1Fyrst þér því eruð uppvaktir með Kristi, þá keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs.2Hugsið um það, sem er hið efra, en ekki um það, sem á jörðinni er.3Því að þér eruð dánir og líf yðar er fólgið með Kristi í Guði.4Þegar Kristur, sem er líf yðar, opinberast, þá munuð þér og ásamt honum opinberast í dýrð.5Deyðið því hið jarðneska í fari yðar: Hórdóm, saurlifnað, losta, vonda fýsn og ágirnd, sem ekki er annað en skurðgoðadýrkun.6Af þessu kemur reiði Guðs yfir þá, sem hlýða honum ekki .7Meðal þeirra voruð og þér áður, þegar þér lifðuð í þessum syndum.8En nú skuluð þér segja skilið við allt þetta: Reiði, bræði, vonsku, lastmæli, svívirðilegt orðbragð.9Ljúgið ekki hver að öðrum, því þér hafið afklæðst hinum gamla manni með gjörðum hans10og íklæðst hinum nýja, sem endurnýjast til fullkominnar þekkingar og verður þannig mynd skapara síns.11Þar er ekki grískur maður eða Gyðingur, umskorinn eða óumskorinn, útlendingur, Skýti, þræll eða frjáls maður, þar er Kristur allt og í öllum.12Íklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjartans meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi.13Umberið hver annan og fyrirgefið hver öðrum, ef einhver hefur sök á hendur öðrum. Eins og Drottinn hefur fyrirgefið yður, svo skuluð þér og gjöra.14En íklæðist yfir allt þetta elskunni, sem er band algjörleikans.15Látið frið Krists ríkja í hjörtum yðar, því að til friðar voruð þér kallaðir sem limir í einum líkama. Verðið þakklátir.16Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki. Fræðið og áminnið hver annan með sálmum, lofsöngum og andlegum ljóðum og syngið Guði sætlega lof í hjörtum yðar.17Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.18Þér konur, verið undirgefnar mönnum yðar, eins og sómir þeim, er Drottni heyra til.19Þér menn, elskið eiginkonur yðar og verið ekki beiskir við þær.20Þér börn, verið hlýðin foreldrum yðar í öllu, því að það fer þeim vel, sem Drottni heyra til.21Þér feður, verið ekki vondir við börn yðar, svo að þau verði ekki ístöðulaus.22Þér þrælar, verið hlýðnir í öllu jarðneskum drottnum yðar, ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur í einlægni hjartans og í ótta Drottins.23Hvað sem þér gjörið, þá vinnið af heilum huga, eins og Drottinn ætti í hlut, en ekki menn.24Þér vitið og sjálfir, að Drottinn mun veita yður arfleifðina að launum. Þér þjónið Drottni Kristi.25Sá, sem rangt gjörir, skal fá það endurgoldið, sem hann gjörði rangt, og þar er ekki manngreinarálit.

3.1 Uppvakin með Kristi Kól 2.12+ – hið efra Matt 6.20-23; Fil 3.20-21; Jóh 3.3 – við hægri hönd Guðs Slm 110.1; Matt 22.44+ ; sbr Heb 1.3+
3.4 Kristur líf ykkar Gal 2.20; Fil 1.21 – þið opinberist ásamt honum Róm 8.19; 1Þess 4.17; 1Pét 1.6-8; 1Jóh 3.2
3.5 Deyðið … Róm 6.6-11; 8.13; Gal 5.24; Mrk 9.43-47 – hegðun sem hæfir ekki Ef 5.3-5+
3.8-10 Afklæðast, íklæðast Ef 4.22-25
3.8 Segja skilið við Róm 13.12; Jak 1.21; 1Pét 2.1; Heb 12.1 – svívirðilegt orðbragð Ef 4.29+
3.10 Íklæðast Róm 13.14; Gal 3.27 – nýr maður Ef 2.15; 1Kor 15.45; 2Kor 5.17; Esk 36.26-27; Slm 51.12 – skapa að nýju Róm 12.2; 2Kor 4.16 – skapa í sinni mynd Kól 1.15+
3.11 Ekki munur á Róm 10.12; 1Kor 12.13; Gal 3.27-28
3.12-15 Framkoma Ef 4.1-3; Fil 2.1-4
3.13 Fyrirgefið Matt 6.14; 18.21-35; 2Kor 2.5-11; Ef 4.32 – eins og Drottinn Ef 5.2; Jóh 15.12; Róm 15.7
3.14 Elska Róm 13.8-10; 1Kor 13
3.15 Friður Kól 1.20+ ; Fil 4.7 – einn líkami Ef 4.4; Kól 1.18+ – þakklát Kól 1.3+
3.16 Til góðs þeim sem heyra Ef 4.29+ – áminnið hvert annað Kól 1.28; Róm 15.14; 1Þess 5.11 – með lofsöngvum Ef 5.19-20; 1Kor 14.15,26
3.17 Í nafni Drottins Róm 14.7; 1Kor 10.31 – þakka Kól 1.3+
3.18-19 Konur og eiginmenn Ef 5.22-23; 1Kor 7; 11.3; 1Pét 3.1-7; Tít 2.4-5
3.20-21 Börn og foreldrar Ef 6.1-4; Heb 12.4-11; 1Pét 5.5
3.22-25 Þrælar og húsbændur Ef 6.5-9; 3Mós 25.43; 1Kor 7.21-23; 1Tím 6.1-2; Tít 2.9-10; Fílm; 1Pét 2.18-20
3.24 Þjóna Kristi Róm 12.11
3.25 Manngreinarálit Róm 2.11+