1Og Elíhú tók aftur til máls og sagði:2Heyrið, þér vitrir menn, orð mín, og þér fróðir menn, hlustið á mig.3Því að eyrað prófar orðin, eins og gómurinn smakkar matinn.4Vér skulum rannsaka, hvað rétt er, komast að því hver með öðrum, hvað gott er.5Því að Job hefir sagt: Ég er saklaus, en Guð hefir svipt mig rétti mínum.6Þótt ég hafi rétt fyrir mér, stend ég sem lygari, banvæn ör hefir hitt mig, þótt ég hafi í engu brotið.7Hvaða maður er eins og Job, sem drekkur guðlast eins og vatn8og gefur sig í félagsskap við þá, sem illt fremja, og er í fylgi við óguðlega menn?9Því að hann hefir sagt: Maðurinn hefir ekkert gagn af því að vera í vinfengi við Guð.10Fyrir því, skynsamir menn, heyrið mig! Fjarri fer því, að Guð aðhafist illt og hinn Almáttki fremji ranglæti.11Nei, hann geldur manninum verk hans og lætur manninum farnast eftir breytni hans.12Já, vissulega fremur Guð ekki ranglæti, og hinn Almáttki hallar ekki réttinum.13Hver hefir fengið honum jörðina til varðveislu, og hver hefir grundvallað allan heiminn?14Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig, ef hann drægi til sín anda sinn og andardrátt,15þá mundi allt hold gefa upp andann og maðurinn aftur verða að dufti.16Hafir þú vit, þá heyr þú þetta, hlusta þú á hljóm orða minna.17Getur sá stjórnað, sem hatar réttinn? Eða vilt þú dæma hinn réttláta, volduga?18þann sem segir við konunginn: Þú varmenni! við tignarmanninn: Þú níðingur!19sem ekki dregur taum höfðingjanna og gjörir ekki ríkum hærra undir höfði en fátækum, því að handaverk hans eru þeir allir.20Skyndilega deyja þeir, og það um miðja nótt, fólkið verður skelkað, og þeir hverfa, og hinn sterki er hrifinn burt, en eigi af manns hendi.21Því að augu Guðs hvíla yfir vegum hvers manns, og hann sér öll spor hans.22Ekkert það myrkur er til eða sú niðdimma, að illgjörðamenn geti falið sig þar.23Því að Guð þarf ekki fyrst að gefa manni gaum, til þess að hann komi fyrir dóm hans.24Hann brýtur hina voldugu sundur rannsóknarlaust og setur aðra í þeirra stað.25Þannig þekkir hann verk þeirra og steypir þeim um nótt, og þeir verða marðir sundur.26Hann hirtir þá sem misgjörðamenn í augsýn allra manna,27vegna þess að þeir hafa frá honum vikið og vanrækt alla vegu hans28og látið kvein hins fátæka berast til hans, en hann heyrði kvein hinna voluðu.29Haldi hann kyrru fyrir, hver vill þá sakfella hann? og byrgi hann auglitið, hver fær þá séð hann? Þó vakir hann yfir þjóð og einstaklingi,30til þess að guðlausir menn skuli ekki drottna, til þess að þeir séu ekki snörur lýðsins.31Því að segir nokkur við Guð: Mér hefir verið hegnt og breyti þó ekki illa.32Kenn þú mér það, sem ég sé ekki. Hafi ég framið ranglæti, skal ég eigi gjöra það framar?33Á hann að endurgjalda eftir geðþótta þínum, af því að þú hafnar? því að þú átt að velja, en ekki ég. Og seg nú fram það, er þú veist!34Skynsamir menn munu segja við mig, og vitur maður, sem á mig hlýðir:35Job talar ekki hyggilega, og orð hans eru ekki skynsamleg.36Ó að Job mætti reyndur verða æ að nýju, af því að hann svarar eins og illir menn svara.37Því að hann bætir misgjörð ofan á synd sína, hann klappar saman höndunum framan í oss og heldur langar ræður móti Guði.

34.5 Hef rétt fyrir mér Job 31.6+ – svipt mig rétti mínum Job 27.2+
34.6 Ör Job 6.4+
34.9 Engum ávinningur sbr Job 21.7-12
34.11 Geldur manninum Jer 32.19; okv 24.12; Matt 16.27+
34.12 Ekki ranglæti Job 8.3+ ; 27.2+
34.14 Höfundur lífsins Job 12.10+ ; Slm 104.29; Préd 12.7
34.15 Hverfa aftur til moldarinnar 1Mós 3.19; Préd 12.7
34.17 Guð hatar ekki réttinn 1Mós 18.25
34.18 Mannleysa 2Sam 16.7
34.19 Ekki manngreinarálit 5Mós 10.17; sbr 3Mós 19.15
34.20 Deyja skyndilega 2Mós 12.29; SSal 18.14-15; Lúk 12.20
34.21 Guð gefur manninum gaum Job 24.23; 31.4; Jer 32.19; Slm 33.14-15
34.22 Guð sér í myrkri Slm 139.11-12
34.23 Ákveða manni tíma Job 7.19+
34.24 Í þeirra stað Job 12.19; 34.20; 1Sam 16.1; Dan 4.17; Lúk 1.52
34.26 Hirtir sbr Matt 26.67 og hlst.; Jóh 18.22; Post 23.2-3
34.28 Kvein hinna snauðu 2Mós 2.23-24; 1Sam 9.16; Jak 5.4
34.36 Reyna einhvern Job 19.28