1Heyrið, synir, áminning föður yðar og hlýðið til, svo að þér lærið hyggindi!2Því að góðan lærdóm gef ég yður, hafnið eigi kenning minni!3Þegar ég var sonur í föðurhúsum, viðkvæmt einkabarn heima hjá móður minni,4þá kenndi faðir minn mér og sagði við mig: Hjarta þitt haldi fast orðum mínum, varðveit þú boðorð mín, og muntu lifa!5Afla þér visku, afla þér hygginda! Gleym eigi og vík eigi frá orðum munns míns!6Hafna henni eigi, þá mun hún varðveita þig, elska hana, þá mun hún vernda þig.7Upphaf viskunnar er: afla þér visku, afla þér hygginda fyrir allar eigur þínar!8Haf hana í hávegum, þá mun hún hefja þig, hún mun koma þér til vegs, ef þú umfaðmar hana.9Hún mun setja yndislegan sveig á höfuð þér, sæma þig prýðilegri kórónu.10Heyr þú, son minn, og veit viðtöku orðum mínum, þá munu æviár þín mörg verða.11Ég vísa þér veg spekinnar, leiði þig á brautir ráðvendninnar.12Gangir þú þær, skal leið þín ekki verða þröng, og hlaupir þú, skalt þú ekki hrasa.13Haltu fast í agann, slepptu honum ekki, varðveittu hann, því að hann er líf þitt.14Kom þú eigi á götu óguðlegra og gakk eigi á vegi vondra manna.15Sneið hjá honum, farðu hann ekki, snú þú frá honum og farðu fram hjá.16Því að þeir geta ekki sofið, nema þeir hafi gjört illt, og þeim kemur ekki dúr á auga, nema þeir hafi fellt einhvern.17Því að þeir eta glæpabrauð og drekka ofbeldisvín.18Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi, sem verður æ skærari fram á hádegi.19Vegur óguðlegra er eins og niðamyrkur, þeir vita ekki, um hvað þeir hrasa.20Son minn, gef gaum að ræðu minni, hneig eyra þitt að orðum mínum.21Lát þau eigi víkja frá augum þínum, varðveit þau innst í hjarta þínu.22Því að þau eru líf þeirra, er öðlast þau, og lækning fyrir allan líkama þeirra.23Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins.24Haltu fláræði munnsins burt frá þér og lát fals varanna vera fjarri þér.25Augu þín líti beint fram og augnalok þín horfi beint fram undan þér.26Gjör braut fóta þinna slétta, og allir vegir þínir séu staðfastir.27Vík hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum burt frá illu.

4.4 Varðveita kenninguna Okv 3.1+
4.5 Afla þér visku Okv 4.7; Matt 13.44-46
4.10 Langlífi Okv 3.2+
4.13 Speki og líf Okv 3.18,22; 6.23; 10.17; 13.14; Sír 21.13; sbr Okv 3.2+
4.14-19 Ranglátir og réttlátir Okv 3.33+
4.27 Víktu ekki 5Mós 5.32; 28.14