1Filistar höfðu lagt til orustu við Ísrael. Höfðu Ísraelsmenn flúið fyrir Filistum, og lágu margir fallnir á Gilbóafjalli.2Filistar eltu Sál og sonu hans og felldu Jónatan, Abínadab og Malkísúa, sonu Sáls.3Var nú gjör hörð atlaga að Sál, og höfðu nokkrir bogmannanna komið auga á hann. Varð hann þá mjög hræddur við bogmennina.4Þá sagði Sál við skjaldsvein sinn: Bregð þú sverði þínu og legg mig í gegn með því, svo að óumskornir menn þessir komi ekki og fari háðulega með mig. En skjaldsveinninn vildi ekki gjöra það, því að hann var mjög hræddur. Þá tók Sál sverðið og lét fallast á það.5Og er skjaldsveinninn sá, að Sál var dauður, þá lét hann og fallast á sverð sitt og dó með honum.6Þannig létu þeir líf sitt, Sál, synir hans þrír og skjaldsveinn hans, allir þennan sama dag.7Er Ísraelsmenn, þeir er bjuggu hinumegin við sléttlendið og þeir er bjuggu hinumegin Jórdanar, sáu, að Ísraelsmenn voru flúnir, og Sál og synir hans fallnir, þá yfirgáfu þeir borgir sínar og lögðu á flótta. Og Filistar komu og settust að í þeim.8Daginn eftir komu Filistar að ræna valinn. Fundu þeir þá Sál og sonu hans þrjá fallna á Gilbóafjalli.9Hjuggu þeir af honum höfuðið og flettu hann herklæðum og gjörðu sendimenn um allt Filistaland til þess að flytja skurðgoðum sínum og lýðnum gleðitíðindin.10Og þeir lögðu vopn hans í hof Astörtu, en lík hans hengdu þeir upp á borgarmúrinn í Bet San.11En er íbúarnir í Jabes í Gíleað fréttu, hvernig Filistar höfðu farið með Sál,12þá tóku sig til allir vopnfærir menn, gengu alla nóttina og tóku lík Sáls og lík sona hans ofan af borgarmúrnum í Bet San. Síðan héldu þeir heim til Jabes og brenndu þar líkin.13Því næst tóku þeir bein þeirra og grófu þau undir tamarisktrénu í Jabes og föstuðu í sjö daga.

31.1 Filistar fegn Ísrael 1Sam 28.1,4
31.2 Synir Sáls 1Sam 14.49
31.4 Rektu mig í gegn Dóm 9.54 – skjaldsveinninn vildi ekki 1Sam 24.7; 26.9
31.5 Dauði Sáls 1Sam 26.10
31.9 Höfuð Sáls 1Sam 17.54
31.10 Vopn í hofi 1Sam 21.9
31.11 Íbúar Jabes 1Sam 11.1-11
31.13 Bein þeirra 2Sam 21.12-14