1Ég er hinn sanni vínviður, og faðir minn er vínyrkinn.2Hverja þá grein á mér, sem ber ekki ávöxt, sníður hann af, og hverja þá, sem ávöxt ber, hreinsar hann, svo að hún beri meiri ávöxt.3Þér eruð þegar hreinir vegna orðsins, sem ég hef talað til yðar.4Verið í mér, þá verð ég í yður. Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri sér, nema hún sé á vínviðnum, eins getið þér ekki heldur borið ávöxt, nema þér séuð í mér.5Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt, sem er í mér og ég í honum, en án mín getið þér alls ekkert gjört.6Hverjum sem er ekki í mér, verður varpað út eins og greinunum, og hann visnar. Þeim er safnað saman og varpað á eld og brennt.7Ef þér eruð í mér og orð mín eru í yður, þá biðjið um hvað sem þér viljið, og yður mun veitast það.8Með því vegsamast faðir minn, að þér berið mikinn ávöxt, og verðið lærisveinar mínir.9Ég hef elskað yður, eins og faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðugir í elsku minni.10Ef þér haldið boðorð mín, verðið þér stöðugir í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans.11Þetta hef ég talað til yðar, til þess að fögnuður minn sé í yður og fögnuður yðar sé fullkominn.12Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður.13Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína.14Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður.15Ég kalla yður ekki framar þjóna, því þjónninn veit ekki, hvað herra hans gjörir. En ég kalla yður vini, því ég hef kunngjört yður allt, sem ég heyrði af föður mínum.16Þér hafið ekki útvalið mig, heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt, sem varir, svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni.17Þetta býð ég yður, að þér elskið hver annan.18Ef heimurinn hatar yður, þá vitið, að hann hefur hatað mig fyrr en yður.19Væruð þér af heiminum, mundi heimurinn elska sitt eigið. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum, heldur hef ég útvalið yður úr heiminum.20Minnist orðanna, sem ég sagði við yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans. Hafi þeir ofsótt mig, þá munu þeir líka ofsækja yður. Hafi þeir varðveitt orð mitt, munu þeir líka varðveita yðar.21En allt þetta munu þeir yður gjöra vegna nafns míns, af því að þeir þekkja eigi þann, sem sendi mig.22Hefði ég ekki komið og talað til þeirra, væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir ekkert til afsökunar synd sinni.23Sá sem hatar mig, hatar og föður minn.24Hefði ég ekki unnið meðal þeirra þau verk, sem enginn annar hefur gjört, væru þeir ekki sekir um synd. En nú hafa þeir séð þau og hata þó bæði mig og föður minn.25Svo hlaut að rætast orðið, sem ritað er í lögmáli þeirra: Þeir hötuðu mig án saka.26Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurnum, mun hann vitna um mig.27Þér skuluð einnig vitni bera, því þér hafið verið með mér frá upphafi.

15.1 Vínviður Jes 5.1-7; Jer 2.21; Esk 15.1-8; 19.10-14; Matt 21.33-41 og hlst.
15.2 Hver grein … Matt 3.10; 15.13
15.3 Þegar hreinir Jóh 13.10
15.4 Á vínviðnum Róm 11.17-18 – af eigin mætti 2Kor 3.5 – vera í Jesú Jóh 6.56; sbr Jóh 8.31; 15.9-10; 1Jóh 2.10; 4.13-16
15.5 Vínviðurinn og greinarnar sbr 1Kor 12.12,27 – Jesús í okkur 1Jóh 2.27; 3.9,15; 4.12-15 – bera mikinn ávöxt Jóh 15.16 – án mín getið þér ekkert 2Kor 3.5; sbr Jóh 1.3
15.6 Varpað á eld Matt 3.10; 7.19; 13.42
15.7 Yður mun veitast Mrk 11.24; Jóh 14.13; 16.23
15.8 Vegsama föðurinn Matt 5.16
15.10 Halda boðorð Jóh 14.15,21; 1Jóh 2.3-8; 3.22-23; 5.3
15.11 Fögnuður Jes 9.3; 35.10; 55.12; 65.18; Sef 3.14; Slm 126.3-5; Matt 25.21,23; Lúk 1.14; 2.10 – fullkominn Jóh 16.20-24; 17.13; 1Jóh 1.4; 2Jóh 12
15.12 Mitt boðorð Jóh 13.34+ ; 2Jóh 5
15.13 Meiri kærleikur Jóh 13.1,34 – leggja líf sitt í sölurnar Jóh 10.11+
15.16 Ég hef útvalið yður Jóh 6.70; 13.18; sbr 5Mós 7.6-8; Jes 41.8; 43.20; 44.2; 45.4; 65.9,15,22; Am 3.2; 7.15; Mrk 3.13; Lúk 6.13 – ákvarða Matt 10.1; Mrk 3.14; 6.7; Lúk 9.1; Post 13.47; 20.28; 1Kor 12.28; 2Tím 1.11 – bera ávöxt Jóh 15.5 – veiti yður Jóh 14.13+
15.17 Elskið hver annan Jóh 13.34+ ; 2Jóh 5
15.18 Ef heimurinn hatar yður Matt 10.22; 24.9; Mrk 13.13; Lúk 6.22; Jóh 17.14; 1Þess 2.15-16; 1Jóh 3.13
15.19 Heimurinn elskar sitt eigið Jóh 7.7; 1Jóh 4.5; sbr Jóh 17.14
15.20 Þjónninn og herra hans Matt 10.24+ – ofsóttir 1Þess 1.6; 1Pét 4.12-19
15.21 Vegna Jesú Matt 5.11; 10.22; Mrk 13.13; Lúk 21.17; Post 5.41; Opb 2.3
15.22 Án syndar Jóh 9.41
15.23 Hata Jesú, hata föðurinn Lúk 10.16; Jóh 5.23; 1Jóh 2.23
15.24 Verk Jesú Jóh 14.11
15.25 Lögmálið Jóh 8.17; 10.34 – hata án saka Slm 35.19; 69.5
15.26 Hjálparinn Jóh 14.16+ – sannleiksandinn Jóh 14.17+ – frá föðurnum Jóh 14.16,26; 16.15; Tít 3.6; 1Jóh 3.24; 4.13
15.27 Vottar Jesú Post 1.8; 5.32; 1Jóh 4.14 – með Jesú frá upphafi Lúk 1.2; Post 1.21-22