1Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsæld er betri en silfur og gull.2Ríkur og fátækur hittast, Drottinn skóp þá alla saman.3Vitur maður sér ógæfuna og felur sig, en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.4Laun auðmýktar, ótta Drottins, eru auður, heiður og líf.5Þyrnar, snörur, eru á vegi hins undirförula, sá sem varðveitir líf sitt, kemur ekki nærri þeim.6Fræð þú sveininn um veginn, sem hann á að halda, og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja.7Ríkur maður drottnar yfir fátækum, og lánþeginn verður þræll lánsalans.8Sá sem ranglæti sáir, uppsker óhamingju, og sproti heiftar hans verður að engu.9Sá sem er góðgjarn, verður blessaður, því að hann gefur hinum fátæka af brauði sínu.10Rek þú spottarann burt, þá fer deilan burt, og þá linnir þrætu og smán.11Drottinn elskar hjartahreinan, konungurinn er vinur þess, sem hefir yndisþokka á vörum sér.12Augu Drottins varðveita þekkinguna, en orðum svikarans kollvarpar hann.13Letinginn segir: Ljón er úti fyrir, ég kynni að verða drepinn úti á götunni.14Djúp gröf er munnur léttúðarkvenna, sá sem verður fyrir reiði Drottins, fellur í hana.15Ef fíflska situr föst í hjarta sveinsins, þá mun vöndur agans koma henni burt þaðan.16Að kúga fátækan eykur efni hans, að gefa ríkum manni verður til þess eins að gjöra hann snauðan.17Hneig eyra þitt og heyr orð hinna vitru, og snú athygli þinni að kenning minni,18því að það er fagurt, ef þú geymir þau í brjósti þér, ef þau eru öll til taks á vörum þínum.19Til þess að traust þitt sé á Drottni, fræði ég þig í dag, já þig.20Vissulega skrifa ég kjarnyrði handa þér, með heilræðum og fræðslu,21til þess að ég kunngjöri þér sannleika, áreiðanleg orð, svo að þú flytjir þeim áreiðanleg orð, er senda þig.22Ræn eigi hinn lítilmótlega, af því að hann er lítilmótlegur, og knosa eigi hinn volaða í borgarhliðinu,23því að Drottinn mun flytja mál þeirra og ræna þá lífinu, er þá ræna.24Legg eigi lag þitt við reiðigjarnan mann og haf eigi umgengni við fauta,25til þess að þú venjist eigi á háttsemi hans og sækir snöru fyrir líf þitt.26Ver þú ekki meðal þeirra, er ganga til handsala, meðal þeirra, er ganga í ábyrgð fyrir skuldum,27því þegar þú ekkert hefir að borga með, viltu þá láta taka sængina undan þér?28Fær þú eigi úr stað hin fornu landamerki, þau er feður þínir hafa sett.29Sjáir þú mann vel færan í verki sínu, hann getur boðið konungum þjónustu sína, eigi mun hann bjóða sig ótignum mönnum.

22.2 Ríkur og fátækur Okv 13.23; 14.31; sbr Okv 10.15+ – Drottinn skapaði þá Okv 29.13; Job 31.15; SSal 6.7
22.4 Auðmýkt Okv 11.2+ – ótti Drottins Okv 10.27+
22.7 Þræll Neh 5.5-11; sbr 3Mós 25.39+
22.9 Örlæti Okv 14.21+ – blessun Okv 10.6+
22.11 Konungshylli Okv 14.35; 16.13; sbr Okv 24.21
22.14 Framandi konur Okv 2.16+
22.15 Vöndur agans Okv 13.24+
22.19 Treysta Drottni Okv 3.5-6+
22.23 Flytja mál þeirra Okv 23.11+
22.26 Ábyrgð Okv 6.1-5+
22.28 Virða landamæri Okv 15.25; 23.10,11; Job 24.2+