1Bæn Habakkuks spámanns. Með strengjaleik.2Drottinn, ég hefi heyrt boðskap þinn, ég er hræddur. Drottinn, endurnýja verk þitt áður en mörg ár líða, lát það verða kunnugt áður en mörg ár líða. Minnst þú miskunnar í reiðinni.3Guð kemur frá Teman og Hinn heilagi frá Paranfjöllum. Sela. Tign hans þekur himininn, og af dýrð hans er jörðin full.4Ljómi birtist eins og sólarljós, geislar stafa út frá hendi hans, og þar er hjúpurinn um mátt hans.5Drepsóttin fer á undan honum, og sýkin fetar í fótspor hans.6Hann gengur fram, og jörðin nötrar, hann lítur upp, og þjóðirnar hrökkva við. Þá molast hin öldnu fjöll sundur, þá sökkva hinar eilífu hæðir niður, hann gengur sama veginn og forðum daga.7Ég sé tjöld Kúsans í nauðum stödd, tjalddúkarnir í Midíanslandi bifast til og frá.8Ert þú, Drottinn, reiður fljótunum, eða beinist bræði þín að þeim? Eða beinist heift þín að hafinu, úr því þú ekur með hesta þína, á sigurvagni þínum?9Ber og nakinn er bogi þinn, þú fyllir örvamæli þinn skeytum, þú klýfur vatnsföll, svo að land kemur fram.10Fjöllin sjá þig og skjálfa, steypiregn dynur yfir, hafdjúpið lætur raust sína drynja, réttir hendur sínar hátt upp.11Sól og tungl bíða kyrr í híbýlum sínum, fyrir ljósi þinna þjótandi örva, fyrir ljóma þíns leiftrandi spjóts.12Í gremi fetar þú yfir jörðina, í reiði þreskir þú þjóðirnar.13Þú fer að heiman til þess að frelsa þjóð þína, til þess að hjálpa þínum smurða. Þú brýtur niður mæninn á húsi hins óguðlega, gjörir grundvöllinn beran niður á klöpp.14Þú rekur lensur gegnum höfuðið á herforingjum hans, er geysast fram til að tvístra mér. Fagnaðaróp þeirra glymja, eins og þeir ætluðu að uppeta hina hrjáðu í leyni.15Þú fer yfir hafið með hesta þína, yfir svelg mikilla vatna.16Þegar ég heyrði það, titraði hjarta mitt, varir mínar skulfu við fregnina. Hrollur kom í bein mín, og ég varð skjálfandi á fótum, að ég yrði að bíða hörmungadagsins, uns hann rennur upp þeirri þjóð, er á oss ræðst.17Þótt fíkjutréð blómgist ekki og víntrén beri engan ávöxt, þótt gróði olíutrésins bregðist og akurlöndin gefi enga fæðu, þótt sauðfé hverfi úr réttinni og engin naut verði eftir í nautahúsunum,18þá skal ég þó gleðjast í Drottni, fagna yfir Guði hjálpræðis míns.19Drottinn Guð er styrkur minn! Hann gjörir fætur mína sem hindanna og lætur mig ganga eftir hæðunum. Til söngstjórans. Með strengjaleik.

3.1 Bæn (sem fyrirsögn) Slm 17.1; 86.1; 90.1, 102.1; 142.1
3.2 Reiði Guðs og miskunn Jes 54.8
3.3 Guð kemur 5Mós 33.2; Dóm 5.4; sbr Slm 18.8-15 – dýrð hans þekur jörðina Hab 2.14; sbr 4Mós 14.21
3.6 Fjöllin molna Hab 3.10; 2Mós 19.18; Dóm 5.4-5; Jes 42.15; Nah 1.5+ ; Slm 18.8+ ; 68.8-9; 114.4
3.8 Reiðskjótar Guðs 5Mós 33.26; Slm 18.11
3.9 Bogi Guðs 1Mós 9.13; Hlj 2.4; 3.12 – örvar Guðs 5Mós 32.33; Esk 5.16; Slm 18.15
3.11 Sól og tungl víkja ekki Jós 10.12
3.13 Lýður Guðs – hinn smurði Slm 28.8; 105.15
3.14 Óvinir þjá hina hrjáðu Slm 10.2,9; 12.6; 18.28 o.áfr.
3.15 Hafið Jes 43.16-17; 51.10; Slm 77.20
3.16 Skjálfa Jes 21.3-4; Jer 4.19; 23.9 – neyð Slm 77.3+
3.17 Engin fæða Jer 5.17; Hós 9.2
3.18 Fagna yfir Guði hjálpræðis míns Lúk 1.47; sbr Jes 61.10; Jl 2.23; Slm 5.12; 32.11; 33.1 – Guð hjálpræðis míns Jes 43.3+ ; Mík 7.7
3.19 Til söngstjórans Slm 4.1; 5.1