1Davíð flutti Drottni orð þessa ljóðs, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls.2Hann mælti: Drottinn er bjarg mitt og vígi, hann er sá sem hjálpar mér.3Guð minn er hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín og hæli, frelsari minn, sem frelsar mig frá ofbeldi.4Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og ég frelsast frá óvinum mínum.5Brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig,6snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig.7Í angist minni kallaði ég á Drottin, og til Guðs míns hrópaði ég. Í helgidómi sínum heyrði hann raust mína, óp mitt barst til eyrna honum.8Jörðin bifaðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifuðust, því að hann var reiður.9Reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum.10Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans.11Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins.12Hann gjörði myrkrið í kringum sig að skýli, regnsortann og skýþykknið.13Frá ljómanum fyrir honum flugu hagl og eldglæringar.14Drottinn þrumaði af himni, hinn hæsti lét raust sína gjalla.15Hann skaut örvum sínum og tvístraði þeim, lét eldingarnar leiftra og hræddi þá.16Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar fyrir ógnum Drottins, fyrir andgustinum úr nösum hans.17Hann seildist niður af hæðum og greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum.18Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari.19Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð.20Hann leiddi mig út á víðlendi, hann frelsaði mig, af því að hann hafði þóknun á mér.21Drottinn fór með mig eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna galt hann mér,22því að ég hefi varðveitt vegu Drottins og hefi ekki reynst ótrúr Guði mínum.23Allar skipanir hans hefi ég fyrir augum og frá boðorðum hans hefi ég ekki vikið.24Ég var lýtalaus fyrir honum og gætti mín við misgjörðum.25Drottinn galt mér eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna fyrir augliti hans.26Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur,27gagnvart hreinum hreinn, en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn.28Þú hjálpar þjáðum lýð, en gjörir alla hrokafulla niðurlúta.29Já, þú ert lampi minn, Drottinn, Guð minn lýsir mér í myrkrinu.30Fyrir þína hjálp hleyp ég yfir virkisgrafir, fyrir hjálp Guðs míns stekk ég yfir borgarveggi.31Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er skírt. Skjöldur er hann öllum þeim, sem leita hælis hjá honum.32Því að hver er Guð, nema Drottinn, og hver er hellubjarg, utan vor Guð?33Sá Guð, sem gyrðir mig styrkleika og gjörir veg minn sléttan.34Hann gjörir fætur mína sem hindanna og veitir mér fótfestu á hæðunum.35Hann æfir hendur mínar til hernaðar, svo að armar mínir benda eirbogann.36Þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns, og lítillæti þitt gjörði mig mikinn.37Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum og ökklar mínir riðuðu ekki.38Ég elti óvini mína og náði þeim, og sneri ekki aftur fyrr en ég hafði gjöreytt þeim.39Ég gjöreyddi þeim og molaði þá sundur, svo að þeir risu ekki upp framar og hnigu undir fætur mér.40Þú gyrtir mig styrkleika til ófriðarins, beygðir fjendur mína undir mig.41Þú lést mig sjá bak óvina minna, þeim eyddi ég, sem hata mig.42Þeir hrópuðu, en enginn kom til hjálpar, þeir hrópuðu til Drottins, en hann svaraði þeim ekki.43Ég muldi þá sem mold á jörð, tróð þá fótum sem skarn á strætum.44Þú frelsaðir mig úr fólkorustum, gjörðir mig að höfðingja þjóðanna. Lýður, sem ég þekkti ekki, þjónar mér.45Framandi menn smjaðra fyrir mér, óðara en þeir heyra mín getið, hlýða þeir mér.46Framandi menn dragast upp og koma skjálfandi fram úr fylgsnum sínum.47Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarg, og hátt upp hafinn sé Guð hjálpræðis míns!48Þú Guð, sem veittir mér hefndir og braust þjóðir undir mig,49sem hreifst mig úr höndum óvina minna og hófst mig yfir mótstöðumenn mína. Frá ójafnaðarmönnum frelsaðir þú mig.50Fyrir því vil ég vegsama þig, Drottinn, meðal þjóðanna og lofsyngja þínu nafni.51Hann veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu.