1Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar.2Frelsa mig og bjarga mér eftir réttlæti þínu, hneig eyru þín til mín og hjálpa mér.3Ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar, því að þú ert bjarg mitt og vígi.4Guð minn, bjarga mér úr hendi illgjarnra, undan valdi illvirkja og harðstjóra.5Því að þú ert von mín, þú, Drottinn, ert athvarf mitt frá æsku.6Við þig hefi ég stuðst frá móðurlífi, frá móðurskauti hefir þú verið skjól mitt, um þig hljómar ætíð lofsöngur minn.7Ég er mörgum orðinn sem undur, en þú ert mér öruggt hæli.8Munnur minn er fullur af lofstír þínum, af dýrð þinni daginn allan.9Útskúfa mér eigi í elli minni, yfirgef mig eigi, þá er þróttur minn þverrar.10Því að óvinir mínir tala um mig, þeir er sitja um líf mitt, bera ráð sín saman:11Guð hefir yfirgefið hann. Eltið hann og grípið hann, því að enginn bjargar.12Guð, ver eigi fjarri mér, Guð minn, skunda til liðs við mig.13Lát þá er sýna mér fjandskap farast með skömm, lát þá íklæðast háðung og svívirðing, er óska mér ógæfu.14En ég vil sífellt vona og auka enn á allan lofstír þinn.15Munnur minn skal segja frá réttlæti þínu, frá hjálpsemdum þínum allan daginn, því að ég veit eigi tölu á þeim.16Ég vil segja frá máttarverkum Drottins, ég vil boða réttlæti þitt, það eitt.17Guð, þú hefir kennt mér frá æsku, og allt til þessa kunngjöri ég dásemdarverk þín.18Yfirgef mig eigi, ó Guð, þegar ég er gamall orðinn og grár fyrir hærum, að ég megi kunngjöra styrkleik þinn komandi kynslóð.19Máttur þinn og réttlæti þitt, ó Guð, nær til himins, þú sem hefir framið stórvirki, Guð, hver er sem þú?20Þú sem hefir látið oss horfa upp á miklar nauðir og ógæfu, þú munt láta oss lifna við að nýju og láta oss aftur stíga upp úr undirdjúpum jarðar.21Þú munt auka við tign mína og aftur veita mér huggun.22Þá vil ég lofa trúfesti þína með hörpuleik, Guð minn, leika á gígju fyrir þér, þú Hinn heilagi í Ísrael.23Varir mínar skulu fagna, er ég leik fyrir þér, og sál mín er þú hefir leyst.24Þá skal og tunga mín tala um réttlæti þitt liðlangan daginn, því að þeir urðu til skammar, já hlutu kinnroða, er óskuðu mér ógæfu.

71.1 Leita hælis hjá Drottni Slm 7.2+
71.2 Hneig eyra þitt Slm 5.2; 17.1; 31.3; 86.1,6; 88.3; 102.3; 140.7; 141.1
71.3 Bjarg Slm 18.3; 31.3
71.6 Frá móðurlífi Slm 22.10-11
71.7 Öruggt hæli Slm 46.2; 62.8-9
71.9 Útskúfa mér ekki Slm 22.12; 38.22
71.11 Ásetningur óvina Slm 3.3+
71.12 Ver eigi fjarri sbr Slm 71.9 – skunda Slm 22.20+
71.13 Farast með skömm Slm 35.4+
71.15 Hef eigi tölu Slm 40.6; 139.17-18
71.18 Kunngera komandi kynslóð Slm 22.32+
71.19 Til himins Slm 36.6+
71.22 Lofa Guð Slm 147.7+ – Hinn heilagi Jes 1.4+
71.24 Tunga mín Slm 35.28 – vildu mér illt Slm 35.26