Tólf steinar uppreistir.

1Þegar allt fólkið var yfir Jórdan komið talaði Drottinn þannig til Jósúa:2takið 12 menn, einn mann af hvörri ættkvísl,3og bjóðið þeim: takið upp tólf steina úr Jórdan miðri, úr þeim stað, sem prestarnir stóðu og berið þá yfir um ána með yður og þangað hvar þér hafið náttstað.4Þá kallaði Jósúa tólf menn, sem hann tilkvaddi af Ísraelsbörnum, einn af hvörri ættkvísl,5og sagði þeim: gangið yfir um á undan örk Drottins yðar Guðs mitt út í Jórdan og taki hvör yðar stein sér á herðar, eins og margar eru kynkvíslir Ísraelsbarna,6svo þeir séu minnismerki hjá yður, svo að nær niðjar yðar spyrja á síðan hvað steinar þessir merki,7þá skuluð þér svara þeim, það, að Jórdanarvötn klufust fyrir sáttmálsörk Drottins; þegar hún fór yfir um Jórdan, klufust Jórdanarvötn; og steinar þessir skulu vera Ísraelsniðjum til ævarandi minningar.8Ísraelsbörn gjörðu sem Jósúa lagði þeim fyrir, og tóku upp úr miðri Jórdan tólf steina eftir ættkvíslatölu Ísraelsbarna, eins og Drottinn hafði boðið Jósúa, og fluttu þá með sér þangað sem þeir höfðu náttstað, og létu þá þar eftir.9En Jósúa reisti tólf steina í miðri Jórdan, þar sem prestarnir, þeir er sáttmálsörkina báru, höfðu staðið; þar eru þeir enn í dag. *)10En prestarnir, sem örkina báru, stóðu í Jórdan miðri, þangað til allt var gjört, sem Drottinn hafði boðið Jósúa að kunngjöra fólkinu, samkvæmt öllu því er Móses hafði boðið Jósúa; og fólkið flýtti sér yfir um.11Þegar allur lýðurinn var yfir um kominn, þá fór og örk Drottins yfir um, og prestarnir í augsýn fólksins;12og Rúbens, Gaðs og hálf Manassis kynkvísl gengu á undan Ísraelsbörnum búnir til bardaga, eins og Móses hafði boðið þeim;13fjörutygi þúsundir hertygjaðra manna gengu fram á Jeríkósvöllu í augsýn Drottins til bardaga.14Þannig gjörði Drottinn Jósúa á þeim degi veglegan fyrir augum allra Ísraelsmanna; þeir virtu hann alla ævi hans, eins og þeir höfðu virt Mósen.
15Því næst sagði Drottinn til Jósúa:16skipa þú prestunum, sem bera vitnisburðarörkina **), að stíga upp úr Jórdan;17Jósúa bauð prestunum og sagði: stígið upp úr Jórdan,18og jafnsnart og prestarnir sem báru sáttmálsörk Drottins, vóru komnir upp úr Jórdan, og höfðu stigið fótum á þurrt land, féll Jórdanar vatn aftur í sinn farveg, og hún varð, sem áður, bakkafull.19Það var á tíunda degi hins fyrsta mánaðar, að fólkið fór yfir um Jórdan, og slógu tjöldum í Gilgal yst fyrir austan Jeríkó.20Þar í Gilgal reisti Jósúa þá tólf steina, sem þeir höfðu tekið úr Jórdan;21sagði hann þá til Ísraelsbarna: þegar niðjar yðar á síðan spyrja feður sína, og segja: hvað merkja þessir steinar?22skuluð þér segja þeim: Ísrael gekk á þurru yfir þessa Jórdan;23því Drottinn yðar Guð þurrkaði fyrir yður vötn Jórdanar, þar til þér voruð komnir yfir um, eins og Drottinn yðar Guð gjörði forðum við Hafið rauða, er hann þurrkaði það fyrir oss, meðan vér fórum yfir um það;24svo að allar þjóðir á jörðu þekki hönd Drottins, að hún er sterk, svo að þér óttist Drottin yðar Guð alla daga.

*) Nefnil. þegar Jósúabók var rituð. **) Þ. e. örkina sem boðorðatöflurnar voru í.