótt þeir ekki sjái.30En hér að auki gjörði Jesús mörg önnur teikn í augsýn sinna lærisveina, hvörra ekki er getið í þessari bók.31En þetta er skrifað, svo að þér tryðuð, að Jesús er Kristur Sonur Guðs og svo að þér hafið lífið, sem á hans nafn trúið.

V. 8. a. Að Jesús hefði verið borinn úr gröfinni, eins og María sagði. V. 29. 1 Pét. 1,8.