1Nokkrum dögum síðar kom hann aftur til Kapernaum. Þegar fréttist, að hann væri heima,2söfnuðust þar svo margir, að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og hann flutti þeim orðið.3Þá er komið með lama mann, og báru fjórir.4Þegar þeir gátu ekki komist með hann til Jesú fyrir fólkinu, rufu þeir þekjuna uppi yfir honum, grófu þar í gegn og létu síga ofan rekkjuna, sem hinn lami lá í.5Þá er Jesús sér trú þeirra, segir hann við lama manninn: Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.6Þar sátu nokkrir fræðimenn og hugsuðu í hjörtum sínum:7Hví mælir þessi maður svo? Hann guðlastar. Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?8Samstundis skynjaði Jesús í anda sínum, að þeir hugsuðu þannig með sér, og hann sagði við þá: Hví hugsið þér slíkt í hjörtum yðar?9Hvort er auðveldara að segja við lama manninn: Syndir þínar eru fyrirgefnar, eða segja: Statt upp, tak rekkju þína og gakk?10En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir á jörðu,11þá segi ég þér og nú talar hann við lama manninn: Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín.12Hann stóð upp, tók jafnskjótt rekkjuna og gekk burt í allra augsýn, svo að allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð og sögðu: Aldrei áður höfum vér þvílíkt séð.13Aftur fór hann út og gekk með vatninu, og allur mannfjöldinn kom til hans, og hann kenndi þeim.14Og er hann gekk þar, sá hann Leví Alfeusson sitja hjá tollbúðinni, og hann segir við hann: Fylg þú mér! Og hann stóð upp og fylgdi honum.15Svo bar við, að Jesús sat að borði í húsi hans, og margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans, en margir fylgdu honum.16Fræðimenn af flokki farísea, sem sáu, að hann samneytti bersyndugum og tollheimtumönnum, sögðu þá við lærisveina hans: Hann etur með tollheimtumönnum og bersyndugum.17Jesús heyrði þetta og svaraði þeim: Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir, sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara.18Lærisveinar Jóhannesar og farísear héldu nú föstu. Þá koma menn til Jesú og spyrja hann: Hví fasta lærisveinar Jóhannesar og lærisveinar farísea, en þínir lærisveinar fasta ekki?19Jesús svaraði þeim: Hvort geta brúðkaupsgestir fastað, meðan brúðguminn er hjá þeim? Alla þá stund, sem brúðguminn er hjá þeim, geta þeir ekki fastað.20En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta, á þeim degi.21Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa.22Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir vínið belgina, og vínið ónýtist og belgirnir. Nýtt vín er látið á nýja belgi.23Svo bar við, að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi, og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni.24Farísearnir sögðu þá við hann: Lít á, hví gjöra þeir það, sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?25Hann svaraði þeim: Hafið þér aldrei lesið, hvað Davíð gjörði, er honum lá á, þegar hann hungraði og menn hans?26Hann fór inn í Guðs hús, þegar Abíatar var æðsti prestur, og át skoðunarbrauðin, en þau má enginn eta nema prestarnir, og gaf líka mönnum sínum.27Og hann sagði við þá: Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins.28Því er Mannssonurinn einnig herra hvíldardagsins.

2.1-12 Hlst. Matt 9.1-8; Lúk 5.17-26
2.1 Kapernaúm Matt 4.13+ – heima Mrk 1.29
2.2 Flutti orðið Post 4.29,31; 8.25; sbr Mrk 1.4+
2.5 Trú Mrk 4.40; 11.23 – og lækning Mrk 5.34,36; 9.23; 10.52 – syndir fyrirgefnar Lúk 7.48
2.7 Guðlasta Matt 9.3+ – Guð einn fyrirgefur Slm 103.3; Jes 43.25; 1Jóh 1.9
2.8 Skynjaði hugsanir þeirra Matt 12.25 – hví? Matt 16.8
2.10 Mannssonurinn Matt 8.20+
2.12 Lofa Guð Matt 5.16; 9.8+ ; Lúk 2.20+ ; Jóh 12.28; 13.31-32; 14.13; 17.1; 21.19; Post 12.23; 13.48; Róm 15.6,9; 1Kor 6.20; 2Kor 9.13; Gal 1.24; 2Þess 3.1; 1Pét 2.12; 4.11,16; Opb 15.4 – aldrei áður … Matt 9.33
2.13-17 Hlst. Matt 9.9-13; Lúk 5.27-32
2.13 Allir komu til hans Mrk 3.7-8+ – Jesús kennir Mrk 1.22; 6.2
2.14 Leví (Matteus) Lúk 5.27,29; sbr Matt 9.9+ – fylg þú mér Matt 4.19+: 19.21 og hlst.; Mrk 1.17; 9.59
2.15 Tollheimtumenn Matt 5.46+ – syndarar Matt 11.19; Lúk 6.32-34; 7.34; 15.1-2,10; 19.7; Jóh 9.16,24
2.16 Vinur tollheimtumanna og syndara Matt 9.11; 11.19+ ; Lúk 7.34
2.17 Kominn til að … Mrk 10.45; 11.9
2.18-22 Hlst. Matt 9.14-17; Lúk 5.33-39
2.18 Lærisveinar Jóhannesar Matt 9.14+ – fasta Matt 6.16+
2.19 Brúðgumi Matt 9.15+
2.22 Gamalt og nýtt 2Kor 5.17; Gal 1.6; 4.9; Jóh 1.17
2.23-28 Hlst. Matt 12.1-8; Lúk 6.1-5
2.23 Á hvíldardegi Matt 12.1+ – tína kornöx 5Mós 23.25
2.24 Ekki leyfilegt 2Mós 34.21
2.25-26 Davíð og skoðunarbrauðin 1Sam 21.2-7
2.26 Abíatar 2Sam 15.35
2.27 Hvíldardagurinn mannsins vegna 2Mós 20.8-10; 5Mós 5.12-14; sbr 1Makk 2.39-41; Mrk 3.4; Matt 12.11-12; Lúk 14.5
2.28 Mannssonurinn Matt 8.20+