1Sedekía Jósíason varð konungur í stað Konja Jójakímssonar, er Nebúkadresar Babelkonungur hafði gjört að konungi í Júda.2En hvorki hann, né þjónar hans, né landslýðurinn hlýddi orðum Drottins, þeim er hann talaði fyrir munn Jeremía spámanns.3Og Sedekía konungur sendi Júkal Selemjason og Sefanía prest Maasejason til Jeremía spámanns með svolátandi orðsending: Bið þú fyrir oss til Drottins, Guðs vors!4En Jeremía gekk þá út og inn meðal lýðsins og þeir höfðu enn ekki sett hann í dýflissuna.5Her Faraós var og lagður af stað frá Egyptalandi, og er Kaldear, sem sátu um Jerúsalem, spurðu það, héldu þeir burt frá Jerúsalem.6Þá kom orð Drottins til Jeremía spámanns:7Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Svo skuluð þér segja við Júdakonung, sem sendi yður til mín, til þess að spyrja mig: Her Faraós, sem lagður er af stað yður til hjálpar, mun snúa aftur til síns lands, til Egyptalands,8og Kaldear munu og aftur snúa og herja á þessa borg, vinna hana og brenna hana í eldi.9Svo segir Drottinn: Svíkið ekki sjálfa yður með því að segja: Kaldear munu vissulega fara burt frá oss! því að þeir fara ekki burt.10Því að þótt þér fellduð allan her Kaldea, er á yður herjar, og ekki væru aðrir orðnir eftir af þeim en sverði lagðir menn, þá mundu þeir rísa upp, hver og einn í sínu tjaldi, og brenna þessa borg í eldi!11En er her Kaldea fór burt frá Jerúsalem undan her Faraós,12þá fór Jeremía frá Jerúsalem og hélt til Benjamínslands, til þess að taka þar á móti erfðahlut, mitt á meðal lýðsins.13En er hann kom í Benjamínshlið, þá var þar fyrir varðmaður, að nafni Jería Selemjason, Hananíasonar. Hann þreif í Jeremía spámann og sagði: Þú ætlar að hlaupast burt til Kaldea!14En Jeremía sagði: Það er lygi! Ég ætla ekki að hlaupast burt til Kaldea! En Jería hlustaði ekki á Jeremía og tók hann höndum og fór með hann til höfðingjanna.15Og höfðingjarnir reiddust Jeremía og börðu hann og settu hann í fangelsi í húsi Jónatans kanslara, því að það höfðu þeir gjört að dýflissu.16Þannig komst Jeremía í prísundina og í hvelfinguna, og þar sat Jeremía alllangan tíma.17En Sedekía konungur sendi og lét sækja hann, og konungur spurði hann á laun í höll sinni og mælti: Hefir nokkurt orð komið frá Drottni? Svo er víst! mælti Jeremía. Þú munt seldur verða á vald Babelkonungs!18Því næst sagði Jeremía við Sedekía konung: Hvað hefi ég brotið gegn þér og gegn þjónum þínum og gegn þessum lýð, að þér hafið sett mig í dýflissu?19Og hvar eru nú spámenn yðar, þeir er spáðu yður og sögðu: Eigi mun Babelkonungur fara í móti yður og í móti þessu landi?20Og heyr nú, minn herra konungur! Virst að heyra auðmjúka bæn mína! Lát eigi flytja mig aftur í hús Jónatans kanslara, svo að ég deyi þar ekki!21Síðan var Jeremía settur í varðhald í varðgarðinum að boði Sedekía konungs og honum gefinn brauðhleifur á degi hverjum úr bakarastrætinu, uns allt brauð var uppgengið í borginni. Og þannig sat Jeremía í varðgarðinum.

37.1 Sedekía Jer 1.3+ – Konja Jer 22.24+ – Nebúkadresar Jer 21.2+
37.2 Enginn hlustaði Jer 7.13+
37.3 Sedekía og Jeremía Jer 21.1-10; 34.1-7 – Sefanía Jer 21.1+ – bið okkar vegna Jer 7.16+
37.7 Leita ráða hjá Drottni Jer 21.2+
37.8 Kaldear koma aftur Jer 34.22+ – brenna Jer 17.27+
37.12 Arfur Jer 32.8
37.13 Benjamínshlið Jer 38.7
37.21 Forgarður varðliðsins Jer 32.2+