1Maður hét Míka. Hann var frá Efraímfjöllum.2Hann sagði við móður sína: Þeir ellefu hundruð siklar silfurs, sem hafa verið teknir frá þér og þú hefir beðið bölbæna fyrir og talað það í mín eyru, sjá, það silfur er nú hjá mér. Ég var sá, sem tók það. Þá sagði móðir hans: Blessaður veri sonur minn af Drottni.3Síðan skilaði hann móður sinni þessum ellefu hundruð siklum silfurs aftur, og móðir hans sagði: Ég helga að öllu leyti Drottni silfrið úr minni hendi til heilla fyrir son minn, til þess að úr því verði gjört útskorið og steypt líkneski, og fyrir því fæ ég þér það nú aftur.4Er hann hafði skilað móður sinni aftur silfrinu, þá tók móðir hans tvö hundruð sikla silfurs og fékk þá gullsmið, og hann gjörði úr þeim útskorið og steypt líkneski, og það var í húsi Míka.5Þessi maður, Míka, átti goðahús, og hann bjó til hökullíkneski og húsgoð, og hann vígði einn sona sinna, og varð hann prestur hans.6Í þá daga var enginn konungur í Ísrael. Hver maður gjörði það, er honum vel líkaði.7Í Betlehem í Júda var ungur maður, af ætt Júda. Hann var levíti og var þar dvalarmaður.8Þessi maður fór burt úr borginni Betlehem í Júda til þess að fá sér dvalarvist, hvar sem hann gæti. Og hann kom upp í Efraímfjöll, til húss Míka, og ætlaði að halda áfram ferð sinni.9Míka sagði við hann: Hvaðan kemur þú? Hann svaraði honum: Ég er levíti frá Betlehem í Júda, og er ég á ferðalagi til þess að fá mér dvalarvist, hvar sem ég get.10Þá sagði Míka við hann: Sestu að hjá mér, og skaltu vera faðir minn og prestur, og ég mun gefa þér tíu sikla silfurs um árið og fullan klæðnað og viðurværi þitt. Og levítinn gekk inn til hans.11Levítinn lét sér vel líka að setjast að hjá manninum, og fór hann með hinn unga mann sem væri hann einn af sonum hans.12Og Míka setti levítann inn í embætti, og varð hinn ungi maður prestur hans og var í húsi Míka.13Þá sagði Míka: Nú veit ég, að Drottinn muni gjöra vel við mig, af því að ég hefi levíta fyrir prest.

17.1 Efraímfjöll Dóm 3.27+
17.2 Bölbænir: (1) 3Mós 5.1; 1Kon 8.31-32; Okv 29.24; (2) Sak 5.3-4 – blessun 2Sam 21.3; 1Kon 2.45
17.3 Líkneski Dóm 18.17-18; sbr 5Mós 27.15
17.6 Enginn konungur í Ísrael Dóm 18.1; 19.1; 21.25
17.7 Betlehem í Júda 1Sam 16.4; Mík 5.1; Matt 2.1; sbr Dóm 19.1 – Levíti 5Mós 18.6 – hafði komið sér fyrir 5Mós 12.12,18-19
17.10 Faðir Dóm 18.19; sbr 2Kon 2.12; 6.21; 13.14