1Drottinn sagði við Móse: Far nú héðan með fólkið, sem þú leiddir burt af Egyptalandi, til þess lands, sem ég sór Abraham, Ísak og Jakob, er ég sagði: Niðjum þínum vil ég gefa það.2Ég vil senda engil á undan þér og reka burt Kanaaníta, Amoríta, Hetíta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta,3til þess lands, sem flýtur í mjólk og hunangi, því að ekki vil ég sjálfur fara þangað með þér, af því að þú ert harðsvíraður lýður, að eigi tortími ég þér á leiðinni.4En er fólkið heyrði þennan ófögnuð, urðu þeir hryggir, og enginn maður bjó sig í skart.5Þá sagði Drottinn við Móse: Seg Ísraelsmönnum: Þér eruð harðsvíraður lýður. Væri ég eitt augnablik með þér á leiðinni, mundi ég tortíma þér. Legg nú af þér skart þitt, svo að ég viti, hvað ég á að gjöra við þig.6Þá lögðu Ísraelsmenn niður skart sitt undir Hórebfjalli og báru það eigi upp frá því.7Móse tók tjaldið og reisti það fyrir utan herbúðirnar, spölkorn frá þeim, og kallaði það samfundatjald, og varð hver sá maður, er leita vildi til Drottins, að fara út til samfundatjaldsins, sem var fyrir utan herbúðirnar.8Og þegar Móse gekk út til tjaldsins, þá stóð upp allur lýðurinn og gekk hver út í sínar tjalddyr og horfði á eftir honum, þar til er hann var kominn inn í tjaldið.9Er Móse var kominn inn í tjaldið, steig skýstólpinn niður og nam staðar við tjalddyrnar, og Drottinn talaði við Móse.10Og allur lýðurinn sá skýstólpann standa við tjalddyrnar. Stóð þá allt fólkið upp og féll fram, hver fyrir sínum tjalddyrum.11En Drottinn talaði við Móse augliti til auglitis, eins og maður talar við mann. Því næst gekk Móse aftur til herbúðanna, en þjónn hans, sveinninn Jósúa Núnsson, vék ekki burt úr tjaldinu.12Móse sagði við Drottin: Sjá, þú segir við mig: Far með fólk þetta. En þú hefir ekki látið mig vita, hvern þú ætlar að senda með mér. Og þó hefir þú sagt: Ég þekki þig með nafni, og þú hefir einnig fundið náð í augum mínum.13Hafi ég nú fundið náð í augum þínum, þá bið ég: Gjör mér kunna þína vegu, að ég megi þekkja þig, svo að ég finni náð í augum þínum, og gæt þess, að þjóð þessi er þinn lýður.14Drottinn sagði: Auglit mitt mun fara með og búa þér hvíld.15Móse sagði við hann: Fari auglit þitt eigi með, þá lát oss eigi fara héðan.16Af hverju mega menn ella vita, að ég og lýður þinn hafi fundið náð í augum þínum? Hvort eigi af því, að þú farir með oss, og ég og þinn lýður verðum ágættir framar öllum þjóðum, sem á jörðu búa?17Þá sagði Drottinn við Móse: Einnig þetta, er þú nú mæltir, vil ég gjöra, því að þú hefir fundið náð í augum mínum, og ég þekki þig með nafni.18En Móse sagði: Lát mig þá sjá dýrð þína!19Hann svaraði: Ég vil láta allan minn ljóma líða fram hjá þér, og ég vil kalla nafnið Drottinn frammi fyrir þér. Og ég vil líkna þeim, sem ég vil líkna, og miskunna þeim, sem ég vil miskunna.20Og enn sagði hann: Þú getur eigi séð auglit mitt, því að enginn maður fær séð mig og lífi haldið.21Drottinn sagði: Sjá, hér er staður hjá mér, og skalt þú standa uppi á berginu.22En þegar dýrð mín fer fram hjá, vil ég láta þig standa í bergskorunni, og mun ég byrgja þig með hendi minni, uns ég er kominn fram hjá.23En þegar ég tek hönd mína frá, munt þú sjá á bak mér. En auglit mitt fær enginn maður séð.

33.1 Fyrirheit um land 1Mós 12.7; 26.3-4; 28.13
33.7 Búðirnar sbr 4Mós 2.2
33.11 Augliti til auglitis 4Mós 12.6-8; 5Mós 34.10 – Jósúa 4Mós 13.8; 14.6; 5Mós 34.9; Jós 1.1; Sír 46.1-6
33.13 Þekkja vegu Drottins Slm 25.4
33.14 Hvíld Jós 21.44; Slm 95.11; Heb 4.1-11
33.18 Dýrð Drottins 2Mós 40.34; 3Mós 9.23; 1Kon 8.11; Jes 6.3; 60.1-2; Matt 17.1-9 og hlst.; Jóh 1.14
33.19 Ég líkna … Róm 9.15
33.20 Enginn fær séð Guð 3Mós 16.2; 5Mós 5.24; Dóm 6.22-23; Jes 6.5
33.22 Klettaskoran 1Kon 19.13