1Lofa þú Drottin, sála mín! Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill. Þú ert klæddur hátign og vegsemd.2Þú hylur þig ljósi eins og skikkju, þenur himininn út eins og tjalddúk.3Þú hvelfir hásal þinn í vötnunum, gjörir ský að vagni þínum, og ferð um á vængjum vindarins.4Þú gjörir vindana að sendiboðum þínum, bálandi eld að þjónum þínum.5Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar, svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.6Hafflóðið huldi hana sem klæði, vötnin náðu upp yfir fjöllin,7en fyrir þinni ógnun flýðu þau, fyrir þrumurödd þinni hörfuðu þau undan með skelfingu.8Þau gengu yfir fjöllin, steyptust niður í dalina, þangað sem þú hafðir búið þeim stað.9Þú settir takmörk, sem þau mega ekki fara yfir, þau skulu ekki hylja jörðina framar.10Þú sendir lindir í dalina, þær renna milli fjallanna,11þær svala öllum dýrum merkurinnar, villiasnarnir slökkva þorsta sinn.12Yfir þeim byggja fuglar himins, láta kvak sitt heyrast milli greinanna.13Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum, jörðin mettast af ávexti verka þinna.14Þú lætur gras spretta handa fénaðinum og jurtir, sem maðurinn ræktar, til þess að framleiða brauð af jörðinni15og vín, sem gleður hjarta mannsins, olíu, sem gjörir andlitið gljáandi, og brauð, sem hressir hjarta mannsins.16Tré Drottins mettast, sedrustrén á Líbanon, er hann hefir gróðursett17þar sem fuglarnir byggja hreiður, storkarnir, er hafa kýprestrén að húsi.18Hin háu fjöll eru handa steingeitunum, klettarnir eru hæli fyrir stökkhérana.19Þú gjörðir tunglið til þess að ákvarða tíðirnar, sólin veit, hvar hún á að ganga til viðar.20Þegar þú gjörir myrkur, verður nótt, og þá fara öll skógardýrin á kreik.21Ljónin öskra eftir bráð og heimta æti sitt af Guði.22Þegar sól rennur upp, draga þau sig í hlé og leggjast fyrir í fylgsnum sínum,23en þá fer maðurinn út til starfa sinna, til vinnu sinnar fram á kveld.24Hversu mörg eru verk þín, Drottinn, þú gjörðir þau öll með speki, jörðin er full af því, er þú hefir skapað.25Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu, þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór.26Þar fara skipin um og Levjatan, er þú hefir skapað til þess að leika sér þar.27Öll vona þau á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.28Þú gefur þeim, og þau tína, þú lýkur upp hendi þinni, og þau mettast gæðum.29Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau, þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til moldarinnar.30Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til, og þú endurnýjar ásjónu jarðar.31Dýrð Drottins vari að eilífu, Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,32hann sem lítur til jarðar, svo að hún nötrar, sem snertir við fjöllunum, svo að úr þeim rýkur.33Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.34Ó að mál mitt mætti falla honum í geð! Ég gleðst yfir Drottni.35Ó að syndarar mættu hverfa af jörðunni og óguðlegir eigi vera til framar. Vegsama þú Drottin, sála mín. Halelúja.

104.1 Lofa þú Drottinn Slm 103.1+ – harla mikill Slm 95.3; 2Sam 7.22 – skrýddur hátign Slm 93.1; 111.3; Job 40.10
104.2 Þenur himininn Jes 40.22; 42.5; 44.24; 45.12; Jer 10.12; Sak 12.1; Job 9.8
104.3 Skýin, vagn Drottins Jes 19.1 – á vængjum vindsins Slm 18.11
104.4 Vindar og eldur Heb 1.7; sbr Slm 148.8; 1Kon 19.11,12
104.5 Hann grundvallar jörðina Slm 24.2; 93.1; 119.90; Job 38.4; Okv 8.29
104.7 Ógnun Drottins Slm 18.14,16; 106.9; Jes 50.2; Nah 1.4
104.9 Hafinu sett takmörk Jer 5.22; Job 38.8-11; Okv 8.29 – ekki framar flóð sbr 1Mós 9.11
104.10 Lindir Slm 74.15; 5Mós 8.7
104.13 Drottinn vökvar jörðina Slm 65.10; Jes 55.10; Jer 14.22; Post 14.17
104.14 Handa fénaðinum Slm 147.9; 1Mós 1.30 – Brauð mannsins 1Mós 1.29; Job 28.5
104.15 Vín, sem gleður Slm 4.8; Dóm 9.13 – Brauð, sem veitir þrótt 1Mós 18.5; Matt 6.11
104.17 Storkar Jer 8.7
104.18 Steingeitur Job 39.1 – stökkhérar Okv 30.26
104.19 Tungl og sól 1Mós 1.14-18; Sír 43.2-8; sbr 19.5-6
104.21-22 Ljónin Job 38.39-40 – æti frá Guði Slm 145.15; Job 38.41
104.23 Maðurinn að starfi 1Mós 2.15; 2Mós 20.9; Jóh 9.4
104.24 Mörg verk Drottins Slm 40.6; Job 5.9 – speki Guðs 1Mós 1.31; Jer 10.12; Job 28.23-28; Okv 3.19-20
104.25 Hafið og þess fjöldi Slm 69.35; 1Mós 1.20; Sír 43.25
104.26 Skip og sjómenn Slm 107.23-30
104.27 Öll vona á þig Slm 145.15
104.28 Lýkur upp Slm 145.16 – mettast gæðum Job 36.31; Matt 6.26
104.29 Byrgir auglit þitt Slm 30.8 – aftur til moldarinnar Slm 90.3; 146.4; 1Mós 3.19; Job 34.15; SSal 2.3
104.30 Andi Guðs lífgar Slm 33.6; 1Mós 2.7; Esk 37.10; Job 33.4; Post 17.25; sbr Jl 3.1-2
104.31 Eilíf dýrð Drottins Róm 11.36 – Drottinn gleðst 1Mós 1.31
104.32 Jörðin nötrar Slm 18.8; Am 9.5; Sír 16.19 – rýkur úr fjöllunum Slm 144.5; 2Mós 19.18
104.33 Meðan ég lifi Slm 63.5; 146.2 – lofsyngja Guði Slm 147.7+
104.34 Falla Drottni í geð Slm 19.15 – ég gleðst yfir Drottni Slm 32.11; Jl 2.23
104.35 Syndarar hverfa Slm 37.38; Jes 13.9; Opb 21.27 – hallelúja Slm 105-106; 113; 115.-117; 135; 146-150; Opb 19.1-6