1Þú skalt gjöra altarið af akasíuviði, fimm álna langt og fimm álna breitt ferhyrnt skal altarið vera og þriggja álna hátt.2Og þú skalt gjöra hornin á því upp af fjórum hyrningum þess, þau horn skulu vera áföst við það, og þú skalt eirleggja það.3Þú skalt gjöra ker undir öskuna, eldspaða þá, fórnarskálir, soðkróka og eldpönnur, sem altarinu fylgja. Öll áhöld þess skalt þú gjöra af eiri.4Þú skalt gjöra um altarið eirgrind, eins og riðið net, og setja fjóra eirhringa á netið, á fjögur horn altarisins.5Grindina skalt þú festa fyrir neðan umgjörð altarisins undir niðri, svo að netið taki upp á mitt altarið.6Og þú skalt gjöra stengur til altarisins, stengur af akasíuviði, og eirleggja þær.7Skal smeygja stöngunum í hringana, og skulu stengurnar vera á báðum hliðum altarisins, þegar það er borið.8Þú skalt gjöra altarið af borðum, holt að innan. Þeir skulu gjöra það eins og þér var sýnt uppi á fjallinu.9Þannig skalt þú gjöra forgarð tjaldbúðarinnar: Á suðurhliðinni skulu tjöld vera fyrir forgarðinum úr tvinnaðri baðmull, hundrað álna löng á þá hliðina,10og tuttugu stólpar með tuttugu undirstöðum af eiri, en naglar stólpanna og hringrandir þeirra skulu vera af silfri.11Sömuleiðis skulu að norðanverðu langsetis vera hundrað álna löng tjöld og tuttugu stólpar með tuttugu undirstöðum af eiri, en naglar í stólpunum og hringrandir á þeim skulu vera af silfri.12En á þverhlið forgarðsins að vestanverðu skulu vera fimmtíu álna löng tjöld og tíu stólpar með tíu undirstöðum.13Þverhlið forgarðsins að austanverðu, mót uppkomu sólar, skal vera fimmtíu álnir,14og skulu vera fimmtán álna tjöld annars vegar með þremur stólpum og þremur undirstöðum,15og hins vegar sömuleiðis fimmtán álna tjöld með þremur stólpum og þremur undirstöðum.16Fyrir hliði forgarðsins skal vera tuttugu álna dúkbreiða af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull, glitofin, með fjórum stólpum og fjórum undirstöðum.17Allir stólpar umhverfis forgarðinn skulu vera með hringröndum af silfri og silfurnöglum og undirstöðurnar af eiri.18Lengd forgarðsins skal vera hundrað álnir og breiddin fimmtíu álnir og hæðin fimm álnir, úr tvinnaðri baðmull og undirstöðurnar af eiri.19Öll áhöld tjaldbúðarinnar, til hverrar þjónustugjörðar í henni sem vera skal, svo og allir hælar, sem henni tilheyra, og allir hælar, sem forgarðinum tilheyra, skulu vera af eiri.20Þú skalt bjóða Ísraelsmönnum að færa þér tæra olíu af steyttum olífuberjum til ljósastikunnar, svo að lampar verði ávallt settir upp.21Í samfundatjaldinu fyrir utan fortjaldið, sem er fyrir framan sáttmálið, skal Aron og synir hans tilreiða þá frammi fyrir Drottni, frá kveldi til morguns. Er það ævinleg skyldugreiðsla, er á Ísraelsmönnum hvílir frá kyni til kyns.

27.1 Altarið 2Mós 38.1-7; 2Kon 16.14-15; 2Kro 4.1; Esk 43.13-17
27.3 Ker, skóflur … 1Kon 7.40
27.9 Forgarður 2Mós 38.9-20; 1Kon 8.64; Esk 40.17-47
27.20 Olía 3Mós 24.2-4; 1Kro 9.29
27.21 Frá kvöldi til morguns 1Sam 3.3