1Þegar Ehúð var dáinn, gjörðu Ísraelsmenn enn að nýju það, sem illt var í augum Drottins.2Og Drottinn seldi þá í hendur Jabín, Kanaans konungi, sem hafði aðsetur í Hasór. Hershöfðingi hans hét Sísera og bjó hann í Haróset Hagojím.3Og Ísraelsmenn hrópuðu til Drottins, því að hann átti níu hundruð járnvagna og hafði kúgað Ísraelsmenn harðlega í tuttugu ár.4Kona hét Debóra. Hún var spákona og eiginkona manns þess, er Lapídót hét. Hún var dómari í Ísrael um þessar mundir.5Hún sat undir Debórupálma milli Rama og Betel á Efraímfjöllum, og Ísraelsmenn fóru þangað upp til hennar, að hún legði dóm á mál þeirra.6Hún sendi boð og lét kalla til sín Barak Abínóamsson frá Kedes í Naftalí og sagði við hann: Sannlega hefir Drottinn, Ísraels Guð, boðið svo: Far þú og hald til Taborfjalls og haf með þér tíu þúsundir manna af Naftalí sonum og Sebúlons sonum.7Og ég mun leiða Sísera, hershöfðingja Jabíns, með vögnum hans og liði til þín að Kísonlæk, og ég mun gefa hann í hendur þínar.8Barak sagði við hana: Fara mun ég, ef þú fer með mér, en viljir þú eigi fara með mér, mun ég hvergi fara.9Hún svaraði: Víst mun ég með þér fara. En enga frægð munt þú hafa af för þessari, sem þú fer, því að Drottinn mun selja Sísera í konu hendur. Síðan tók Debóra sig upp og fór með Barak til Kedes.10Þá kallaði Barak saman Sebúlon og Naftalí í Kedes, og tíu þúsundir manna fóru með honum, og Debóra var í för með honum.11Heber Keníti hafði skilist við Kain, við niðja Hóbabs, tengdaföður Móse, og sló hann tjöldum sínum allt að eikinni hjá Saanaím, sem er hjá Kedes.12Nú var Sísera sagt frá því, að Barak Abínóamsson væri farinn upp á Taborfjall.13Dró Sísera þá saman alla vagna sína, níu hundruð járnvagna, og allt það lið, er með honum var, frá Haróset Hagojím til Kísonlækjar.14Þá sagði Debóra við Barak: Rís þú nú upp, því að nú er sá dagur kominn, er Drottinn mun selja Sísera í þínar hendur. Sannlega er Drottinn farinn á undan þér. Fór Barak þá ofan af Taborfjalli, og tíu þúsundir manna fylgdu honum.15Og Drottinn gjörði Sísera felmtsfullan og alla vagna hans og allan hans her með sverðseggjum frammi fyrir Barak, svo að Sísera hljóp af vagni sínum og flýði undan á fæti.16En Barak elti vagnana og herinn allt til Haróset Hagojím, og allur her Sísera féll fyrir sverðseggjum. Enginn komst undan.17Sísera flýði á fæti til tjalds Jaelar, konu Hebers Keníta, því að friður var milli Jabíns, konungs í Hasór, og húss Hebers Keníta.18Þá gekk Jael út í móti Sísera og sagði við hann: Gakk inn, herra minn, gakk inn til mín, vertu óhræddur. Og hann gekk inn til hennar í tjaldið, og hún lagði ábreiðu yfir hann.19Þá sagði hann við hana: Gef mér vatnssopa að drekka, því að ég er þyrstur. Hún leysti þá frá mjólkurbelg og gaf honum að drekka, og breiddi síðan ofan á hann aftur.20Þá sagði hann við hana: Stattu í tjalddyrunum, og ef einhver kemur og spyr þig og segir: Er nokkur hér? þá seg þú: Nei.21Jael, kona Hebers, þreif tjaldhæl og tók hamar í hönd sér og gekk hljóðlega inn til hans og rak hælinn gegn um þunnvangann, svo að hann gekk í jörð niður, en Sísera var sofnaður fastasvefni, því að hann var þreyttur. Varð þetta hans bani.22Í sama bili kom Barak og var að elta Sísera. Jael gekk þá út í móti honum og sagði við hann: Kom þú hingað, og mun ég sýna þér þann mann, sem þú leitar að. Og hann gekk inn til hennar, og lá þá Sísera þar dauður með hælinn gegnum þunnvangann.23Þannig lægði Guð á þeim degi Jabín, Kanaans konung, fyrir Ísraelsmönnum.24Og hönd Ísraelsmanna lagðist æ þyngra og þyngra á Jabín, Kanaans konung, uns þeir að lokum gjörðu út af við hann.

4.1 Illt í augum Drottins 5Mós 4.25+
4.2 Drottinn seldi þá Dóm 2.14+ – Jabín, Dóm 4.23-24; Jós 11.1-11 – Sísera Dóm 5.28-30; 1Sam 12.9; Slm 83.10
4.3 Hrópuðu til Drottins Dóm 3.9,15 – járnvagnar Dóm 1.19+
4.4 Spámaður 2Mós 15.20
4.5 Undir Debórupálma sbr 1Mós 35.8 – Efraímfjöll Dóm 3.27+
4.6 Barak Dóm 5.12,15; Heb 11.32
4.7 Kíonslækur Dóm 5.21; Slm 83.10
4.11 Hóbab 4Mós 10.29 – tengdafaðir Móse Dóm 1.16+
4.13 Járnvagnar Dóm 1.19+
4.15 Hrella 2Mós 14.24
4.17 Jael Dóm 5.6,24 – kona v.9 – Hebers Keníta v.11
4.19 Vatn, mjólk Dóm 5.25