Um Júda og Tamar.

1Og það bar til um þetta leyti, að Júda fór frá bræðrum sínum, og lagði lag sitt við mann nokkurn í Adullam, sem hét Híra.2Þar sá Júda dóttur kanversks manns, sem hét súa, og tók hana og lagðist með henni.3Og hún varð ólétt, og fæddi son, og hann kallaði hann Ger.4Og í annað sinn varð hún ólétt og fæddi son, og kallaði nafn hans Onan,5Enn nú fæddi hún son og nefndi hann Sela; en Júda var í Kesib, þá hún fæddi hann.6Og Júda tók konu til handa sínum frumgetna syni Ger, hennar nafn var Tamar.7En Ger, Júda frumgetni son, var vondur í augsýn Drottins, og Drottinn deyddi hann.8Þá mælti Júda við Onan: leggst þú með konu bróður þíns, og ekta þú hana í stað bróður þíns, og afla þú bróður þínum afkvæmis.9En Onan vissi, að afkvæmið skyldi ei vera hans, og er hann lagðist með konu bróður síns, lét hann sæðið spillast á jörðu, svo hann gæfi ei bróður sínum afkvæmi.10Það sem hann gjörði mislíkaði Drottni, og hann deyddi hann líka.11Þá sagði Júda við Tamar, sína tengdadóttur: vert þú sem ekkja í húsi föður þíns, þangað til sonur minn Sela er fulltíða; því hann hugsaði: ske má að hann deyi líka sem bræður hans. Svo fór Tamar, og var í húsi föður síns.
12Nú líða fram stundir, þangað til dóttir Súa, kona Júda deyr, og þegar Júda sorgardagar voru liðnir, fór hann til Timnat að klippa sauði sína, hann og vinur hans Híra frá Adullam.13Þetta frétti Tamar, henni var sagt: sjá! tengdafaðir þinn fer til Timnat að klippa sauði sína.14Þá fór hún úr sínum ekkjubúningi, vafði um sig skikkju og huldi sig og settist við port borgarinnar Enaim sem er á veginum til Timnat; því hún sá að Sela var orðin fulltíða, og hún var þó ekki honum gefin fyrir konu.15Og Júda sá hana og hélt að hún væri skækja, því hún hafði hulið sitt andlit;16og hann vék til hennar á leiðinni og mælti: leyf mér að leggjast með þér! því hann vissi ekki að hún var hans tengdadóttir. Hún svaraði: hvað viltu gefa mér fyrir að þú leggist með mér?17Og hann mælti: eg skal senda þér geithafur af hjörðinni. Hún svaraði: fáðu mér þá pant þangað til þú sendir hann.18Hvaða pant á eg að fá þér? sagði hann, og hún svaraði: þinn signetshring, snýtuklút, og stafinn sem þú hefur í hendinni. Og hann fékk henni þetta, og lagðist með henni, og hún fékk getnað af honum.19Og hún stóð upp, gekk burt og lagði af sér skýluna, og fór aftur í sinn ekkjubúning.20Og Júda sendi geithafurinn með vin sínum frá Adullam, svo að hann fengi aftur pantinn af hendi konunnar; en hann fann hana ekki.21Og hann spurði fólk í því plássi, og sagði: hvar er skækjan í Enaim við veginn? og þeir sögðu: þar hefur ekki skækja verið.22Hann kom þá aftur til Júda og mælti: ekki fann eg hana og menn í því plássi sögðu: þar hefur engin skækja verið.23Þá mælti Júda: haldi hún því sem hún hefur, að vér verðum ekki fyrir vansa; sjá! eg sendi geithafurinn, eins og eg lofaði, og þú fannst hana ekki.24En að liðnum þremur mánuðum var Júda sagt: Tamar tengdadóttir þín hefur hórast, og af losæði sínu er hún orðin þunguð. Þá mælti Júda: farið burt með hana, svo að hún veðri brennd!25En er hún var útleidd, gjörði hún tengdaföður sínum þessa orðsending: af þeim manni, sem þetta á, hefi eg fengið getnað, kannastu við, kæri! hver muni eiga þennan signetshring, klútinn og stafinn!26Júda kannaðist þá við þetta og mælti: hún hefur betri málstað en eg, því eg hefi ekki gift hana syni mínum Sela. Og hann kenndi hennar ekki upp frá því.27En er hún skyldi fæða, sjá! þá gekk hún með tvíbura.28Og það skeði, að í fæðingunni kom fram höndin á öðru barninu, og ljósmóðirin batt um hana rauðum þræði og sagði: þessi fæddist fyrr,29En svo fór að barnið tók að sér höndina, og í því fæddist bróðirinn, og hún mælti: því brúkar þú ofbeldi? ofbeldið bitni á þér! og hann var kallaður Peres (víkingur).30Þar eftir fæddist bróðirinn, um hvers hönd rauði þráðurinn var; hann nefndu menn Sara (upphaf).