1Mér býður við lífi mínu, ég ætla því að gefa kveinstöfum mínum lausan tauminn, ætla að tala í sálarkvöl minni.2Ég segi við Guð: Sakfell mig ekki! lát mig vita, hvers vegna þú deilir við mig.3Er það ávinningur fyrir þig, að þú undirokar, að þú hafnar verki handa þinna, en lætur ljós skína yfir ráðagerð hinna óguðlegu?4Hefir þú holdleg augu, eða sér þú eins og menn sjá?5Eru dagar þínir eins og dagar mannanna, eru ár þín eins og mannsævi,6er þú leitar að misgjörð minni og grennslast eftir synd minni,7þótt þú vitir, að ég er ekki sekur, og að enginn frelsar af þinni hendi?8Hendur þínar hafa skapað mig og myndað mig, allan í krók og kring, og samt ætlar þú að tortíma mér?9Minnstu þó þess, að þú myndaðir mig sem leir, og nú vilt þú aftur gjöra mig að dufti.10Hefir þú ekki hellt mér sem mjólk og hleypt mig sem ost?11Hörundi og holdi klæddir þú mig og ófst mig saman úr beinum og sinum.12Líf og náð veittir þú mér, og umsjá þín varðveitti andardrátt minn.13En þetta falst þú í hjarta þínu, ég veit þú hafðir slíkt í hyggju.14Ef ég syndgaði, þá ætlaðir þú að hafa gætur á mér og eigi sýkna mig af misgjörð minni.15Væri ég sekur, þá vei mér! Og þótt ég væri réttlátur, þá mundi ég samt ekki bera höfuð mitt hátt, mettur af smán og þjakaður af eymd.16Og ef ég reisti mig upp, þá mundir þú elta mig sem ljón, og ávallt að nýju sýna á mér undramátt þinn.17Þú mundir leiða fram ný vitni á móti mér og herða á gremju þinni gegn mér, senda nýjan og nýjan kvalaher á hendur mér.18Hvers vegna útleiddir þú mig þá af móðurlífi? Ég hefði átt að deyja, áður en nokkurt auga leit mig!19Ég hefði átt að verða eins og ég hefði aldrei verið til, verið borinn frá móðurkviði til grafar!20Eru ekki dagar mínir fáir? Slepptu mér, svo að ég megi gleðjast lítið eitt,21áður en ég fer burt og kem aldrei aftur, fer í land myrkurs og niðdimmu,22land svartamyrkurs sem um hánótt, land niðdimmu og skipuleysis, þar sem birtan sjálf er sem svartnætti.

10.1 Sálarkvöl Job 7.11+
10.2 Skýrðu fyrir mér Job 6.24+
10.4 Guð sér 1Sam 16.7
10.7 Enginn slítur… 5Mós 32.39; SSal 16.15
10.8 Guð mótaði manninn Job 33.6; 1Mós 2.7; Jes 64.7 – Guð tortímir Job 2.3
10.11 Fléttaðir mig Jer 1.5; Slm 139.13
10.18 Úr móðurkviði Job 3.3+ ; 3.11-13
10.20 Lífið er stutt Job 7.7+