1Á þeim degi munu sjö konur þrífa í sama manninn og segja: Vér skulum sjálfar fæða oss og klæða, lát þú oss aðeins nefnast eftir nafni þínu, nem burt smán vora.2Á þeim degi mun kvistur Drottins prýðilegur og veglegur verða, og ávöxtur landsins hár og fagur fyrir þá af Ísrael, sem undan komast.3Þeir sem af lifa í Síon og eftir verða í Jerúsalem, skulu kallast heilagir, allir þeir, sem skráðir eru meðal hinna lifandi í Jerúsalem.4Þá er Drottinn hefir afþvegið óhreinindi Síonardætra og hreinsað blóð Jerúsalemborgar af henni með refsidómsanda og hreinsunaranda,5mun hann skapa ský um daga og reyk og skínandi eldsloga um nætur yfir öllum helgidóminum á Síonarfjalli og samkomunum þar, því að yfir öllu því, sem dýrlegt er, skal verndarhlíf vera.6Og laufskáli skal vera þar til forsælu fyrir hitanum á daginn og til hælis og skýlis fyrir steypiregni og skúrum.

4.2 Heilagt sæði og uppskera Jes 6.13; 53.2; 61.11; Am 9.13; Slm 72.16 – kvistur Drottins Jer 23.5; 33.15; Sak 3.8; 6.12; Slm 132.17
4.3 Þeir sem af lifa Jes 1.8-9; 6.13; 10.20-22+ ; 37.4,31,32; Jer 23.3; 31.7; 50.20; Esk 6.8-9; 11.13; Am 5.3,15; Mík 2.12; 4.7; 5.2,6; Sef 2.7,9; 3.12-13; Sak 13.8-9; 14.2; Neh 1.2; Bar 2.13 – heilagir 2Mós 19.6 – skráðir 2Mós 32.32; Esk 13.9; Mal 3.16; Slm 69.29; 87.6; Opb 13.8
4.5 Ský, reykur, eldur 2Mós 19.9,16,18; Hlj 2.3; sbr Hós 7.6
4.6 Hæli Jes 25.4; 28.15; Slm 14.6; 91.2