1Þá tók Jesús enn að tala við þá í dæmisögum og mælti:2Líkt er um himnaríki og konung einn, sem gjörði brúðkaup sonar síns.3Hann sendi þjóna sína að kalla til brúðkaupsins þá, sem boðnir voru, en þeir vildu ekki koma.4Aftur sendi hann aðra þjóna og mælti: Segið þeim, sem boðnir voru: Veislu mína hef ég búið, uxum mínum og alifé er slátrað, og allt er tilbúið, komið í brúðkaupið.5En þeir skeyttu því ekki. Einn fór á akur sinn, annar til kaupskapar síns,6en hinir tóku þjóna hans, misþyrmdu þeim og drápu.7Konungur reiddist, sendi út her sinn og lét tortíma morðingjum þessum og brenna borg þeirra.8Síðan segir hann við þjóna sína: Brúðkaupsveislan er tilbúin, en hinir boðnu voru ekki verðugir.9Farið því út á vegamót, og bjóðið í brúðkaupið hverjum þeim sem þér finnið.10Þjónarnir fóru út á vegina og söfnuðu öllum, sem þeir fundu, vondum og góðum, svo að brúðkaupssalurinn varð alskipaður gestum.11Konungur gekk þá inn að sjá gestina og leit þar mann, sem var ekki búinn brúðkaupsklæðum.12Hann segir við hann: Vinur, hvernig ert þú hér kominn og ert ekki í brúðkaupsklæðum? Maðurinn gat engu svarað.13Konungur sagði þá við þjóna sína: Bindið hann á höndum og fótum og varpið honum í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.14Því að margir eru kallaðir, en fáir útvaldir.15Þá gengu farísearnir burt og tóku saman ráð sín, hvernig þeir gætu flækt hann í orðum.16Þeir senda til hans lærisveina sína ásamt Heródesarsinnum, og þeir segja: Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og kennir Guðs veg í sannleika, þú hirðir ekki um álit neins, enda gjörir þú þér engan mannamun.17Seg oss því, hvað þér líst? Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki?18Jesús þekkti illsku þeirra og sagði: Hví freistið þér mín, hræsnarar?19Sýnið mér peninginn, sem goldinn er í skatt. Þeir fengu honum denar.20Hann spyr: Hvers mynd og yfirskrift er þetta?21Þeir svara: Keisarans. Hann segir: Gjaldið þá keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.22Þegar þeir heyrðu þetta, undruðust þeir, og þeir yfirgáfu hann og gengu burt.23Sama dag komu til hans saddúkear, en þeir neita því, að upprisa sé til, og sögðu við hann:24Meistari, Móse segir: Deyi maður barnlaus, þá skal bróðir hans ganga að eiga konu bróður síns og vekja honum niðja.25Hér voru með oss sjö bræður. Sá fyrsti kvæntist og dó. Hann átti engan niðja og eftirlét því bróður sínum konuna.26Eins varð um næsta og þriðja og þá alla sjö.27Síðast allra dó konan.28Kona hvers þeirra sjö verður hún í upprisunni? Allir höfðu þeir átt hana.29En Jesús svaraði þeim: Þér villist, því að þér þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs.30Í upprisunni kvænast menn hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himni.31En um upprisu dauðra hafið þér ekki lesið það sem Guð segir við yður:32Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda.33En mannfjöldinn hlýddi á og undraðist mjög kenningu hans.34Þegar farísear heyrðu, að hann hafði gjört saddúkea orðlausa, komu þeir saman.35Og einn þeirra, sem var lögvitringur, vildi freista hans og spurði:36Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?37Hann svaraði honum: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.38Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð.39Annað er þessu líkt: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.40Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir.41Meðan farísearnir voru saman komnir, spurði Jesús þá:42Hvað virðist yður um Krist? Hvers son er hann? Þeir svara: Davíðs.43Hann segir: Hvernig getur þá Davíð, innblásinn andanum, kallað hann drottin? Hann segir:44Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.45Fyrst Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?46Enginn gat svarað honum einu orði, og frá þeim degi þorði enginn að spyrja hann neins framar.

22.1-14 Hlst. Lúk 14.15-24
22.2 Brúðkaup Matt 9.15 og hlst.; 25.1-12
22.6 Drápu þjónana Matt 21.35+
22.10 Vondir og góðir sbr Matt 9.9-13; 13.37-43
22.13 Í ystur myrkur Matt 8.12+ – grátur og gnístran tanna Matt 8.12+
22.15-22 Hlst. Mrk 12.13-17; Lúk 20.20-26
22.15 Ráðagerðir gegn Jesú Matt 12.14+ – Jesú freistað Matt 16.1+
22.18 Hræsnarar Matt 6.2+
22.21 Gjalda keisaranum Róm 13.7
22.23-33 Hlst. Mrk 12.18-27; Lúk 20.27-40
22.24 Mágsskyldur 1Mós 38.8; 5Mós 25.5-10
22.32 2Mós 3.6,15,16
22.33 Undruðust kenningu Jesú Matt 7.28; 13.54; Mrk 11.18; Jóh 7.15
22.34-40 Hlst. Mrk 12.28-34; Lúk 10.25-28
22.35 Jesú freistað Matt 16.1+
22.37 Sbr 5Mós 6.5; Jós 22.5
22.39 Sbr 3Mós 19.18; Matt 5.43; 19.19; Róm 13.9; Gal 5.14; Jak 2.8
22.40 Lögmálið og spámennirnir Matt 7.12+ ; sbr Róm 13.10
22.41-46 Hlst. Mrk 12.35-37; Lúk 20.41-44
22.42 Sonur Davíðs Matt 1.1+
22.44 Sbr Slm 110.1; Matt 26.64 og hlst.; Mrk 16.19; Post 2.34-35; Róm 8.34; 1Kor 15.25; Ef 1.20; Kól 3.1; Heb 1.3,13; 8.1; 10.12-13; 12.2
22.46 Enginn þorði Mrk 12.34; Lúk 20.40