1Um Móab. Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Vei yfir Nebó, því að hún er eydd, orðin til skammar, Kirjataím er unnin, háborgin er orðin til skammar og skelfd.2Frægð Móabs er farin. Í Hesbon brugga menn ill ráð gegn borginni: Komið, vér skulum uppræta hana, svo að hún sé eigi framar þjóð! Einnig þú, Madmen, munt gjöreydd verða, sverðið eltir þig!3Neyðarkvein heyrist frá Hórónaím: Eyðing og ógurleg tortíming!4Móab er í eyði lagður, þeir láta neyðarkvein heyrast allt til Sóar,5því að grátandi ganga þeir upp stíginn hjá Lúkít, já, í hlíðinni hjá Hórónaím heyra menn neyðarkvein tortímingarinnar.6Flýið, forðið lífi yðar, og verðið eins og einirunnur í eyðimörkinni!7Af því að þú reiddir þig á káksmíðar þínar og fjársjóðu þína, verður þú og unnin, og Kamos verður að fara í útlegð, prestar hans og höfðingjar hver með öðrum.8Eyðandinn kemur yfir hverja borg, engin borg kemst undan. Dalurinn ferst og sléttlendið eyðileggst, eins og Drottinn hefir sagt.9Fáið Móab vængi, því að á flugferð skal hann brott fara, og borgir hans skulu verða að auðn og enginn í þeim búa.10Bölvaður sé sá, sem slælega framkvæmir verk Drottins, og bölvaður sé sá, sem synjar sverði sínu um blóð!11Móab hefir lifað í friði frá æsku og legið í náðum á dreggjum sínum. Honum hefir ekki verið hellt úr einu kerinu í annað, og aldrei hefir hann farið í útlegð. Fyrir því hefir bragðið af honum haldist og ilmurinn af honum eigi breytst.12Sjá, þeir dagar munu því koma, segir Drottinn, að ég sendi honum tæmendur, sem tæma hann. Þeir skulu hella úr kerum hans og mölva sundur krúsir hans.13Þá mun Móab verða til skammar vegna Kamoss, eins og Ísraels hús varð til skammar vegna Betel, er það treysti á.14Hvernig getið þér sagt: Vér erum hetjur og öflugir hermenn?15Eyðandi Móabs og borga hans kemur þegar, og úrval æskumanna hans hnígur niður til slátrunar segir konungurinn. Drottinn allsherjar er nafn hans.16Eyðilegging Móabs er komin nærri og óhamingja hans hraðar sér mjög.17Vottið honum hluttekning, allir þér nábúar hans, og allir þér, sem þekkið nafn hans. Segið: Hvernig brotnaði stafurinn sterki, sprotinn dýrlegi!18Stíg niður úr vegsemdinni og sest í duftið, þú sem þar býr, dóttirin Díbon, því að eyðandi Móabs kemur í móti þér, eyðir vígi þín.19Gakk út á veginn og skyggnst um, þú sem býr í Aróer, spyr flóttamanninn og þá konu, er undan hefir komist, og seg: Hvað hefir til borið?20Móab varð til skammar, já skelfdist. Hljóðið og kveinið! Kunngjörið hjá Arnon, að Móab sé eyddur.21Dómur er genginn yfir sléttulandið, yfir Hólon og Jahsa og Mefaat,22yfir Díbon, Nebó og Bet-Díblataím,23yfir Kirjataím, Bet-Gamúl og Bet-Meon,24yfir Keríót, Bosra, og allar borgir Móabslands, fjær og nær.25Horn Móabs er afhöggvið og armur hans brotinn segir Drottinn.26Gjörið hann drukkinn því að gegn Drottni hefir hann miklast, til þess að Móab skelli ofan í spýju sína og verði líka að athlægi.27Eða var Ísrael þér eigi hlátursefni? Var hann gripinn með þjófum, þar sem þú hristir höfuðið í hvert sinn sem þú talar um hann?28Yfirgefið borgirnar og setjist að í klettaskorum, þér íbúar Móabs, og verið eins og dúfan, sem hreiðrar sig hinum megin á gjárbarminum.29Heyrt höfum vér um drambsemi Móabs hann er mjög hrokafullur um hroka hans, drambsemi, ofmetnað og yfirlæti hans.30Já, ég þekki segir Drottinn ofsa hans: Svo marklaus eru stóryrði hans, svo marklaust það, er þeir gjöra.31Fyrir því kveina ég yfir Móab og hljóða yfir Móab öllum, yfir mönnunum frá Kír-Heres mun andvarpað verða.32Meir en grátið verður yfir Jaser, græt ég yfir þér, vínviður Síbma. Greinar þínar fóru yfir hafið, komust til Jaser, á sumargróða þinn og vínberjatekju hefir eyðandinn ráðist.33Fögnuður og kæti er horfin úr aldingörðunum og úr Móabslandi. Vínið læt ég þverra í vínþröngunum, troðslumaðurinn mun eigi framar troða, fagnaðarópið er ekkert fagnaðaróp.34Frá hinni kveinandi Hesbon allt til Eleale, allt til Jahas láta þeir raust sína glymja, frá Sóar allt til Hórónaím, allt til Eglat-Selisía, því að einnig Nimrímvötn verða að öræfum.35Og ég eyði úr Móab segir Drottinn sérhverjum þeim, sem stígur upp á fórnarhæð og færir guði sínum reykelsi.36Fyrir því kveinar hjarta mitt yfir Móab eins og hljóðpípur og hjarta mitt kveinar yfir mönnunum frá Kír-Heres eins og hljóðpípur, fyrir því misstu þeir það, er þeir höfðu dregið saman.37Því að hvert höfuð er sköllótt orðið og allt skegg af rakað, á öllum handleggjum eru skinnsprettur, og hærusekkur um mjaðmir.38Uppi á öllum þökum í Móab og á torgunum heyrist ekki annað en harmakvein, því að ég hefi brotið Móab eins og ker, sem engum manni geðjast að, segir Drottinn.39Hversu er hann skelfdur! Hljóðið! Hversu hefir Móab snúið baki við! Fyrirverð þig! Og Móab skal verða til athlægis og skelfingar öllum nágrönnum sínum.40Svo segir Drottinn: Sjá, hann kemur fljúgandi eins og örn og breiðir vængi sína út yfir Móab.41Borgirnar eru teknar og vígin unnin, og hjarta Móabs kappa mun á þeim degi verða eins og hjarta konu, sem er í barnsnauð.42En Móab mun afmáður verða, svo að hann verði eigi þjóð framar, því að hann hefir miklast gegn Drottni.43Geigur, gröf og gildra koma yfir þig, Móabsbúi segir Drottinn.44Sá, sem flýr undan geignum, fellur í gröfina, og sá, sem kemst upp úr gröfinni, festist í gildrunni. Því að þetta leiði ég yfir Móab árið, sem þeim verður hegnt segir Drottinn.45Í skugga Hesbon nema flóttamenn staðar magnlausir, en eldur brýst út úr Hesbon og logi úr höll Síhons, hann eyðir þunnvanganum á Móab og hvirflinum á hávaðamönnum.46Vei þér, Móab! Það er úti um lýð Kamoss! Því að synir þínir munu verða fluttir burt til herleiðingar og dætur þínar hernumdar.47En ég mun snúa við högum Móabs, þá er fram líða stundir segir Drottinn. Hér lýkur dómsorðunum yfir Móab.

48.1 Um Móab Jer 25.21; Am 2.1+ ; sbr 1Mós 19.30-38; 4Mós 22-24; 5Mós 23.3-6 – Kirjataím 4Mós 32.37; Jós 13.19
48.2 Hesbon 4Mós 21.26-27; 32.37; 5Mós 1.4; 2.24-25; Jós 9.10; 13.1,17 o.fl.
48.5 Stígurinn við Lúkít Jes 15.5
48.7 Eigin verk Jer 17.5; Jes 2.22; Fil 3.4 – og auði Jer 49.4; Slm 25.9, Okv 11.28 – Kamos 1Kon 11.7; 2Kon 23.13 – í útlegð Jer 49.3
48.11 Land vínviðarins Jer 48.32-33; Jes 16.7-10
48.13 Smánaður Jer 46.15; 49.3; 50.2; sbr Jes 46.1-2 – falstraust Jer 2.37
48.15 Drottinn hersveitanna Jer 46.18+
48.18 Díbon 4Mós 32.34; Jós 13.17; Jes 15.2
48.19 Aróer 4Mós 32.34; 5Mós 2.36; 3.12; Jós 13.9
48.20 Arnon 4Mós 21.13; 22.36; 5Mós 2.24,36; Jós 13.9; Dóm 11.13
48.25 Brotinn armur Esk 30.21; Slm 37.17
48.26 Drukkinn (dómur) Jer 25.15+ – hreykja sér gegn Drottni Jer 48.42; sbr 50.29; Jes 2.12; Sef 2.8,10; Slm 35.26; 38.17; 55.13; Job 19.5; Dan 5.23
48.27 Meðal þjófa Jer 2.26
48.29 Hroki Móabs Jes 16.6; Sef 2.8-10
48.30 Marklaus gífuryrði Jer 8.6
48.32 Jaser 4Mós 21.32; 32.1; Jós 13.25; 21.39; 2Sam 24.5 – vínviður Síbma Jes 16.8-9; sbr 4Mós 32.38; Jós 13.19
48.33 Fögnuður horfin Jes 16.10
48.34 Eleale 4Mós 32.3,37 – Jahas Jes 15.4 – Sóar 1Mós 19.22-23 – Eglat-Selisía Jes 15.5 – Nimrím Jes 15.6
48.35 Fórnarhæð Jer 17.3
48.36 Hjarta mitt titrar Jer 4.19 – vegna Móab Jes 16.11
48.37 Höfuð rakað, skinnsprettur Jes 15.2-3; Jer 49.3
48.38 Gagnslaust Jer 22.28
48.41 Kona í barnsnauð Jer 4.31
48.42 Hreykti sér Jer 48.26+
48.43 Geigur, gryfja og gildra Jes 24.17-18; Hlj 3.47
48.44 Sá, sem flýr Am 5.19 – geigur Jer 49.5; 1Mós 31.42,53 – hegningarár Jer 8.12+
48.45 Eldur úr Hesbon 4Mós 21.28 – þunnvanga 4Mós 24.17
48.46 Kamos er glötuð 4Mós 21.29
48.47 Snúa við högum Jer 12.15+
49.1 Um Ammóníta Jer 25.21; Am 1.13+ ; 1Mós 19.38; 5Mós 2.19; 2Kon 24.2 – Milkóm 1Kon 11.5,33; 2Kon 23.13 – Gað 4Mós 32.1-36; Jós 13.24-28