1Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni á tíunda ríkisári Sedekía konungs í Júda, það var átjánda ríkisár Nebúkadresars.2Þá sat her Babelkonungs um Jerúsalem, en Jeremía spámaður var í varðhaldi í varðgarðinum, sem heyrir til hallar Júdakonungs.3En Sedekía Júdakonungur hafði látið setja hann inn með þeim ummælum: Hví spáir þú og segir: Svo segir Drottinn: Sjá, ég sel þessa borg í hendur Babelkonungi, að hann vinni hana,4og Sedekía Júdakonungur mun ekki komast undan valdi Kaldea, heldur mun hann áreiðanlega verða seldur á vald Babelkonungi, og hann mun tala við hann munni til munns og sjá hann augliti til auglitis,5og til Babýlon mun hann flytja Sedekía, og þar mun hann verða, uns ég vitja hans segir Drottinn. Þegar þér berjist við Kaldea, munuð þér enga sigurför fara?6Jeremía svaraði: Orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:7Sjá, Hanameel, sonur Sallúms föðurbróður þíns, mun til þín koma og segja: Kaup þú akur minn í Anatót, því að þú átt innlausnarréttinn að kaupa hann.8Og Hanameel frændi minn kom til mín í varðgarðinn, eins og Drottinn hafði fyrir sagt, og sagði við mig: Kaup þú akur minn í Anatót, sem er í Benjamínslandi, því að þú átt erfða- og innlausnarréttinn kaup þú hann! Þá sá ég, að það var orð frá Drottni,9keypti akurinn í Anatót af Hanameel frænda mínum og vó honum út andvirðið, seytján sikla silfurs.10Og ég skrifaði það á bréf og innsiglaði það og tók votta að og vó silfrið á vog.11Síðan tók ég kaupbréfið, hið innsiglaða ákvæðin og skilmálana og opna bréfið,12og fékk kaupbréfið Barúk Neríasyni, Mahasejasonar, í viðurvist Hanameels frænda míns og í viðurvist vottanna, er skrifað höfðu undir kaupbréfið, í viðurvist allra þeirra Júdamanna, er sátu í varðgarðinum,13og lagði svo fyrir Barúk í viðurvist þeirra:14Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Tak þessi bréf, þetta innsiglaða kaupbréf og þetta opna kaupbréf, og legg þau í leirker, til þess að þau varðveitist lengi.15Því að svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Enn skulu hús keypt verða og akrar og víngarðar í þessu landi.16Og er ég hafði fengið Barúk Neríasyni kaupbréfið, bað ég til Drottins á þessa leið:17Æ, herra Drottinn, sjá, þú hefir með þínum mikla mætti og útrétta armlegg gjört himin og jörð. Þér er enginn hlutur um megn!18Þú sem auðsýnir miskunn þúsundum og geldur misgjörð feðranna í skaut sonum þeirra eftir þá, þú mikli, voldugi Guð, er nefnist Drottinn allsherjar,19mikill í ráðum og máttugur í athöfnum, þú hvers augu standa opin yfir öllum vegum mannanna barna til þess að gjalda sérhverjum eftir breytni hans og eftir ávexti verka hans,20þú sem hefir gjört tákn og undur á Egyptalandi og allt fram á þennan dag, bæði á Ísrael og á öðrum mönnum, og afrekað þér mikið nafn fram á þennan dag.21Þú fluttir þjóð þína Ísrael af Egyptalandi með táknum og undrum og með sterkri hendi og útréttum armlegg og mikilli skelfingu22og gafst þeim þetta land, er þú sórst feðrum þeirra að gefa þeim, land, sem flýtur í mjólk og hunangi.23En er þeir voru komnir inn í það og höfðu tekið það til eignar, þá hlýddu þeir ekki þinni raustu, breyttu ekki eftir lögmáli þínu og gjörðu ekki neitt af því, er þú hafðir boðið þeim að gjöra. Þá lést þú alla þessa ógæfu þeim að höndum bera.24Sjá, sóknarvirkin eru þegar komin að borginni til að vinna hana, og borgin er fyrir sakir sverðs, hungurs og drepsóttar seld á vald Kaldea, sem á hana herja, og það, sem þú hótaðir, er fram komið, og sjá, þú horfir á það.25Og þó sagðir þú við mig, herra Drottinn: Kaup þér akurinn fyrir silfur og tak votta að! þótt borgin sé seld á vald Kaldea.26Þá kom orð Drottins til Jeremía:27Sjá, ég er Drottinn, Guð alls holds. Er mér nokkur hlutur um megn?28Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, ég sel þessa borg á vald Kaldea og á vald Nebúkadresars Babelkonungs, að hann vinni hana,29og Kaldear, sem herja á þessa borg, munu brjótast inn í hana, og leggja eld í þessa borg og brenna hana og húsin, þar sem þeir á þökunum færðu Baal reykelsisfórnir og færðu öðrum guðum dreypifórnir til þess að egna mig til reiði.30Því að Ísraelsmenn og Júdamenn hafa frá æsku sinni verið vanir að gjöra það eitt, sem mér mislíkaði, því að Ísraelsmenn hafa aðeins egnt mig til reiði með handaverkum sínum segir Drottinn.31Já, þessi borg hefir verið mér tilefni til reiði og gremi frá þeim degi, er hún var reist, allt fram á þennan dag, svo að ég verð að taka hana burt frá augliti mínu,32sökum allrar illsku Ísraelsmanna og Júdamanna, er þeir hafa í frammi haft til þess að egna mig til reiði, konungar þeirra, höfðingjar þeirra, prestar þeirra og spámenn þeirra, Júdamenn og Jerúsalembúar.33Þeir sneru við mér bakinu, en ekki andlitinu, og þótt ég fræddi þá seint og snemma, þá hlýddu þeir ekki, svo að þeir tækju umvöndun.34Heldur reistu þeir viðurstyggðir sínar upp í húsi því, sem kennt er við nafn mitt, til þess að saurga það.35Þeir byggðu Baal fórnarhæðir í Hinnomssonar-dal, til þess að láta sonu sína og dætur ganga gegnum eldinn Mólok til handa, sem ég hefi ekki boðið þeim og mér hefir ekki í hug komið, að þeir mundu fremja slíka svívirðing, til þess að tæla Júda til syndar.36Og nú fyrir því segir Drottinn, Ísraels Guð, svo um þessa borg, er þér segið að seld sé á vald Babelkonungs með sverði, hungri og drepsótt:37Sjá, ég safna þeim saman úr öllum þeim löndum, þangað sem ég hefi rekið þá í reiði minni og heift og í mikilli gremi, og læt þá snúa aftur hingað og búa hér óhulta.38Þá skulu þeir vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð,39og ég vil gefa þeim eitt hjarta og eina breytni, svo að þeir óttist mig alla daga, þeim sjálfum til heilla og sonum þeirra eftir þá.40Og ég vil gjöra við þá eilífan sáttmála, að ég muni aldrei snúa frá þeim með velgjörðir mínar, og ég vil leggja ótta fyrir mér í hjörtu þeirra, til þess að þeir víki ekki frá mér.41Og það skal verða unun mín að gjöra vel við þá, og ég mun gróðursetja þá í þessu landi í trúfesti, af öllu hjarta og af allri sálu.42Því að svo segir Drottinn: Eins og ég hefi leitt yfir þessa þjóð alla þessa miklu óhamingju, svo leiði ég og yfir þá alla þá hamingju, sem ég heiti þeim.43Og akrar munu aftur keyptir verða í þessu landi, sem þér segið um: Það er auðn, mannlaust og skepnulaust! Það er selt á vald Kaldea!44Akra munu menn kaupa fyrir silfur og skrifa kaupbréf og innsigla og taka votta að, bæði í Benjamínslandi og í umhverfi Jerúsalem og í borgum Júda og í fjallborgunum og í borgunum á sléttlendinu og í borgunum í Suðurlandinu, því að ég mun leiða heim aftur hina herleiddu menn þeirra segir Drottinn.

32.1 Sedekía Jer 1.3+ – atjánda stjórnarár Jer 52.29
32.2 Í garði varðliðsins Jer 32.8,12; 33.1; 37.21; 38.6,13,28; 39.14-15
32.4 Augliti til auglitis Jer 34.3
32.5 Babýlon 2Kon 25.7 – þar til ég vitja Jer 27.22+ ; sbr 23.2 – ekki erindi sem erfiði Jer 37.9-10
32.9 Táknrænar athafnir Jer 13.1+
32.12 Barúk Jer 36.4-32; 43.3; 45.1
32.17 Skapari himins og jarðar Jer 51.15-19; Slm 121.2+ – með miklum mætti Jer 21.5+ – ekkert um megn Jer 32.27; 1Mós 18.14; Sak 8.6; Matt 19.26
32.18 Auðsýna þúsundum tryggð 2Mós 20.6; 5Mós 5.10 – sterki Guð Jer 20.11+ – nafn hans Jer 31.35+
32.19 Guð vakir Jer 11.20+ ; 16.17; Okv 5.21 – eftir verkum Jer 17.10+
32.20 Tákn og stórmerki Slm 78.43+ ; Post 7.36
32.22 Mjólk og hunang Jer 11.5+
32.23 Rót ógæfunnar Neh 9.30
32.27 Guð allra 4Mós 16.22 – nokkuð um megn? Jer 32.17+
32.29 Færa öðrum guðum fórnir Jer 19.13
32.30 Frá æsku Jer 3.25 – illt í augm Drottins Jer 25.6
32.31 Vakið reiði Jer 7.20 – frá upphafi Jer 2.20; Esk 16.3-5,45; 23.3 – frá augliti mínu 2Kon 17.18,23; 23.27
32.32 Vekja reiði Jer 44.3
32.33 Snúa við bakinu Jer 2.27; 15.6 – hlýða ekki Jer 5.3+
32.34-35 Koma fyrir … Jer 7.30-31
32.34 Viðurstyggilegu Jer 4.1+ – í húsinu Jer 7.10+
32.35 Hinnomsonardalur Jer 2.23+ – fyrir Mólok 3Mós 18.21; 20.2; 1Kon 11.7; 2Kon 23.10; sbr Post 7.43
32.37 Safna saman Jer 23.3+ – óhultir Jer 23.6
32.38 Mín þjóð Jer 7.23+
32.39 Eitt hjarta, ein breytni sbr Jer 24.7
32.40 Ævarandi sáttmáli Jes 24.5+ ; Jer 50.5 – Guð reynist vel Jer 29.11,32; Slm 23.6 – ótti Jer 5.22,24; Post 10.2; sbr Jer 2.19
32.41 Drottinn gleðst Sef 3.17; sbr Lúk 15.7 – gróðursetja Jer 1.10+ ; Am 9.15; sbr Jer 2.21
32.42 Eins og … Jer 31.28
32.43 Segið um Jer 32.36; 33.10
32.44 Snúa við Jer 29.14+