1Eftir þetta sá ég sýn: Opnar dyr á himninum og raustin hin fyrri, er ég heyrði sem lúður gylli, talaði við mig og sagði: Stíg upp hingað, og ég mun sýna þér það, sem verða á eftir þetta.2Jafnskjótt var ég hrifinn í anda. Og sjá: Hásæti stóð á himni og einhver sat í hásætinu.3Sá, er þar sat, sýndist líkur jaspissteini og sardissteini og regnbogi var kringum hásætið á að sjá sem smaragður.4Umhverfis hásætið voru tuttugu og fjögur hásæti, og í þeim hásætum sá ég sitja tuttugu og fjóra öldunga, skrýdda hvítum klæðum og á höfðum þeirra gullkórónur.5Út frá hásætinu gengu eldingar, dunur og þrumur, og sjö eldblys brunnu frammi fyrir hásætinu. Það eru þeir sjö andar Guðs.6Og frammi fyrir hásætinu var sem glerhaf, líkt kristalli. Fyrir miðju hásætinu og umhverfis hásætið voru fjórar verur alsettar augum í bak og fyrir.7Fyrsta veran var lík ljóni, önnur veran lík uxa, þriðja veran hafði ásjónu sem maður og fjórða veran var lík fljúgandi erni.8Verurnar fjórar höfðu hver um sig sex vængi og voru alsettar augum, allt um kring og að innanverðu. Og eigi láta þær af, dag og nótt, að segja: Heilagur, heilagur, heilagur, Drottinn Guð, hinn alvaldi, hann sem var og er og kemur.9Og þegar verurnar gjalda honum, sem í hásætinu situr, dýrð og heiður og þökk, honum sem lifir um aldir alda,10þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir honum, sem í hásætinu situr, og tilbiðja hann, sem lifir um aldir alda, og varpa kórónum sínum niður fyrir hásætinu og segja:11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn, því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

4.1 Opnar dyr á himninum Esk 1.1; Mrk 1.10; Jóh 1.51; Opb 19.11
4.2 Hásæti Guðs 1Kon 22.19; Slm 47.9; Jes 6.1; Esk 1.26-27; 10.1; Sír 1.8; Opb 4.9; 5.1,7,13; 6.16; 7.10; 19.4; 21.5
4.3 Sbr Esk 1.26-28
4.4 Öldugar Ísraels 2Mós 3.16; 24.1,9; 4Mós 11.16; 1Kon 8.1 – skrýddir hvítum klæðum Opb 3.4+ – kóróna Opb 3.11
4.5 Eldingar, dunur … 2Mós 19.16; Esk 1.13; Opb 8.5; 11.19; 16.18 – eldblys Esk 1.13; Sak 4.2 – sjö andar Opb 1.4+
4.6 Glerhaf Opb 15.2; sbr 2Mós 24.10; Esk 1.22 – fjórar verur Esk 1.5-21; 10.14; Opb 19.4
4.8 Sex vængir Jes 6.2 – alsettar augum Esk 1.18; 10.12 – heilagur, heilagur, heilagur Jes 6.3 – hinn alvaldi Opb 1.8+ – sá, sem var og er og kemur Opb 1.4+
4.9 Hásæti Guðs Opb 4.2+ – hann sem lifir Dan 4.31,34; 12.7