1Davíðssálmur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.2Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.3Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.4Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.5Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur.6Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi.

23.1 Drottinn, hirðir Slm 28.9; 80.2; Esk 34.11-16; sbr Jóh 10.11-16
23.2 Hann leiðir mig Slm 73.24; Okv 4.11
23.3 Sakir nafns síns Slm 25.11; 31.4; 79.9; 106.8; 109.21; Jer 14.7; Esk 20.9
23.5 Borð Slm 78.19 – með olíu Slm 92.11; 133.2; Préd 9.8
23.6 Náð Slm 17.7+ – í húsi Drottins Slm 27.4