Styrktarvefsíður Hins íslenska biblíufélags halda utan um nöfn styrkveitenda og safna nauðsynlegum gögnum til að hægt sé að ganga frá greiðslu til félagsins. Kortanúmerum og öðrum tengdum fjárhagsupplýsingum er ekki safnað af Hinu íslenska biblíufélagi, heldur er notast við greiðslusíðu þjónustuaðila til að ganga frá greiðslu. Ef þess er óskað er hægt er að leita til Hins íslenska biblíufélags og fara fram á að öllum persónugreinanlegum gögnum úr styrkveitendalista sé eytt.
Skilmálar um vefsafnanir
Hið íslenska biblíufélag, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Biblíufélagið notar vefsvæði sitt til að óska eftir stuðningi við starfsemi félagsins. Áskilinn er réttur til að staðfesta stuðning við félagið símleiðis.
Um stuðningsgreiðslur
Allur stuðningur sem greiddur er með greiðslukorti í gegnum vefsíðuna er afgreiddur af greiðslusíðu þjónustuaðila. Hægt er að draga stuðningsgreiðslu til baka í allt að 14 daga frá því að greiðslan var innt af hendi.
Stuðningsgreiðslur til Hins íslenska biblíufélags bera ekki virðisaukaskatt, enda er ekki um að ræða greiðslu fyrir vöru eða þjónustu.
Bakhjarl Biblíunnar
Bakhjarlar Biblíunnar styðja við starf félagsins með föstum mánaðarlegum greiðslum. Ef þú þarft að breyta eða hætta stuðningi af einhverjum ástæðum, er auðvelt að senda tölvupóst á hib@biblian.is og við munum þá snarlega fella niður mánaðarlegar skuldfærslu.
Félagsgjald Biblíufélagsins
Félagsgjald Biblíufélagsins er ákveðið árlega á aðalfundi félagsins. Ef þú vilt segja þig úr félaginu af einhverjum ástæðum, er auðvelt að senda tölvupóst á hib@biblian.is og við munum þá snarlega fella niður árlega skuldfærslu félagsgjalds.
Trúnaður
Félagið mun ekki afhenda upplýsingar sem styrkveitandi gefur upp í tengslum við stuðninginn án samráðs við styrkveitanda.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.