1.) Turninn mikli. 2.) Tungur blandast. 3.) Sems ættartal.

11.) Og öll jörðin hafði eitt mál og eitt tal.2Og það skeði, þá þeir komu að austan, þá fundu þeir mikla velli í landinu Sinear og tóku sér þar bústað.3Þá sögðu þeir hver við annan: vel og gott! vér skulum elta tígulsteina og herða í eldi, og tígulsteinarnir urðu þeim að grjóti, og jarðarlím að kalki.4Og þeir sögðu: hananú! vér viljum byggja oss borg og turn sem taki upp í himininn, vér skulum gjöra oss minnismerki, að vér ekki tvístrumst um alla jörðina.5Þá kom Drottinn niður að sjá borgina og turninn, sem mannanna synir (mennirnir) byggðu.6Og Drottinn mælti: þetta er ein þjóð sem hefir eina tungu, og þetta hafa þeir byrjað að gjöra; og nú verður þeim ekkert fyrirmunað að gjöra sem þeir hugsa sér.
72.) Vel og gott! vér viljum niðurstíga og villa þar þeirra tungumál, svo enginn skilji annan.8Og Drottinn tvístraði þeim þaðan út um alla jörðina og þeir hættu að byggja borgina.9Því heitir hún Babel, að þar villti Drottinn tungumál allrar jarðarinnar, og þaðan sundurdreifði hann þeim um alla jörðina.
103.) Þetta er ættartal Sems. Sem var hundrað ára gamall þá hann gat Arfaksad, tveim árum eftir flóðið.11Og Sem lifði eftir að hann gat Arfaksad 5 hundruð ár, og átti sonu og dætur.12Og Arfaksad hafði lifað 35 ár þá hann gat Sala.13Og Arfaksad lifði, eftir að hann gat Sala, 4 hundruð og þrjú ár, og átti syni og dætur.14Og Sala var 30 ára gamall þegar hann gat Eber,15og lifði eftir getnað Ebers 4 hundruð og þrjú ár; og átti syni og dætur.16Og Eber var 34 ára þá hann gat Peleg,17og þar eftir lifði hann 4 hundruð og þrjátíu ár; og átti syni og dætur.18Og Peleg lifði þrjátíu ár, þá hann gat Regu;19og Peleg lifði eftir að hann gat Regu tvö hundruð og níu ár, og átti syni og dætur.20Og Regu var 32ja ára þá hann gat Serug.21Og Regu lifði, eftir að hann gat Serug, tvö hundruð og sjö ár, og átti syni og dætur.22Og Serug var 30 ára þá hann gat Nahor.23Og Serug lifði, eftir Nahors getnað tvö hundruð ár, og átti syni og dætur.
24Og Nahor var tuttugu og níu ára þá hann gat Tara;25Og Nahor lifði eftir að hann gat Tara, hundrað og nítján ár, og átti syni og dætur,26og Tara lifði 70 ár, þá hann gat Abram, Nahor og Haran.27Og þetta er saga Taras: Tara gat Abram, Nahor og Haran, og Haran gat Lot,28og Haran dó á undan Tara föður sínum, í sínu föðurlandi, í Ur í Kaldea.29Og Abram og Nahor tóku sér konur; Abrams kona hét Sarai, en Nahors kona Milka, dóttir Harans, föður Milku, föður Istu;30en Sarai var óbyrja, hún átti engin börn.31Þá tók Tara Abram sinn son, og Lot Haransson, sonarson sinn, og Sarai sína tengdadóttur, konu Abrams, sonar síns, og lagði á stað með þau frá Ur í Kaldeu, áleiðis til Kanaanslands; og þau komust til Haran og settust þar að.32Og dagar Taras voru tvö hundruð og fimm ár. Þá dó Tara í Haran.

V. 4. Minnismerki: aðrir nafn.