1Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig:2Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana í Galíleu, Sebedeussynirnir og tveir enn af lærisveinum hans.3Símon Pétur segir við þá: Ég fer að fiska. Þeir segja við hann: Vér komum líka með þér. Þeir fóru og stigu í bátinn. En þá nótt fengu þeir ekkert.4Þegar dagur rann, stóð Jesús á ströndinni. Lærisveinarnir vissu samt ekki, að það var Jesús.5Jesús segir við þá: Drengir, hafið þér nokkurn fisk? Þeir svöruðu: Nei.6Hann sagði: Kastið netinu hægra megin við bátinn, og þér munuð verða varir. Þeir köstuðu, og nú gátu þeir ekki dregið netið, svo mikill var fiskurinn.7Lærisveinninn, sem Jesús elskaði, segir við Pétur: Þetta er Drottinn. Þegar Símon Pétur heyrði, að það væri Drottinn, brá hann yfir sig flík hann var fáklæddur og stökk út í vatnið.8En hinir lærisveinarnir komu á bátnum, enda voru þeir ekki lengra frá landi en svo sem tvö hundruð álnir, og drógu netið með fiskinum.9Þegar þeir stigu á land, sáu þeir fisk lagðan á glóðir og brauð.10Jesús segir við þá: Komið með nokkuð af fiskinum, sem þér voruð að veiða.11Símon Pétur fór í bátinn og dró netið á land, fullt af stórum fiskum, eitt hundrað fimmtíu og þremur. Og netið rifnaði ekki, þótt þeir væru svo margir.12Jesús segir við þá: Komið og matist. En enginn lærisveinanna dirfðist að spyrja hann: Hver ert þú? Enda vissu þeir, að það var Drottinn.13Jesús kemur og tekur brauðið og gefur þeim, svo og fiskinn.14Þetta var í þriðja sinn, sem Jesús birtist lærisveinum sínum upp risinn frá dauðum.15Þegar þeir höfðu matast, sagði Jesús við Símon Pétur: Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir? Hann svarar: Já, Drottinn, þú veist, að ég elska þig. Jesús segir við hann: Gæt þú lamba minna.16Jesús sagði aftur við hann öðru sinni: Símon Jóhannesson, elskar þú mig? Hann svaraði: Já, Drottinn, þú veist, að ég elska þig. Jesús segir við hann: Ver hirðir sauða minna.17Hann segir við hann í þriðja sinn: Símon Jóhannesson, elskar þú mig? Pétur hryggðist við, að hann skyldi spyrja hann þriðja sinni: Elskar þú mig? Hann svaraði: Drottinn, þú veist allt. Þú veist, að ég elska þig. Jesús segir við hann: Gæt þú sauða minna.18Sannlega, sannlega segi ég þér: Þegar þú varst ungur, bjóstu þig sjálfur og fórst hvert sem þú vildir, en þegar þú ert orðinn gamall, munt þú rétta út hendurnar, og annar býr þig og leiðir þig þangað sem þú vilt ekki.19Þetta sagði Jesús til að kynna, með hvílíkum dauðdaga Pétur mundi vegsama Guð. Og er hann hafði þetta mælt, sagði hann við hann: Fylg þú mér.20Pétur sneri sér við og sá lærisveininn, sem Jesús elskaði, fylgja á eftir, þann hinn sama, sem hallaðist að brjósti hans við kvöldmáltíðina, og spurði: Herra, hver er sá, sem svíkur þig?21Þegar Pétur sér hann, segir hann við Jesú: Drottinn, hvað um þennan?22Jesús svarar: Ef ég vil, að hann lifi, þangað til ég kem, hverju skiptir það þig? Fylg þú mér.23Því barst sá orðrómur út meðal bræðranna, að þessi lærisveinn mundi ekki deyja. En Jesús hafði ekki sagt Pétri, að hann mundi ekki deyja. Hann sagði: Ef ég vil, að hann lifi, þangað til ég kem, hverju skiptir það þig?24Þessi er lærisveinninn, sem vitnar um allt þetta og hefur skrifað þetta. Og vér vitum, að vitnisburður hans er sannur.25En margt er það annað, sem Jesús gjörði, og yrði það hvað eina upp skrifað, ætla ég, að öll veröldin mundi ekki rúma þær bækur, sem þá yrðu ritaðar.

21.2 Tómas tvíburi Jóh 11.16+
21.4 Vissu ekki Lúk 24.16; Jóh 20.14
21.5 Hafið þið nokkurn fisk? Lúk 24.41
21.6 Kastið netinu Lúk 5.4-7
21.7 Lærisveinninn, sem Jesús elskaði Jóh 13.23+
21.11 Rifnaði ekki sbr Lúk 5.6
21.13 Brauð og fiskur Matt 14.19; 15.36; Mrk 6.41; 8.6; Lúk 9.16; Jóh 6.11
21.14 Hinn upprisni birtist Jóh 20.19,26
21.15 Meira en þessir Matt 26.33; Mrk 14.29; Lúk 22.33; Jóh 13.37; 18.17,25-27 – lömb Jesú Jóh 10.1-16
21.16 Hirðir Post 20.28; 1Pét 5.2; sbr Lúk 22.32
21.17 Þú veist allt Jóh 16.30
21.18 Orðinn gamall 2Pét 1.14
21.19 Með hvílíkum dauðdaga Jóh 12.23; 18.32; sbr 13.31,36
21.20 Lærisveinninn, sem Jesús elskaði Jóh 13.23+ – hallaðist að brjósti hans Jóh 13.25
21.22 Þangað til ég kem Matt 16.28; sbr 1Kor 11.26; Opb 22.7,12,17,20
21.24 Lærisveinninn, sem vitnar Jóh 19.35
21.25 Margt annað Jóh 20.30