1Þetta er ættartala Nóa sona, Sems, Kams og Jafets. Þeim fæddust synir eftir flóðið.2Synir Jafets: Gómer, Magog, Madaí, Javan, Túbal, Mesek og Tíras.3Og synir Gómers: Askenas, Rífat og Tógarma.4Og synir Javans: Elísa, Tarsis, Kittar og Ródanítar.5Út frá þeim kvísluðust þeir, sem byggja eylönd heiðingjanna. Þetta eru synir Jafets eftir löndum þeirra, hver eftir sinni tungu, eftir kynþáttum þeirra og samkvæmt þjóðerni þeirra.6Synir Kams: Kús, Mísraím, Pút og Kanaan.7Og synir Kúss: Seba, Havíla, Sabta, Raema og Sabteka. Og synir Raema: Séba og Dedan.8Kús gat Nimrod. Hann tók að gjörast voldugur á jörðinni.9Hann var mikill veiðimaður fyrir Drottni. Því er máltækið: Mikill veiðimaður fyrir Drottni eins og Nimrod.10Og upphaf ríkis hans var Babel, Erek, Akkad og Kalne í Sínearlandi.11Frá þessu landi hélt hann til Assýríu og byggði Níníve, Rehóbót-Ír og Kala,12og Resen milli Níníve og Kala, það er borgin mikla.13Mísraím gat Lúdíta, Anamíta, Lekabíta, Naftúkíta,14Patrúsíta, Kaslúkíta þaðan eru komnir Filistar og Kaftóríta.15Kanaan gat Sídon, frumgetning sinn, og Het16og Jebúsíta, Amoríta, Gírgasíta,17Hevíta, Arkíta, Síníta,18Arvadíta, Semaríta og Hamatíta. Og síðan breiddust út kynkvíslir Kanaanítanna.19Landamerki Kanaanítanna eru frá Sídon um Gerar allt til Gasa, þá er stefnan til Sódómu og Gómorru og Adma og Sebóím, allt til Lasa.20Þetta eru synir Kams eftir kynþáttum þeirra, eftir tungum þeirra, samkvæmt löndum þeirra og þjóðerni.21En Sem, ættfaðir allra Ebers sona, eldri bróðir Jafets, eignaðist og sonu.22Synir Sems: Elam, Assúr, Arpaksad, Lúd og Aram.23Og synir Arams: Ús, Húl, Geter og Mas.24Arpaksad gat Sela, og Sela gat Eber.25Og Eber fæddust tveir synir. Hét annar Peleg, því að á hans dögum greindist fólkið á jörðinni, en bróðir hans hét Joktan.26Og Joktan gat Almódad, Salef, Hasarmavet, Jara,27Hadóram, Úsal, Dikla,28Óbal, Abímael, Seba,29Ófír, Havíla og Jóbab. Þessir allir eru synir Joktans.30Og bústaður þeirra var frá Mesa til Sefar, til austurfjallanna.31Þetta eru synir Sems, eftir ættkvíslum þeirra, eftir tungum þeirra, samkvæmt löndum þeirra, eftir þjóðerni þeirra.32Þetta eru ættkvíslir Nóa sona eftir ættartölum þeirra, samkvæmt þjóðerni þeirra, og frá þeim kvísluðust þjóðirnar út um jörðina eftir flóðið.

10.2 Gómer Esk 38.6 – Javan, Túbal (Mesek) Jes 66.19; Esk 27.13
10.8 Nimrod Mík 5.5
10.11 Níníve Jón 1-4; Nah 1-3
10.19 Sódóma og Gómorra 1Mós 18.16+
10.32 Þjóðirnar kvíslast 5Mós 32.8; Post 17.26