1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig.2Hvort sem ég sit eða stend, þá veist þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar.3Hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það, og alla vegu mína gjörþekkir þú.4Því að eigi er það orð á tungu minni, að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls.5Þú umlykur mig á bak og brjóst, og hönd þína hefir þú lagt á mig.6Þekking þín er undursamlegri en svo, að ég fái skilið, of háleit, ég er henni eigi vaxinn.7Hvert get ég farið frá anda þínum og hvert flúið frá augliti þínu?8Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar, þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar.9Þótt ég lyfti mér á vængi morgunroðans og settist við hið ysta haf,10einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér.11Og þótt ég segði: Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,12þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur, myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér.13Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi.14Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel.15Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar.16Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn.17En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar.18Ef ég vildi telja þær, væru þær fleiri en sandkornin, ég mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér.19Ó að þú, Guð, vildir fella níðingana. Morðingjar! Víkið frá mér.20Þeir þrjóskast gegn þér með svikum og leggja nafn þitt við hégóma.21Ætti ég eigi, Drottinn, að hata þá, er hata þig, og hafa viðbjóð á þeim, er rísa gegn þér?22Ég hata þá fullu hatri, þeir eru orðnir óvinir mínir.23Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt, rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar,24og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg.

139.1 Þú þekkir mig Slm 11.4-5; Jer 12.3; 1 Kro 28.9; Heb 4.13 – hvort sem … 2Kon 19.27
139.2 Skynjar hugrenningar mínar Am 4.13; Job 31.4
139.6 Undursamleg þekking Job 11.7-9; Róm 11.33
139.8-10 Hvergi óhultur Jer 23.23-24
139.8 Upp í himininn Am 9.2-4
139.9 Vængir Slm 55.7
139.12 Myrkur og ljós Job 12.22; 34.21-22; 1Kor 4.5
139.14-15 Gjörður í leyni Job 10.8-12; Préd 11.5
139.17 Hugsanir þínar Slm 40.6
139.19 Víkið frá mér! Slm 6.9+
139.23 Prófa mig Slm 26.2+ ; Job 31.6
139.24 Leið mig Slm 5.9+