1.) Abram og Lot koma til Kanaan. 2.) Abram kemur til Egyptalands; segir Sarai sína systur.

11.) Og Drottinn sagði til Abrams: far þú burt úr þínu landi, og frá þínu heimkynni, og úr þíns föður húsi, og til þess lands sem eg mun vísa þér á.2Og eg mun gjöra þig að mikilli þjóð og blessa þig, og gjöra nafn þitt mikið, og þú skalt vera blessan.3Og eg mun blessa þá, sem þig blessa, og bölva þeim sem þér bölva, og af þér skulu allar ættkvíslir jarðarinnar blessan hljóta.4Þá lagði Abram á stað, sem Drottinn hafði sagt honum, og Lot með honum. En þá var Abram 75 ára gamall er hann fór úr Haran.5Og Abram tók Sarai konu sína og Lot bróðurson sinn og alla fjárhluti, sem þeir höfðu eignast, og þá þræla sem þeir höfðu fengið, í Haran. Og þeir lögðu á stað og héldu til Kanaanslands, og þeir komu til Kanaanslands.6Og Abram fór um landið, allt til staðarins Sikem til lundsins Mores; en þá vóru Kanaanítar í landinu.7Nú birtist Drottinn Abram og sagði til hans: þínum niðjum vil eg gefa þetta land. Og hann byggði Drottni altari þar sem hann hafði birst honum.8Eftir þetta tók hann sig upp þaðan, og fluttist til fjallanna fyrir austan Betel, og setti þar tjald sitt, svo að Betel var fyrir vestan, en Ai fyrir austan; og hann byggði þar Drottni altari og ákallaði nafn Drottins.9Og Abram færði sig smátt og smátt suðureftir.
102.) En þar gjörðist hungur í landinu; þá fór Abram til Egyptalands, til að staðnæmast þar, því í landinu (Kanaan) var mikið hallæri.11Og það skeði, þá hann á ferðinni nálgaðist Egyptaland, að hann sagði við konu sína Sarai: heyrðu! eg veit að þú ert mikið fríð kona sýnum,12það mun því fara svo, þegar egypskir sjá þig, þá munu þeir segja: þetta er hans kona; svo drepa þeir mig, en láta þig lifa.13Segðu því, að þú sért mín systir, að mér verði það að láni, og að eg megi halda lífi þín vegna.14Og það skeði, þá Abram kom til Egyptalands, sáu egypskir konuna, að hún var mjög fríð.15Og höfðingjar kóngsins sáu hana, og settu á hana mikið hól fyrir konungi; og konan var tekin í kóngsins hús.16Og kóngur sýndi Abram rausn, hennar vegna, svo hann eignaðist sauði, naut og asna, þræla og ambáttir og ösnur og úlfalda.17En Drottinn plágaði kónginn og hans hús með mikilli plágu, vegna Sarai, konu Abrams.18Þá kallaði kóngur, Abram! og mælti: því hefur þú gjört mér þetta? því sagðir þú mér ekki að hún væri þín kona?19því sagðir þú: hún er mín systir, svo eg tók hana mér fyrir konu? og sjá nú! þarna er þín kona, tak þú hana og far þú burt.20Og kóngur gaf skipun sínum mönnum honum viðvíkjandi, og þeir fóru með hann burt og hans konu og allt sem hann átti.