1Svo er um hvern æðsta prest, sem úr flokki manna er tekinn, að hann er settur fyrir menn til þjónustu frammi fyrir Guði, til þess að bera fram gáfur og fórnir fyrir syndir.2Hann getur verið mildur við fáfróða og villuráfandi, þar sem hann sjálfur er veikleika vafinn.3Og sökum þess á hann að bera fram syndafórn, eigi síður fyrir sjálfan sig en fyrir lýðinn.4Enginn tekur sér sjálfum þennan heiður, heldur er hann kallaður af Guði, eins og Aron.5Svo var það og um Krist. Ekki tók hann sér sjálfur þá vegsemd að gjörast æðsti prestur. Hann fékk hana af Guði, er hann sagði við hann: Þú ert sonur minn í dag hef ég fætt þig.6Og á öðrum stað: Þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks.7Á jarðvistardögum sínum bar hann fram með sárum kveinstöfum og táraföllum bænir og auðmjúk andvörp fyrir þann, sem megnaði að frelsa hann frá dauða, og fékk bænheyrslu vegna guðhræðslu sinnar.8Og þótt hann sonur væri, lærði hann hlýðni af því, sem hann leið.9Þegar hann var orðinn fullkominn, gjörðist hann öllum þeim, er honum hlýða, höfundur eilífs hjálpræðis,10af Guði nefndur æðsti prestur að hætti Melkísedeks.11Um þetta höfum vér langt mál að segja og torskilið, af því að þér hafið gjörst heyrnarsljóir.12Þó að þér tímans vegna ættuð að vera kennarar, þá hafið þér þess enn á ný þörf, að einhver kenni yður undirstöðuatriði Guðs orða. Svo er komið fyrir yður, að þér hafið þörf á mjólk, en ekki fastri fæðu.13En hver sem á mjólk nærist er barn og skilur ekki boðskap réttlætisins.14Fasta fæðan er fyrir fullorðna, fyrir þá, sem jafnt og þétt hafa tamið skilningarvitin til að greina gott frá illu.

5.1 Presturinn frammi fyrir Guði 2Mós 28.43; 29.30; 4Mós 18.1-7 – kennir lögmálið 5Mós 33.10; 3Mós 10.11; Mal 2.7 – ber fram fórnir 3Mós 1; 4; 9 o.fl.
5.2 Skilur veikleikana Heb 2.17-18; 4.15 – syndir (af vangá) 4Mós 15.22-31; Lúk 23.34; Post 3.17
5.3 Fyrir sjálfan sig 3Mós 9.7-8; 16.6,11; Heb 7.27
5.4 Kallaður 2Mós 28.1; 4Mós 16-17
5.5 Sbr Slm 2.7; Heb 1.5
5.6 Sbr Slm 110.4; Heb 6.20; 7.17
5.8 Hlýðni í þjáningu Matt 26.36-46 og hlst.; Fil 2.8
5.9 Fullnað Heb 2.10+
5.12 Undirstöðuatriði trúarinnar 1Kor 2.14-15; 3.1-3; 1Pét 2.2