1Helgigönguljóð. Drottinn, mun þú Davíð allar þrautir hans,2hann sem sór Drottni, gjörði heit hinum volduga Jakobs Guði:3Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt, eigi stíga í hvílurúm mitt,4eigi unna augum mínum svefns né augnalokum mínum blunds,5fyrr en ég hefi fundið stað fyrir Drottin, bústað fyrir hinn volduga Jakobs Guð.6Sjá, vér höfum heyrt um hann í Efrata, fundið hann á Jaarmörk.7Látum oss ganga til bústaðar Guðs, falla fram á fótskör hans.8Tak þig upp, Drottinn, og far á hvíldarstað þinn, þú og örk máttar þíns.9Prestar þínir íklæðist réttlæti og dýrkendur þínir fagni.10Sakir Davíðs þjóns þíns vísa þú þínum smurða eigi frá.11Drottinn hefir svarið Davíð óbrigðulan eið, er hann eigi mun rjúfa: Af ávexti kviðar þíns mun ég setja mann í hásæti þitt.12Ef synir þínir varðveita sáttmála minn og reglur mínar, þær er ég kenni þeim, þá skulu og þeirra synir um aldur sitja í hásæti þínu.13Því að Drottinn hefir útvalið Síon, þráð hana sér til bústaðar:14Þetta er hvíldarstaður minn um aldur, hér vil ég búa, því að hann hefi ég þráð.15Vistir hans vil ég vissulega blessa, og fátæklinga hans vil ég seðja með brauði,16presta hans vil ég íklæða hjálpræði, hinir guðhræddu er þar búa skulu kveða fagnaðarópi.17Þar vil ég láta Davíð horn vaxa, þar hefi ég búið lampa mínum smurða.18Óvini hans vil ég íklæða skömm, en á honum skal kóróna hans ljóma.

132.2-5 Heit Davíðs 2Sam 7.2-3
132.6 Örk Drottins 1Sam 5.1-7; 2Sam 6.1-19
132.7 Á fótskör hans Slm 99.5
132.8-9 Kom þú, Drottinn 2Kro 6.41; sbr 4Mós 10.35; Slm 68.2
132.10 Vísa eigi frá 2Kro 6.42 – þínum smurða Slm 2.2+
132.11 Svarið eið 2Sam 7.9-19; Jer 33.21-22,26 – af ávexti 2Sam 7.12; Jer 33.17
132.12 Ef synir þínir … 2Sam 7.14-16
132.13 Útvalinn bústaður Slm 48.2-3; 68.17; 78.68; 87.2; 135.21; Jes 31.9; 46.13; Jer 8.19; 31.6; Jl 4.17; Sak 1.17; Hlj 4.11; sbr 5Mós 12.5 o.fl.
132.17 Láta eflast … sbr Jes 11.1; Jer 23.5; 33.15; Sak 3.8; 6.12 – lampi 2Sam 21.17; 1Kon 11.36; 15.4; 2Kon 8.19