1Og hann sagði við þá: Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Guðs ríki komið með krafti.2Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra,3og klæði hans urðu fannhvít og skínandi, og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gjört.4Og þeim birtist Elía ásamt Móse, og voru þeir á tali við Jesú.5Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: Rabbí, gott er, að vér erum hér. Gjörum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.6Hann vissi ekki, hvað hann átti að segja, enda urðu þeir mjög skelfdir.7Þá kom ský og skyggði yfir þá, og rödd kom úr skýinu: Þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann!8Og snögglega, þegar þeir litu í kring, sáu þeir engan framar hjá sér nema Jesú einan.9Á leiðinni ofan fjallið bannaði hann þeim að segja nokkrum frá því, er þeir höfðu séð, fyrr en Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum.10Þeir festu orðin í minni og ræddu um, hvað væri að rísa upp frá dauðum.11Og þeir spurðu hann: Hví segja fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma?12Hann svaraði þeim: Víst kemur Elía fyrst og færir allt í lag. En hvernig er ritað um Mannssoninn? Á hann ekki margt að líða og smáður verða?13En ég segi yður: Elía er kominn, og þeir gjörðu honum allt, sem þeir vildu, eins og ritað er um hann.14Þegar þeir komu til lærisveinanna, sáu þeir mannfjölda mikinn kringum þá og fræðimenn að þrátta við þá.15En um leið og fólkið sá hann, sló þegar felmtri á alla, og þeir hlupu til og heilsuðu honum.16Hann spurði þá: Um hvað eruð þér að þrátta við þá?17En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: Meistari, ég færði til þín son minn, sem málleysis andi er í.18Hvar sem andinn grípur hann, slengir hann honum flötum, og hann froðufellir, gnístir tönnum og stirðnar upp. Ég bað lærisveina þína að reka hann út, en þeir gátu það ekki.19Jesús svarar þeim: Ó, þú vantrúa kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann til mín.20Þeir færðu hann þá til Jesú, en um leið og andinn sá hann, teygði hann drenginn ákaflega, hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi.21Jesús spurði þá föður hans: Hve lengi hefur honum liðið svo? Hann sagði: Frá bernsku.22Og oft hefur hann kastað honum bæði í eld og vatn til að fyrirfara honum. En ef þú getur nokkuð, þá sjá aumur á okkur og hjálpa okkur.23Jesús sagði við hann: Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.24Jafnskjótt hrópaði faðir sveinsins: Ég trúi, hjálpa þú vantrú minni.25Nú sér Jesús, að mannfjöldi þyrpist að. Þá hastar hann á óhreina andann og segir: Þú dumbi, daufi andi, ég býð þér, far út af honum, og kom aldrei framar í hann.26Þá æpti andinn, teygði hann mjög og fór, en sveinninn varð sem nár, svo að flestir sögðu: Hann er dáinn.27En Jesús tók í hönd honum og reisti hann upp, og hann stóð á fætur.28Þegar Jesús var kominn inn og orðinn einn með lærisveinum sínum, spurðu þeir hann: Hví gátum vér ekki rekið hann út?29Hann mælti: Þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn.30Þeir héldu nú brott þaðan og fóru um Galíleu, en hann vildi ekki, að neinn vissi það,31því að hann var að kenna lærisveinum sínum. Hann sagði þeim: Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur, og þeir munu lífláta hann, en þá er hann hefur líflátinn verið, mun hann upp rísa eftir þrjá daga.32En þeir skildu ekki það sem hann sagði og þorðu ekki að spyrja hann.33Þeir komu til Kapernaum. Þegar hann var kominn inn, spurði hann þá: Hvað voruð þér að ræða á leiðinni?34En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á milli á leiðinni, hver væri mestur.35Hann settist niður, kallaði á þá tólf og sagði við þá: Hver sem vill vera fremstur, sé síðastur allra og þjónn allra.36Og hann tók lítið barn, setti það meðal þeirra, tók það sér í faðm og sagði við þá:37Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur ekki aðeins við mér, heldur og við þeim er sendi mig.38Jóhannes sagði við hann: Meistari, vér sáum mann reka út illa anda í þínu nafni, og vildum vér varna honum þess, af því að hann fylgdi oss ekki.39Jesús sagði: Varnið honum þess ekki, því að enginn er sá, að hann gjöri kraftaverk í mínu nafni og geti þegar á eftir talað illa um mig.40Sá sem er ekki á móti oss, er með oss.41Hver sem gefur yður bikar vatns að drekka, vegna þess að þér eruð Krists, sannlega segi ég yður, hann mun alls ekki missa af launum sínum.42Hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem trúa, væri betra að vera varpað í hafið með mylnustein um hálsinn.43Ef hönd þín tælir þig til falls, þá sníð hana af. Betra er þér handarvana inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og fara til helvítis, í hinn óslökkvanda eld.44Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.45Ef fótur þinn tælir þig til falls, þá sníð hann af. Betra er þér höltum inn að ganga til lífsins en hafa báða fætur og verða kastað í helvíti.46Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.47Og ef auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr. Betra er þér eineygðum inn að ganga í Guðs ríki en hafa bæði augu og verða kastað í helvíti,48þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.49Sérhver mun eldi saltast.50Saltið er gott, en ef saltið missir seltuna, með hverju viljið þér þá krydda það? Hafið salt í sjálfum yður, og haldið frið yðar á milli.

9.1 Guðs ríki í nánd Mrk 13.30 – með krafti Róm 1.4
9.2-13 Hlst. Matt 17.1-13; Lúk 9.28-36
9.2-8 Ummyndunin 2Pét 1.17-18
9.2 Pétur, Jakob og Jóhannes Matt 17.1+ ; Mrk 1.29
9.3 Fannhvít klæði Matt 28.3; Opb 3.4; 4.4
9.4 Elía Matt 11.14; 2Kon 2.11-12
9.5 Meistari Mrk 11.21; 14.44-45; Jóh 1.38; sbr Mrk 10.51
9.7 Ský Matt 17.5+ – minn elskaði sonur Mrk 1.11 og hlst. 2Pét 1.17 – hlýðið á hann 5Mós 18.15; Post 3.22
9.9 Bannaði að segja frá Matt 8.4+ ; Mrk 1.25+
9.11-12 Elía fyrst Matt 11.14+ ; sbr Jóh 1.21
9.12 Ritað er Jes 53.3; Slm 22.1-19; sbr Mrk 8.31
9.13 Elía kominn Matt 11.14
9.14-29 Hlst. Matt 17.14-20; Lúk 9.37-43a
9.19 Vantrúa kynslóð Matt 12.39+
9.23 Sá getur allt Matt 21.21; Mrk 11.23-24; Lúk 17.6; sbr Matt 5.36
9.24 Hjálpa vantrú minni Lúk 17.5
9.25 Hasta á Mrk 1.25; Lúk 4.39
9.26 Æpti og fór Mrk 1.26
9.27 Tók í hönd honum Mrk 1.31; 5.41 og hlst. – reis upp Matt 9.25; Mrk 1.31; 5.41; Lúk 7.14; 8.54; Post 3.7
9.30-32 Hlst. Matt 17.22-23; Lúk 9.43b-45
9.31 Þjáningar Mannssonarins Matt 16.21; 20.18-19; Mrk 8.31; 10.33-34; Lúk 18.32-33; 24.7
9.33-37 Hlst. Matt 18.1-5; Lúk 9.46-48
9.34 Hver er mestur? Lúk 22.24
9.35 Þjónn allra Matt 19.30+ ; 20.26+
9.37 Taka við Jesú Matt 10.40; Lúk 10.16; Jóh 13.20
9.38-41 Hlst. Lúk 9.49-50
9.40 Með eða á móti Matt 12.30; Lúk 11.23
9.41 Bikar vatns Matt 10.42
9.42-50 Hlst. Matt 18.6-9; Lúk 17.1-2
9.42 Tæla til falls Matt 5.29
9.43 Hönd Matt 5.30
9.47 Auga Matt 5.29
9.48 Sbr Jes 66.24
9.50 Salt Matt 5.13; Lúk 14.34 – hafið salt Kól 4.6 – haldið frið Róm 12.18; 1Þess 5.13