1Þá lögðu allir Ísraelsmenn af stað, og safnaðist lýðurinn saman sem einn maður frá Dan til Beerseba, svo og Gíleaðland, fram fyrir Drottin í Mispa.2Og höfðingjar alls lýðsins, allar ættkvíslir Ísraels, gengu fram í söfnuði Guðs fólks fjögur hundruð þúsund fótgangandi menn, vopnum búnir.3Benjamíns synir fréttu, að Ísraelsmenn væru farnir upp til Mispa. Ísraelsmenn sögðu: Segið frá, hvernig atvikaðist óhæfuverk þetta.4Þá svaraði levítinn, maður konunnar, er myrt hafði verið, og sagði: Ég kom til Gíbeu, sem heyrir Benjamín, ásamt hjákonu minni og ætlaði að vera þar nætursakir.5Þá risu Gíbeubúar upp á móti mér og umkringdu húsið um nóttina og létu ófriðlega. Mig hugðust þeir að drepa og hjákonu minni nauðguðu þeir svo, að hún beið bana af.6Þá tók ég hjákonu mína og hlutaði hana sundur og sendi hana út um allt arfleifðarland Ísraels, því að þeir höfðu framið níðingsverk og óhæfu í Ísrael.7Þér eruð hér allir, Ísraelsmenn! Kveðið nú upp tillögur yðar og ráð!8Þá reis upp allur lýður, sem einn maður væri, og sagði: Enginn af oss skal fara heim til sín og enginn snúa heim til húss síns.9Og nú skulum vér fara þannig að við Gíbeu: Vér skulum ráðast gegn henni eftir hlutkesti.10Vér skulum taka tíu menn af hundraði af öllum ættkvíslum Ísraels og hundrað af þúsundi og þúsund af tíu þúsundum til þess að sækja vistir handa liðinu. Þegar þeir koma aftur, verður farið með Gíbeu í Benjamín með öllu svo sem maklegt er fyrir óhæfuverk það, er þeir hafa framið í Ísrael.11Þá söfnuðust allir Ísraelsmenn saman í móti borginni, allir samhuga sem einn maður væri.12Ættkvíslir Ísraels sendu menn um alla ættkvísl Benjamíns og létu þá segja: Hvílík óhæfa er þetta, sem framin hefir verið yðar á meðal.13Framseljið því hrakmennin í Gíbeu, svo að vér fáum drepið þá og upprætt hið illa úr Ísrael. En Benjamíns synir vildu ekki gefa gaum orðum bræðra sinna, Ísraelsmanna.14Söfnuðust Benjamíns synir þá saman úr borgunum til Gíbeu til þess að fara í hernað móti Ísraelsmönnum.15En Benjamíns synir, þeir er úr borgunum komu, voru á þeim degi tuttugu og sex þúsundir vopnaðra manna að tölu, auk Gíbeu-búa, en þeir voru sjö hundruð að tölu, einvala lið.16Af öllu þessu liði voru sjö hundruð úrvals menn örvhentir. Hæfðu þeir allir hárrétt með slöngusteini og misstu ekki.17En Ísraelsmenn voru að tölu, fyrir utan Benjamín, fjögur hundruð þúsund vopnaðra manna, og voru þeir allir hermenn.18Ísraelsmenn tóku sig upp og fóru upp til Betel og gengu til frétta við Guð og sögðu: Hver af oss skal fyrstur fara í hernaðinn móti Benjamíns sonum? Drottinn svaraði: Júda skal fyrstur fara.19Ísraelsmenn tóku sig upp um morguninn og settu herbúðir sínar hjá Gíbeu.20Og Ísraelsmenn fóru til bardaga í móti Benjamín, og Ísraelsmenn fylktu sér til orustu gegn þeim nálægt Gíbeu.21Þá fóru Benjamíns synir út úr Gíbeu og lögðu að velli tuttugu og tvær þúsundir manna af Ísrael á þeim degi.22En lið Ísraelsmanna herti upp hugann, og fylktu þeir sér af nýju til orustu á þeim stað, sem þeir höfðu fylkt sér hinn fyrri daginn.23Og Ísraelsmenn fóru upp eftir og grétu frammi fyrir Drottni allt til kvelds, og þeir gengu til frétta við Drottin og sögðu: Eigum vér enn að leggja til orustu við sonu Benjamíns, bróður vors? Drottinn svaraði: Farið á móti þeim.24Fóru Ísraelsmenn nú í móti Benjamíns sonum á öðrum degi.25Og Benjamín fór út í móti þeim úr Gíbeu á öðrum degi, og lögðu þeir enn að velli átján þúsund manns af Ísraelsmönnum, og voru þeir allir vopnum búnir.26Þá fóru allir Ísraelsmenn og allur lýðurinn upp eftir og komu til Betel og höfðust þar við grátandi fyrir augliti Drottins og föstuðu þann dag til kvelds. Og þeir fórnuðu brennifórnum og heillafórnum fyrir augliti Drottins.27Síðan gengu Ísraelsmenn til frétta við Drottin, en þar var sáttmálsörk Guðs í þá daga,28og Pínehas, sonur Eleasars Aronssonar, gegndi þjónustu fyrir augliti hans í þá daga. Þeir sögðu: Eigum vér enn að leggja til orustu við sonu Benjamíns, bróður vors, eða eigum vér að hætta? Drottinn svaraði: Farið, því að á morgun mun ég gefa þá í yðar hendur.29Nú setti Ísrael menn í launsát hringinn í kring um Gíbeu.30Og Ísraelsmenn fóru í móti Benjamíns sonum á þriðja degi og fylktu þeir sér gegnt Gíbeu, eins og hin fyrri skiptin.31Þá fóru Benjamíns synir út á móti liðinu og létu teygjast burt frá borginni og tóku að fella nokkra af liðinu, eins og hin fyrri skiptin, úti á þjóðvegunum annar þeirra liggur upp til Betel, en hinn til Gíbeu yfir haglendið , um þrjátíu manns af Ísrael.32Þá hugsuðu Benjamíns synir: Þeir bíða ósigur fyrir oss eins og í fyrsta sinnið. En Ísraelsmenn höfðu sagt: Vér skulum flýja, svo að vér fáum teygt þá frá borginni út á þjóðvegina.33Og allir Ísraelsmenn tóku sig upp úr sínum stað og fylktu sér í Baal Tamar, og þeir Ísraelsmanna, er í launsát voru, þustu fram úr sínum stað fyrir vestan Geba.34Því næst sóttu tíu þúsundir einvala liðs úr öllum Ísrael fram móti Gíbeu og tókst þar hörð orusta, en hinir vissu ekki að ógæfan vofði yfir þeim.35Þannig lét Drottinn Benjamín bíða ósigur fyrir Ísrael, og Ísraelsmenn drápu tuttugu og fimm þúsund og eitt hundrað manns af Benjamín á þeim degi, og voru þeir allir vopnum búnir.36Þá sáu Benjamíns synir, að þeir höfðu beðið ósigur. Ísraelsmenn gáfu Benjamín rúm, því að þeir treystu launsátinni, er þeir höfðu sett hjá Gíbeu.37En þeir, sem í launsátinni voru, spruttu upp og geystust fram mót Gíbeu og fóru til og felldu alla borgarbúa með sverðseggjum.38Það var samkomulag milli Ísraelsmanna og þeirra, er í launsátinni voru, að þeir skyldu láta reyk leggja upp af borginni til merkis.39Þegar nú Ísraelsmenn snerust á flótta í bardaganum og Benjamínítar tóku að fella nokkra af Ísraelsmönnum, um þrjátíu manns, með því að þeir hugsuðu: Þeir hafa þegar beðið ósigur fyrir oss, eins og í fyrstu orustunni!40þá tók merkið að stíga upp af borginni, reykjarmökkurinn, og er Benjamínítar sneru sér við, sjá, þá stóð öll borgin í björtu báli.41Þá sneru Ísraelsmenn við, og sló felmti á Benjamíníta, því að þeir sáu, að ógæfan var yfir þá komin.42Sneru þeir nú undan Ísraelsmönnum á leið til eyðimerkurinnar, og hélst þó orustan á hælum þeim, og þeir, sem komu úr borgunum, drápu þá mitt á meðal þeirra.43Þeir umkringdu Benjamíníta, eltu þá og tróðu þá undir fótum sér, þar sem þeir höfðu leitað sér hvíldar, alla leið austur fyrir Gíbeu.44Og þar féllu af Benjamín átján þúsundir manna, og voru það allt hraustir menn.45Þá sneru þeir á flótta til eyðimerkurinnar að Rimmónkletti, og í eftirleitinni um þjóðvegina drápu þeir fimm þúsund manns, og þeir eltu þá allt til Gídeóm og drápu enn af þeim tvö þúsund manns.46Þannig féllu alls af Benjamín á þeim degi tuttugu og fimm þúsundir vopnbúinna manna, og voru það allt hraustir menn.47Þá sneru þeir á flótta til eyðimerkurinnar að Rimmónkletti, sex hundruð manns, og höfðust við hjá Rimmónkletti í fjóra mánuði.48En Ísraelsmenn sneru aftur til Benjamíns sona og felldu þá með sverðseggjum, bæði menn og fénað og allt, sem þeir fundu. Þeir lögðu og eld í allar borgirnar, sem fyrir þeim urðu.

20.1 Lýðurinn, söfnuður Dóm 21.10; 2Mós 12.3; 16.1; 34.31; 3Mós 4.13 o.fl.; 4Mós 1.16; 16.9, o.fl.; Jós 9.18; 22.18 – frá Dan Dóm 18.29 – til Beerseba 1Sam 3.20; 2Sam 17.11 – Mispa (í Benjamín) Dóm 21.1,5; 1Sam 7.5-7; 10.17; 1Makk 3.46
20.4 Atburðirnir í Gíbeu Dóm 19.22-29
20.6 Níðingsverk í Ísrael 5Mós 22.21
20.13 Upprætt hið illa 5Mós 13.5+
20.18 Betel v.26; Dóm 21.2-4 – til frétta við Guð v.27; Dóm 1.1+ – hver … – Júda Dóm 1.1-2
20.23 Kveinuðu Dóm 2.4; 21.2; 4Mós 11.4; 14.1; 1Sam 11.4; Esr 10.1
20.26 Grátandi Jes 3.26; 47.1; Slm 137.1; Esr 9.3 (og fastandi) 1Sam 7.6; 2Sam 12.16; sbr Job 2.13 – fórnir Dóm 21.4
20.28 Pínehas 4Mós 25.10-13
20.29 Launsátur Dóm 9.34; Jós 8.4
20.31 Burt frá borginni Jós 8.6,16
20.33 Geba Jós 18.24; 1Sam 14.5
20.40 Reykjarmökkur Jós 8.20
20.48 Jafnt menn sem fénað sbr 5Mós 2.34-35