1Fyrirheitið um það að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkur yðar verði til þess að dragast aftur úr.2Fagnaðarerindið var oss boðað eigi síður en þeim. En orðið, sem þeir heyrðu, kom þeim eigi að haldi vegna þess, að þeir tóku ekki við því í trú.3En vér, sem trú höfum tekið, göngum inn til hvíldarinnar eins og hann hefur sagt: Og ég sór í bræði minni: Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar. Þó voru verk Guðs fullgjör frá grundvöllun heims.4Því að einhvers staðar er svo að orði kveðið um hinn sjöunda dag: Og Guð hvíldist hinn sjöunda dag eftir öll verk sín.5Og aftur á þessum stað: Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.6Enn stendur því til boða, að nokkrir gangi inn til hvíldar Guðs. Þeir, sem fagnaðarerindið var fyrr boðað, gengu ekki inn sakir óhlýðni.7Því ákveður Guð aftur dag einn, er hann segir löngu síðar fyrir munn Davíðs: Í dag. Eins og fyrr hefur sagt verið: Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar.8Hefði Jósúa leitt þá til hvíldar, þá hefði Guð ekki síðar meir talað um annan dag.9Enn stendur þá til boða sabbatshvíld fyrir lýð Guðs.10Því að sá, sem gengur inn til hvíldar hans, fær hvíld frá verkum sínum, eins og Guð hvíldist eftir sín verk.11Kostum því kapps um að ganga inn til þessarar hvíldar, til þess að enginn óhlýðnist eins og þeir og falli.12Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans.13Enginn skapaður hlutur er honum hulinn, allt er bert og öndvert augum hans. Honum eigum vér reikningsskil að gjöra.14Er vér þá höfum mikinn æðsta prest, sem farið hefur í gegnum himnana, Jesú Guðs son, skulum vér halda fast við játninguna.15Ekki höfum vér þann æðsta prest, er eigi geti séð aumur á veikleika vorum, heldur þann, sem freistað var á allan hátt eins og vor, en án syndar.16Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma.

4.4 Sbr 1Mós 2.2
4.8 Til hvíldar Jós 21.44; 22.4; 23.1
4.12 Orð beittara sverði Jes 49.2; SSal 18.16; Opb 19.15
4.14 Æðsti prestur Heb 2.17+
4.15 Freistað án syndar Heb 2.17-18; 7.26; 9.14; Jóh 8.46; 2Kor 5.21; 1Jóh 3.5