1Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.2Þakkið Guði guðanna, því að miskunn hans varir að eilífu,3þakkið Drottni drottnanna, því að miskunn hans varir að eilífu,4honum, sem einn gjörir mikil dásemdarverk, því að miskunn hans varir að eilífu,5honum, sem skapaði himininn með speki, því að miskunn hans varir að eilífu,6honum, sem breiddi jörðina út á vötnunum, því að miskunn hans varir að eilífu,7honum, sem skapaði stóru ljósin, því að miskunn hans varir að eilífu,8sólina til þess að ráða deginum, því að miskunn hans varir að eilífu,9tunglið og stjörnurnar til þess að ráða nóttunni, því að miskunn hans varir að eilífu,10honum, sem laust Egypta með deyðing frumburðanna, því að miskunn hans varir að eilífu,11og leiddi Ísrael burt frá þeim, því að miskunn hans varir að eilífu,12með sterkri hendi og útréttum armlegg, því að miskunn hans varir að eilífu,13honum, sem skipti Rauðahafinu sundur, því að miskunn hans varir að eilífu,14og lét Ísrael ganga gegnum það, því að miskunn hans varir að eilífu,15og keyrði Faraó og her hans út í Rauðahafið, því að miskunn hans varir að eilífu,16honum, sem leiddi lýð sinn gegnum eyðimörkina, því að miskunn hans varir að eilífu,17honum, sem laust mikla konunga, því að miskunn hans varir að eilífu,18og deyddi volduga konunga, því að miskunn hans varir að eilífu,19Síhon Amorítakonung, því að miskunn hans varir að eilífu,20og Óg konung í Basan, því að miskunn hans varir að eilífu,21og gaf land þeirra að erfð, því að miskunn hans varir að eilífu,22að erfð Ísrael þjóni sínum, því að miskunn hans varir að eilífu,23honum, sem minntist vor í læging vorri, því að miskunn hans varir að eilífu,24og frelsaði oss frá fjandmönnum vorum, því að miskunn hans varir að eilífu,25sem gefur fæðu öllu holdi, því að miskunn hans varir að eilífu.26Þakkið Guði himnanna, því að miskunn hans varir að eilífu.

136.1 Þakkið Drottni Slm 105.1+ – hann er góður Slm 106.1+
136.2-3 Guð guðanna, Drottinn drottnanna 5Mós 10.17
136.4 Hann einn Slm 72.18
136.5 Skapaði himininn 1Mós 1.1,6-8; sbr Slm 121.2+
136.6 Breiddi jörðina út Slm 24.1
136.7-9 Stóru ljósin 1Mós 1.14-18
136.10 Frumburðir Egyptalands Slm 135.8+
136.11 Leiddi Ísrael burt 2Mós 12.31,51; 13.3
136.12 Með sterkri hendi 5Mós 4.34; 5.15; 7.19; 11.2; 26.8; 1Kon 8.42; Jer 32.21; Esk 20.33-34; 2Kro 6.32
136.13 Skipti hafinu sundur 2Mós 14.21; Slm 78.13
136.14 Ganga gegnum hafið 2Mós 14.22,29
136.15 Her Faraós 2Mós 14.26-28; 15.4-5,21
136.16 Í gegnum auðnina Slm 78.52; 2Mós 15.22; 5Mós 8.2,15; Jer 2.6
136.17-20 Laust konunga Slm 135.10-11+
136.22 Erfðahlut Slm 135.12+ – Ísrael þjóni sínum Jes 44.21
136.23 Hann minntist vor Slm 106.45; sbr Lúk 1.72
136.24 Frá fjandmönnum Lúk 1.71
136.25 Fæðir hverja skepnu Slm 104.27-28; 145.15-16