1Móse og öldungar Ísraels buðu lýðnum og sögðu: Varðveitið allar þær skipanir, sem ég legg fyrir yður í dag.2Og þegar þér eruð komnir yfir Jórdan inn í landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér, þá skalt þú reisa upp stóra steina og strjúka þá utan kalki3og rita á þá öll orð lögmáls þessa, þá er þú ert kominn yfir um, til þess að þú komist inn í landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér, land sem flýtur í mjólk og hunangi, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefir heitið þér.4Og þegar þér eruð komnir yfir Jórdan, þá skuluð þér reisa upp þessa steina, sem ég hefi mælt fyrir um í dag, á Ebalfjalli og strjúka þá utan kalki.5Þú skalt og reisa Drottni Guði þínum þar altari, altari af steinum. Þú mátt ekki bera að þeim járntól.6Af óhöggnum steinum skalt þú reisa altari Drottins Guðs þíns, og á því skalt þú fórna Drottni Guði þínum brennifórnum.7Og þú skalt slátra heillafórnum og eta þær þar og gleðjast frammi fyrir Drottni Guði þínum.8Og þú skalt rita á steinana öll orð þessa lögmáls mjög greinilega.9Móse og levítaprestarnir töluðu til alls Ísraels og sögðu: Ver hljóður og hlýð á, Ísrael! Í dag ert þú orðinn lýður Drottins, Guðs þíns.10Fyrir því skalt þú hlýða raustu Drottins Guðs þíns og halda skipanir hans og lög, sem ég legg fyrir þig í dag.11Þennan sama dag bauð Móse lýðnum og sagði:12Þessir skulu standa á Garísímfjalli til þess að blessa lýðinn, þegar þér eruð komnir yfir Jórdan: Símeon, Leví, Júda, Íssakar, Jósef og Benjamín.13Og þessir skulu standa á Ebalfjalli til að lýsa bölvan: Rúben, Gað, Asser, Sebúlon, Dan og Naftalí.14Levítarnir skulu taka til máls og segja með hárri raustu við alla Ísraelsmenn:15Bölvaður er sá maður, sem býr til skurðgoð eða steypt líkneski, andstyggð Drottni, handaverk smiðs, og reisir það á laun! Og allur lýðurinn skal svara: Amen.16Bölvaður er sá, sem óvirðir föður sinn eða móður sína! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.17Bölvaður er sá, sem færir úr stað landamerki náunga síns! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.18Bölvaður er sá, sem leiðir blindan mann af réttri leið! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.19Bölvaður er sá, sem hallar rétti útlends manns, munaðarleysingja eða ekkju! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.20Bölvaður er sá, sem leggst með konu föður síns, því að hann hefir flett upp ábreiðu föður síns! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.21Bölvaður er sá, sem hefir samlag við nokkra skepnu! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.22Bölvaður er sá, sem leggst með systur sinni, hvort heldur hún er dóttir föður hans eða dóttir móður hans! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.23Bölvaður er sá, sem leggst með tengdamóður sinni! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.24Bölvaður er sá, sem vegur náunga sinn á laun! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.25Bölvaður er sá, sem lætur múta sér til þess að vega saklausan mann! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.26Bölvaður er sá, sem eigi heldur í gildi orðum þessa lögmáls með því að breyta eftir þeim! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

27.1 Fyrirmæli 5Mós 4.2+ ; 5.31+
27.3 Guð feðranna 5Mós 1.11+ – öll ákvæði þessa lögmáls 5Mós 17.19, 28.58; 29.28; 31.12; 32.46
27.5 Altari 2Mós 20.25; Jós 8.31
27.7 Gleðjast 5Mós 12.7+
27.8 Skýra lögmálið 5Mós 1.5
27.9 Levítaprestar 5Mós 17.9+ – allur Ísrael 5Mós 1.1+ – hlýð á, Ísrael 5Mós 4.1+ – þjóð Drottins sbr 5Mós 26.17-19
27.10 Hlýða rödd Drottins 5Mós 4.30+
27.15 Steypt líkneski 3Mós 19.4+ – Drottni viðurstyggð 5Mós 7.25+
27.16 Óvirða foreldra sína 2Mós 21.17+ ; sbr 3Mós 19.3+
27.17 Landamerki 5Mós 19.14
27.18 Hjálpa blindum 3Mós 19.14+
27.19 Ekki halla rétti 5Mós 16.19; 24.17 – aðkomumaður, munaðarleysingi, ekkja 5Mós 10.18+
27.20 Með konu föður síns 3Mós 18.8+
27.21 Samræði við skepnu 3Mós 18.23+
27.22 Með systur sinni 3Mós 18.9+
27.23 Með tengdamóður sinni 3Mós 18.17+
27.24 Vega 2Mós 21.12; 3Mós 24.17; sbr 5Mós 5.17; 2Mós 20.13
27.25 Múta 2Mós 23.8+ ; sbr 5Mós 10.17
27.26 Virða lögmálið 2Kon 23.24; Gal 3.10