1Svo segir Drottinn við herra minn: Sest þú mér til hægri handar, þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon, drottna þú mitt á meðal óvina þinna!3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.4Drottinn hefir svarið, og hann iðrar þess eigi: Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.5Drottinn er þér til hægri handar, hann knosar konunga á degi reiði sinnar.6Hann heldur dóm meðal þjóðanna, fyllir allt líkum, hann knosar höfuð um víðan vang.7Á leiðinni drekkur hann úr læknum, þess vegna ber hann höfuðið hátt.

110.1 Sbr Matt 22.44; 26.64; Mrk 12.36; 14.62; 16.19; Lúk 20.42-43; 22.69; Post 2.34-35; Róm 8.34; 1Kor 15.25; Ef 1.20, Kól 3.1; Heb 1.3,13; 8.1; 10.12,13; 12.2 – Guð til hægri handar Slm 16.11
110.2 Frá Síon Slm 14.7; 20.3; 128.5; Jes 2.3
110.3 Dögg Jes 26.19
110.4 Sbr Jóh 12.34; Heb 5.6,10; 6.20, 7.3,17,21 – Drottinn hefir svarið Slm 89.4; 132.11 – Melúkísedek 1Mós 14.18
110.5 Á degi reiði sinnar Slm 76.8; Jes 63.6; Nah 1.6
110.6 Heldur dóm Slm 7.9