1Á öðru ríkisári Jóasar Jóahassonar Ísraelskonungs varð Amasía Jóasson konungur í Júda.2Hann var tuttugu og fimm ára að aldri, þá er hann varð konungur, og tuttugu og níu ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Jóaddan og var frá Jerúsalem.3Hann gjörði það sem rétt var í augum Drottins, þó eigi eins og Davíð forfaðir hans. Hann breytti í alla staði eins og Jóas faðir hans hafði breytt.4Aðeins voru fórnarhæðirnar ekki afnumdar. Enn þá fórnaði lýðurinn sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum.5En er Amasía var orðinn fastur í sessi, lét hann drepa þá menn sína, er drepið höfðu konunginn föður hans.6En börn morðingjanna lét hann ekki af lífi taka, samkvæmt því, sem skrifað er í lögmálsbók Móse, þar sem Drottinn mælir svo fyrir: Feður skulu ekki líflátnir verða ásamt börnunum, og börn skulu ekki líflátin verða ásamt feðrunum, heldur skal hver líflátinn verða fyrir sína eigin synd.7Það var hann, sem vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tíu þúsundum manns, og tók Sela herskildi og nefndi hana Jokteel, og heitir hún svo enn í dag.8Þá gjörði Amasía sendimenn á fund Jóasar Jóahassonar, Jehúsonar Ísraelskonungs með svolátandi orðsending: Nú skulum við reyna með okkur.9Þá sendi Jóas Ísraelskonungur Amasía Júdakonungi þau andsvör: Þistillinn á Líbanon gjörði sedrustrénu á Líbanon svolátandi orðsending: Gef þú syni mínum dóttur þína að konu. En villidýrin á Líbanon gengu yfir þistilinn og tróðu hann sundur.10Af því að þú vannst mikinn sigur á Edómítum, hefir þú fyllst ofmetnaði. Njót þú frægðarinnar og sit kyrr heima. Hví vilt þú egna ógæfuna sjálfum þér og Júda til falls?11En Amasía gaf þessu engan gaum. Þá fór Jóas Ísraelskonungur af stað, og varð fundur þeirra, hans og Amasía Júdakonungs, í Bet Semes, er tilheyrir Júda.12Beið Júda þar ósigur fyrir Ísrael, og flýðu þeir hver til síns heima.13En Jóas Ísraelskonungur tók höndum Amasía Júdakonung, son Jóasar Ahasíasonar, í Bet Semes og fór með hann til Jerúsalem. Hann braut niður múra Jerúsalem frá Efraímhliði allt að hornhliðinu, fjögur hundruð álnir.14Því næst tók hann allt gull og silfur og öll áhöld, er fundust í musteri Drottins og í fjárhirslum konungshallarinnar, svo og gísla, og sneri síðan aftur heim til Samaríu.15Það sem meira er að segja um Jóas, það sem hann gjörði og hreystiverk hans og hversu hann barðist við Amasía Júdakonung, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.16Og Jóas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu hjá Ísraelskonungum. Og Jeróbóam sonur hans tók ríki eftir hann.17En Amasía Jóasson Júdakonungur lifði fimmtán ár eftir dauða Jóasar Jóahassonar Ísraelskonungs.18En það sem meira er að segja um Amasía, það er ritað í Árbókum Júdakonunga.19Og menn gjörðu samsæri gegn Amasía í Jerúsalem. Flýði hann þá til Lakís. En þeir sendu á eftir honum til Lakís og létu drepa hann þar.20Fluttu þeir hann síðan á hestum, og var hann grafinn í Jerúsalem hjá feðrum sínum í Davíðsborg.21Þá tók allur Júdalýður Asaría, þótt hann væri eigi nema sextán vetra gamall, og gjörði hann að konungi í stað Amasía föður hans.22Hann víggirti Elat og vann hana aftur undir Júda, eftir að konungurinn var lagstur til hvíldar hjá feðrum sínum.23Á fimmtánda ríkisári Amasía Jóassonar Júdakonungs varð Jeróbóam, sonur Jóasar Ísraelskonungs, konungur í Samaríu og ríkti fjörutíu og eitt ár.24Hann gjörði það sem illt var í augum Drottins. Lét hann eigi af neinum syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja.25Hann vann aftur Ísraelsland, þaðan frá, er leið liggur til Hamat, allt að vatninu á sléttlendinu, samkvæmt orði Drottins, Ísraels Guðs, því er hann hafði talað fyrir munn þjóns síns, Jónasar spámanns Amíttaísonar frá Gat Hefer.26Drottinn hafði séð, að eymd Ísraels var mjög beisk. Þrælar og frelsingjar voru horfnir, og enginn var sá, er hjálpaði Ísrael.27En þó hafði Drottinn ekki sagt, að hann mundi afmá nafn Ísraels af jörðinni, enda frelsaði hann þá fyrir Jeróbóam Jóasson.28Það sem meira er að segja um Jeróbóam og allt, sem hann gjörði, og hreystiverk hans, hversu hann herjaði og hversu hann vann aftur Damaskus og Hamat, er fyrrum tilheyrði Júda, undir Ísrael, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.29Og Jeróbóam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu hjá Ísraelskonungum. Og Sakaría sonur hans tók ríki eftir hann.

14.6 Fyrir eigin afbrot Jer 31.29-30; Esk 14.12-20; 18; 33.10-20; sbr 3Mós 26.39
14.14 Musterið rænt 2Kon 25.14-15; 1Kon 14.26; 1Makk 1.21-24; 2Makk 5.15-16
14.20 Borg Davíðs 2Kon 9.28+
14.25 Jónas Jón 1.1
14.27 Afmá nafn 5Mós 7.24; 9.14; 25.19; 29.19
14.28 Damaskus og Hamat 2Sam 8.5-10