1Veist þú tímann, nær steingeiturnar bera? Gefur þú gaum að fæðingarhríðum hindanna?2Telur þú mánuðina, sem þær ganga með, og veist þú tímann, nær þær bera?3Þær leggjast á knén, fæða kálfa sína, þær losna fljótt við kvalir sínar.4Kálfar þeirra verða sterkir, vaxa í haganum, fara burt og koma ekki aftur til þeirra.5Hver hefir látið skógarasnann ganga lausan og hver hefir leyst fjötra villiasnans,6sem ég hefi gefið eyðivelli að bústað og saltsléttu að heimkynni?7Hann hlær að hávaða borgarinnar, hann heyrir ekki köll rekstrarmannsins.8Það sem hann leitar uppi á fjöllunum, er haglendi hans, og öllu því sem grænt er, sækist hann eftir.9Mun vísundurinn vera fús til að þjóna þér eða mun hann standa um nætur við stall þinn?10Getur þú bundið vísundinn með bandinu við plógfarið eða mun hann herfa dalgrundirnar á eftir þér?11Reiðir þú þig á hann, af því að kraftur hans er mikill, og trúir þú honum fyrir arði þínum?12Treystir þú honum til að flytja sáð þitt heim og til að safna því á þreskivöll þinn?13Strúthænan baðar glaðlega vængjunum, en er nokkurt ástríki í þeim vængjum og flugfjöðrum?14Nei, hún fær jörðinni egg sín og lætur þau hitna í moldinni15og gleymir, að fótur getur brotið þau og dýr merkurinnar troðið þau sundur.16Hún er hörð við unga sína, eins og hún ætti þá ekki, þótt fyrirhöfn hennar sé árangurslaus, þá er hún laus við ótta,17því að Guð synjaði henni um visku og veitti henni enga hlutdeild í hyggindum.18En þegar hún sveiflar sér í loft upp, þá hlær hún að hestinum og þeim sem á honum situr.19Gefur þú hestinum styrkleika, klæðir þú makka hans flaksandi faxi?20Lætur þú hann stökkva eins og engisprettu? Fagurlega frýsar hann, en hræðilega!21Hann krafsar upp grundina og kætist af styrkleikanum, hann fer út á móti hertygjunum.22Hann hlær að hræðslunni og skelfist ekki og hopar ekki fyrir sverðinu.23Á baki hans glamrar í örvamælinum, spjót og lensa leiftra.24Með hávaða og harki hendist hann yfir jörðina og eigi verður honum haldið, þá er lúðurinn gellur.25Í hvert sinn er lúðurinn gellur, hvíar hann, og langar leiðir nasar hann bardagann, þrumurödd fyrirliðanna og herópið.26Er það fyrir þín hyggindi að haukurinn lyftir flugfjöðrunum, breiðir út vængi sína í suðurátt?27Er það eftir þinni skipun að örninn flýgur svo hátt og byggir hreiður sitt hátt uppi?28Á klettunum á hann sér býli og ból, á klettasnösum og fjallatindum.29Þaðan skyggnist hann að æti, augu hans sjá langar leiðir.30Og ungar hans svelgja blóð, og hvar sem vegnir menn liggja, þar er hann.

39.1 Steingeitur 1Sam 24.3; Slm 104.18 – fæðingarhríðir Slm 29.9
39.5 Villiasni, sléttuasni Job 6.5; 11.12; 24.5; 1Mós 16.12; Hós 8.9
39.6 Saltslétta Jer 17.6
39.7 Heyrir ekki köll smalanna sbr Jes 14.8
39.9 Villinaut Slm 22.22
38.11 Mikið afl 4Mós 23.22; 5Mós 33.17; Slm 92.11
39.13 Strútur 3Mós 11.16; Jes 13.21; Mík 1.8
39.16 Harðbrjósta Hlj 4.3
39.19 Styrkleiki hestsins Slm 33.17; 147.10
39.20 Engispretta sbr Jl 1.4-5
39.24 Hornaþyt 4Mós 10.9
39.26 Fálkinn 3Mós 11.16
39.27 Örninn Job 9.26; 5Mós 28.49; Okv 23.5 – hátt uppi Jer 49.6; Ób 4
39.30 Sækir í valinn Matt 24.28; Lúk 17.37