1Þú skalt ekki fara með lygikvittu. Þú skalt ekki leggja lið þeim, er með rangt mál fer, til að gjörast ljúgvottur.2Þú skalt ekki fylgja fjöldanum til illra verka. Ef þú átt svör að veita í sök nokkurri, þá skalt þú ekki á eitt leggjast með margnum til þess að halla réttu máli.3Ekki skalt þú vera hliðdrægur manni í máli hans, þótt fátækur sé.4Ef þú finnur uxa óvinar þíns eða asna hans, sem villst hefir, þá fær þú honum hann aftur.5Sjáir þú asna fjandmanns þíns liggja uppgefinn undir byrði sinni, þá skalt þú hverfa frá því að láta hann einan. Vissulega skalt þú hjálpa honum til að spretta af asnanum.6Þú skalt ekki halla rétti fátæks manns, sem hjá þér er, í máli hans.7Forðastu lygimál og ver eigi valdur að dauða saklauss manns og réttláts, því að eigi mun ég réttlæta þann, sem með rangt mál fer.8Eigi skalt þú mútu þiggja, því að mútan gjörir skyggna menn blinda og umhverfir máli hinna réttlátu.9Eigi skalt þú veita útlendum manni ágang. Þér vitið sjálfir, hvernig útlendum manni er innanbrjósts, því að þér voruð útlendingar í Egyptalandi.10Sex ár skalt þú sá jörð þína og safna gróða hennar,11en sjöunda árið skalt þú láta hana liggja ónotaða og hvílast, svo að hinir fátæku meðal fólks þíns megi eta. Það sem þeir leifa, mega villidýrin eta. Eins skalt þú fara með víngarð þinn og olíutré þín.12Sex daga skalt þú verk þitt vinna, en sjöunda daginn skalt þú halda heilagt, svo að uxi þinn og asni geti hvílt sig, og sonur ambáttar þinnar og útlendingurinn megi endurnærast.13Allt sem ég hefi sagt yður, skuluð þér halda. Nafn annarra guða megið þér ekki nefna. Eigi skal það heyrast af þínum munni.14Þrisvar á ári skalt þú mér hátíð halda.15Þú skalt halda hátíð hinna ósýrðu brauða. Sjö daga skalt þú eta ósýrt brauð, eins og ég hefi boðið þér, á ákveðnum tíma í abíb-mánuði, því að í þeim mánuði fórst þú út af Egyptalandi. Enginn skal koma tómhentur fyrir mitt auglit.16Þú skalt halda hátíð frumskerunnar, frumgróðans af vinnu þinni, af því sem þú sáðir í akurinn. Þú skalt halda uppskeruhátíðina við árslokin, er þú alhirðir afla þinn af akrinum.17Þrem sinnum á ári skal allt þitt karlkyn birtast frammi fyrir herra Drottni.18Eigi skalt þú fram bera blóð fórnar minnar með sýrðu brauði, og feitin af hátíðafórn minni skal ekki liggja til morguns.19Hið fyrsta, frumgróða jarðar þinnar, skalt þú færa til húss Drottins Guðs þíns. Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar.20Sjá, ég sendi engil á undan þér til að varðveita þig á ferðinni og leiða þig til þess staðar, sem ég hefi fyrirbúið.21Haf gát á þér fyrir honum og hlýð hans röddu, móðga þú hann ekki, því að hann mun ekki fyrirgefa misgjörðir yðar, því að mitt nafn er í honum.22En ef þú hlýðir röddu hans rækilega og gjörir allt, sem ég segi, þá skal ég vera óvinur óvina þinna og mótstöðu veita þínum mótstöðumönnum.23Engill minn skal ganga á undan þér og leiða þig til Amoríta, Hetíta, Peresíta, Kanaaníta, Hevíta og Jebúsíta, og ég skal afmá þá.24Þú skalt ekki tilbiðja þeirra guði og ekki dýrka þá og ekki fara að háttum þeirra, heldur skalt þú gjöreyða þeim og með öllu sundur brjóta merkissteina þeirra.25Þér skuluð dýrka Drottin, Guð yðar, og hann mun blessa brauð þitt og vatn, og ég skal bægja sóttum burt frá þér.26Engin vanbyrja og engin óbyrja skal finnast í landi þínu. Ég skal fylla tal daga þinna.27Ógn mína mun ég senda á undan þér og gjöra felmtsfullar allar þær þjóðir, sem þú kemur til, og alla óvini þína mun ég flýja láta fyrir þér.28Ég skal senda skelfingu á undan þér, og hún skal í burt stökkva Hevítum, Kanaanítum og Hetítum úr augsýn þinni.29Þó vil ég ekki stökkva þeim burt úr augsýn þinni á einu ári, svo að landið fari ekki í auðn og villidýrunum fjölgi ekki þér til meins.30Smám saman vil ég stökkva þeim burt úr augsýn þinni, uns þér fjölgar og þú eignast landið.31Og ég vil setja landamerki þín frá Rauðahafinu til Filistahafs, og frá eyðimörkinni til Fljótsins. Ég mun gefa íbúa landsins á vald yðar, og þú skalt stökkva þeim burt undan þér.32Þú skalt eigi gjöra sáttmála við þá eða þeirra guði.33Þeir skulu ekki búa í landi þínu, svo að þeir komi þér ekki til þess að syndga gegn mér, því ef þú dýrkar þeirra guði, mun það verða þér að tálsnöru.

23.1-3,6 Dæma réttlátlega 2Mós 20.16+ ; 5Mós 1.16-17; 16.18-20
23.4-5 Dýr á slæðingi 5Mós 22.1-4
23.8 Múta 5Mós 27.25; 1Sam 8.3; Slm 15.5
23.9 Aðkomumanni 2Mós 22.20+
23.10-11 Hvíldarár 3Mós 25.1+
23.12 Sjöundi dagurinn 2Mós 20.8+
23.13 Nafn annarra guða Jós 23.7
23.15 Ósýrt brauð 2Mós 12.15+
23.16 Hátíð kornuppskerunnar 2Mós 34.22; 3Mós 23.15-21; 5Mós 16.9-11; Tób 2.1; 2Makk 12.32; Post 2.1 – uppskeruhátíð 2Mós 34.22; 3Mós 23.34-43; 4Mós 29.12-38; 5Mós 16.13-15; Jóh 7.37
23.17 Þrisvar á ári 2Mós 23.14; 34.23; 5Mós 16.16
23.18 Blóð fórnar 2Mós 34.25
23.19 Frumgróðafórn 2Mós 34.26; 5Mós 26.1-11 – kið 2Mós 34.26; 5Mós 14.21
23.20 Engill 2Mós 33.2; 1Mós 24.7; 4Mós 20.16; Mal 3.1; Tób 5
23.24 Ekki falla fram 2Mós 20.5 – brjóta gersamlega 2Mós 34.13; 4Mós 33.52; 5Mós 7.5; 1Kon 15.12-13; 2Kon 23
23.28 Hugleysi 5Mós 7.20; Jós 24.12; SSal 12.8
23.33 Tálsanara 2Mós 34.12; 5Mós 7.16; Jós 23.13; Slm 106.36